Forsetinn sagður vilja reka ráðherrana úr starfi

Forseti Namibíu er sagður vilja víkja Sacky Shanghala dómsmála­ráðherra og Bernhardt Esau sjávarútveg­ráðherra úr starfi í kjölfar umfjöllunar um samskipti þeirra við forsvars­menn Samherja.

Hage Geingob, forseti Namibíu.
Hage Geingob, for­seti Namibíu. Mynd: EPA

Hage Geingob, forseti Namibíu, er sagður vilja reka dómsmála­ráðherra og sjávar­útvegs­ráðherra landsins, þá Sacky Shanghala og Bernhardt Esau, úr embættum sínum í kjölfar ásakana um spillingu.

Forsetinn er sagður vera kominn með nóg af ásökunum um spillingu á hendur ráðherrunum tveimur og verði þeir að víkja úr ríkis­stjórn.

Helgi Seljan birtir færslu um þetta á Facebook-síðu sinni en hann vann að umfjöllun Kveiks sem birtist í gærkvöldi um meint samskipti Samherja við þá Sacky Shanghala og Bernhardt Esau.

Helgi vitnar í færslunni í namibíska götu­blaðið Namibian Sun en samkvæmt heimilda­mönnum þeirra sem sagðir eru hátt settir í stjórn­kerfi landsins er þetta vilji forsetans. Í umfjöllun blaðsins er fjallað um uppljóstranir í fjöl­miðlum um samskipti hátt settra manna við þá sem eru í forsvari fyrir Samherja. Ekki liggur ljóst fyrir hvort forsetinn vilji víkja ráðherrunum tveimur varanlega úr embætti eða tíma­bundið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár