Gler loks endurunnið að hluta á Íslandi eftir yfir 30 ára bið

Þó verður eingöngu lítill hluti glersins endur­unninn þar til ársins 2023.

Loksins í endurvinnslu
Loksins í end­ur­vinnslu Ný lög kveða á um end­ur­vinnslu glers, en það hefur ekki verið end­ur­unnið í ára­tugi. Mynd: Shutterstock

Í þau rúmlega 30 ár sem Íslendingar hafa flokkað og skilað gleri hefur ekkert af því farið í endur­vinnslu. Ísland er eina ríki Evrópu sem endur­vinnur ekkert af sínum gler­úrgangi. Fyrstu markmið Evrópu­sambandsins voru sett árið 2001, en þá var krafa um að ná 15% af öllu gleri í endur­vinnslu. Það markmið var svo hækkað umtals­vert árið 2012, eða upp í 60%. Ísland hefur aldrei verið nálægt þeim markmiðum. Markmiðin hækka svo í 75% fyrir árið 2030. 

Nýverið samþykkti Alþingi Íslands frumvarp Guðmundar Inga Guðbrands­sonar umhverfis- og auðlinda­ráðherra um breytingar á lögum um ráðstafanir gegn umhverfis­mengun af völdum einnota drykkjar­vöruumbúða. 

Með laga­breytingunni mun umsýslu­gjald á drykkjar­vörum í gleri hækka, en það er gjald sem drykkjar­fram­leiðendur og -innflytjendur borga af hverri gler­flösku. Í yfir 30 ár hefur þetta gjald verið svo lágt að það taldist ekki fjárhags­lega hagkvæmt fyrir Endur­vinnsluna hf. að endur­vinna gler, en það fyrirtæki hefur einkarétt á söfnun drykkjar­umbúða á Íslandi. Var því bjór­flaskan aldrei aftur að gleri, heldur voru fundin önnur not fyrir hana. Meðal hluthafa í Endur­vinnslunni hf. eru Ölgerðin og Coca Cola á Íslandi.

Erfitt verður að sjá hvort Ísland muni ná að standa við markmið sem sett voru fyrir níu árum síðan með þessari aðgerð. Þegar gleri er safnað, til dæmis á endur­vinnslu­stöðvum Sorpu, er því blandað við múrbrot, flísar, postulín og fleira. Engin nákvæm tölfræði er til um hversu nákvæmlega mikið magn af gleri fellur til árlega á Íslandi.

Gler endurnýtt á Íslandi til að stöðva rottugang

Árið 1989 hóf Endur­vinnslan hf. starfsemi, það sama ár gat fólk skilað inn gosflöskum úr gleri og fengið greitt fyrir. Hér áður fyrr tóku gosframleiðendur aftur við flöskum. Þær flöskur voru þvegnar og notaðar aftur í framleiðslu­ferlinu hjá þeim. Það ferli hætti og urðu því allar gler­umbúðir einnota. Árið 2016 hóf Sorpa loks að setja upp grenndar­gáma víðs vegar um höfuð­borgar­svæðið þar sem íbúar þess gátu flokkað sérstak­lega gler. Fyrir þann tíma var stór hluti alls glers á Íslandi urðað. Hjá Endur­vinnslunni hf. safnaðist mikið magn af gler­flöskum og var tekin sú ákvörðun að ekki að reyna að koma þeim í endur­vinnslu, heldur endur­nýtingu. Á Íslandi er gler endurnýtt meðal annars til að stöðva rottugang á urðunar­stöðum og til land­fyllingar. Blaða­maður Stundarinnar spurðist fyrir hjá umhverfis­stofnunum Svíþjóðar og Noregs um hvort þar í landi væri notast við gler á urðunar­stöðum til að berjast gegn rottu­gangi. Sögðu stofnanirnar að þær hefðu aldrei heyrt til þess og efuðust um að hægt væri að kalla þá aðferð endur­nýtingu. Í dag er mikið af gleri safnað í safnhaug á Álfsnesi, en áætlað er að nota það við gerð Sunda­brautarinnar, ef af henni verður.

Umhverfislega hagkvæmt að endurvinna gler

Verkfræði­stofan Efla gerði vist­ferils­greiningu á söfnun og endur­vinnslu glers árið 2014 fyrir Endur­vinnsluna hf. og Úrvinnslu­sjóð. Í henni kom skýrt fram að það væri umhverfis­lega hagkvæmt að endur­vinna gler. Gler er 100% endur­vinnanlegt og er hægt að endur­vinna það nánast endalaust aftur og aftur. Með því að endur­vinna gler sparast mikil orka, þar sem ekki þarf að ná í nýjar auðlindir til að búa til nýtt gler. Þrátt fyrir að niður­stöður skýrslunnar hafi verið afgerandi var ekki farið í endur­vinnslu.

„Það er mjög dýrt að endur­bræða gler og það kostar mengun að endur­vinna það“

Í samtali við Stundina segir Helgi Lárusson, framkvæmda­stjóri Endur­vinnslunnar hf., að kostnaðurinn hafi einfald­lega verið of mikill við að endur­vinna glerið. „Það er einfald­lega mjög dýrt að endur­vinna glerið,“ segir Helgi. Árið 2017 setti ráðherra á fót starfshóp sem átti að koma með tillögur um hvernig mætti stuðla betur að endur­vinnslu gler­umbúða. Starfs­hópurinn skilaði af sér niður­stöðu árið 2018 og var niður­staðan sú sama og skýrsla verkfræði­stofunnar Eflu hafði bent á fjórum árum áður. Starfs­hópurinn var hins vegar ekki að hvetja til þess að grípa strax til aðgerða, heldur mælti hann með því að endur­vinnsla á gleri myndi ekki hefjast fyrr en í fyrsta lagi árið 2021.

Sagði að endurvinnsla á gleri væri bæði dýr og mengandi

Í grein í Frétta­blaðinu frá árinu 2012 sagði Helgi Lárusson, framkvæmda­stjóri Endurvinnslunar hf., að það væri bæði mengandi og dýrt að endur­vinna gler. „Það er mjög dýrt að endur­bræða gler og það kostar mengun að endur­vinna það. Og þá kemur alltaf upp spurningin: Hvað viltu ganga langt og hvenær er verið að vernda umhverfið? Er þetta umhverfis­vænt eða ekki?“ Þeirri spurningu var svarað tveimur árum síðar þar sem kom skýrt fram í vist­ferils­greiningu Eflu að söfnun og endur­vinnsla á gleri væri umhverfis­lega hagkvæm. Var því niður­staða Eflu þvert á það sem framkvæmda­stjóri Endur­vinnslunnar hf. hélt fram. 

Ekkert úrvinnslugjald er á gleri í dag

Úrvinnslu­gjald er lagt á langflestar neytenda­umbúðir á Íslandi, eins og allar umbúðir úr plasti og pappír. Á það gjald að standa undir þeim kostnaði sem verður vegna söfnunar, flokkunar og endur­vinnslu á umbúðunum. Hins vegar er ekkert úrvinnslu­gjald lagt á gler­umbúðir, eins og gler­krukkur. Hefur því ekki verið til fjármagn fyrir endur­vinnslu­fyrirtækin til að senda glerið til endur­vinnslu. Úrvinnslu­sjóður ber ábyrgð á að setja úrvinnslu­gjald á allar umbúðir, en engar áætlanir voru þar til margra ára um að hefja gjaldtöku á úrvinnslu­gjaldi fyrir gler. Samkvæmt heimildum Stundarinnar hafa innflutnings­aðilar og fram­leiðendur á vörum sem koma í gler­umbúðum mótmælt því að sérstakt gjald verði lagt á þær umbúðir. Þessir sömu innflutnings­aðilar eiga fulltrúa í stjórn Úrvinnslu­sjóðs sem tekur ákvarðanir um hvaða vörur skulu bera úrvinnslu­gjald. Ný lög, sem hafa nú verið samþykkt á Alþingi, munu leiða til þess að úrvinnslu­gjald verður lagt á gler­umbúðir árið 2023.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár