Boðað til stjórnarkjörs hjá Festi í kjölfar umdeildrar uppsagnar forstjórans

Stjórn Festi hefur ákveðið að boða til hluthafa­fundar 14. júlí næst­komandi þar sem stjórnar­kjör er eina málið á dagskrá. Kurr hefur verið meðal hluthafa sökum þess hvernig staðið var að uppsögn forstjóra félagsins og hún tilkynnt.

Festi hf. er móðurfélag félaga á borð við Elko, Krónunnar og N1.
Festi hf. er móð­ur­fé­lag félaga á borð við Elko, Krón­unnar og N1. Mynd: Samsett

Stjórn Festi tilkynnti á fimmtudags­kvöld að hún hefði ákveðið að boða hluthafa­fund „vegna þeirra sjónar­miða sem komið hafa fram í tengslum við starfslok forstjóra félagsins“, Eggerts Þórs Krist­óferssonar, sem tilkynnt var um í upphafi mánaðar. Stjórnar­kjör mun fara fram á fundinum, sem verður 14. júlí.

Stjórnin segist í yfir­lýsingu ekki víkja sér undan málefnalegri gagnrýni, en „telur að horft til framtíðar sé ákvörðun hennar um forstjóra­skipti rétt og mikilvægt skref í áfram­haldandi þróun félagsins.“

„Vöxtur og viðgangur Festi er mikil­vægari en einstaka stjórn­endur þess eða stjórn. Það er ósk stjórnar að boðaður hluthafa­fundur megi verða til þess að sætta ólík sjónarmið svo unnt sé að halda áfram þeirri vegferð sem fyrir höndum er og skipan nýs forstjóra er órjúfanlegur hluti af,“ segir í tilkynningu stjórnarinnar. Þar kemur einnig fram að stjórn og hluthafa beri „sameiginlega ríka ábyrgð á því að skapa starfs­fólki frið til að sinna störfum sínum“.

Eitt mál á dagskránni

Í tilkynningu Festi til Kaup­hallar um fyrir­hugaðan hluthafa­fund segir að á dagskránni verði einungis eitt mál – stjórnar­kjör.

„Í upphafi fundarins mun stjórn félagsins segja af sér til að tryggja að stjórnar­kjör fari fram. Tilgangur fundarins er að gefa hluthöfum færi á að kjósa nýja stjórn, eftir atvikum að endurnýja umboð sitjandi stjórnar, eða kjósa nýja eða breytta stjórn, allt eftir því hvað hluthöfum sýnist og hverjir gefa kost á sér til stjórnar­starfa,“ segir í tilkynningu Festi.

Fráfar­andi stjórn hefur samkvæmt því sem kemur fram í tilkynningu farið fram á það við tilnefningar­nefnd félagsins að „hún geri tillögu um fleiri stjórnar­menn en fimm í þetta sinn svo tryggt sé að hluthafar geti kosið á milli fram­bjóðenda og ekki verði sjálf­kjörið“.

Yfirlýsing stjórnar Festi í heild sinni

„Stjórn Festi hefur ákveðið að boða hluthafa­fund vegna þeirra sjónar­miða sem komið hafa fram í tengslum við starfslok forstjóra félagsins sem tilkynnt voru þann 2. júní sl. Stjórn víkur sér ekki undan málefnalegri gagnrýni en telur að horft til framtíðar sé ákvörðun hennar um forstjóra­skipti rétt og mikilvægt skref í áfram­haldandi þróun félagsins.

Vöxtur og viðgangur Festi er mikil­vægari en einstaka stjórn­endur þess eða stjórn. Það er ósk stjórnar að boðaður hluthafa­fundur megi verða til þess að sætta ólík sjónarmið svo unnt sé að halda áfram þeirri vegferð sem fyrir höndum er og skipan nýs forstjóra er órjúfanlegur hluti af.

Festi er stórt og samfélags­lega mikilvægt félag á íslenskum neytenda- og fyrirtækja­markaði sem hefur marg­víslegum skyldum að gegna gagnvart starfs­fólki og viðskipta­vinum. Félagið býr yfir afburða­hópi mjög hæfs starfs­fólks sem er spennt fyrir fram­tíðinni. Stjórn og hluthafar bera sameiginlega ríka ábyrgð á því að skapa starfs­fólki frið til að sinna störfum sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár