Eggert Þór Kristófersson hættir sem forstjóri Festi hf. í sumar.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son hættir sem for­stjóri Festi hf. í sumar. Mynd: Festi

Forstjórinn sem var rekinn og stjórnin sem sendi ranga tilkynningu til Kauphallar um það

Eggert Þór Krist­ó­fers­son var rek­inn sem for­stjóri Festi í byrjun mán­aðar. Stór hluti hlut­hafa er veru­lega óánægður með þá ákvörðun og til­kynn­ingu sem send var til Kaup­hallar vegna hennar. Afdrifa­ríkur hlut­hafa­fundur gæti verið framundan í félag­inu.

Þann 2. júní var send til­kynn­ing til Kaup­hallar Íslands um að Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festi hf. síð­ustu sjö árin, hefði sagt starfi sínu lausu.

Til­kynn­ingin kom flestum í opna skjöldu enda hafði ekk­ert bent til þess að Eggert, sem verið hefur stjórn­andi hjá Festi og fyr­ir­renn­urum þess félags frá 2011, væri á útleið. Rekstur félags­ins, eins stærsta smá­sala lands­ins sem rekur meðal ann­ars Krónuna, Elko og N1, gengur afar vel og Festi hefur haldið mark­aðsvirði sínu ágæt­lega það sem af er ári á meðan að flest félög í Kaup­höll­inni hafa verið að síga umtals­vert í verði.

Þá voru Eggert og félagið til­tölu­lega nýbúin að standa af sér mik­inn storm þegar tveir af stærstu einka­hlut­höfum Festi, Hregg­viður Jónsson og Þórður Már Jóhann­es­son, voru ásak­aðir um að hafa brotið á konu kyn­ferð­is­lega í heitum potti í félagi við annan mann haustið 2020. Þórður Már neydd­ist á end­anum til að segja af sér stjórn­ar­for­mennsku í Festi vegna máls­ins. Það gerð­ist 6. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að þá hafi aðrir stjórn­ar­menn, stórir hlut­hafar og stjórn­endur félags­ins allir reynt að þrýsta beint eða óbeint á að Þórður Már myndi hætta í nokkurn tíma, en án árang­urs. Lög og sam­þykktir félags­ins voru ein­fald­lega með þeim hætti að honum var í sjálfs­vald sett milli aðal­funda hvort hann hætti eða ekki.

Á end­anum var honum stillt upp við vegg af líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, sem eiga um 70 pró­sent hlut í félag­inu.

Ljóst er að Þórður Már kenndi Eggerti um afdrif sín. Í nýlegri Twitter-færslu sagði konan, Vítalía Lazareva, að Eggert hefði hlustað á hana og gefið henni tæki­færi til að segja hennar hlið þegar Þórður Már „var búinn að leggja allt aðra sögu á borðið hjá stjórn­inn­i“. Vítalía sagð­ist eiga Egg­erti mikið að þakka og von­aði að hann vissi það.

Það kom svo nokkuð fljótt á dag­inn að til­kynn­ingin sem send var í Kauphöll um upp­sögn Eggerts var röng. Hann sagði aldrei upp. Hann var rek­inn.

Eggert ekki múlbundinn – hefur kosið að ræða ekki við fjölmiðla

Ýmislegt hefur verið skrifað um málið í fjöl­miðlum síð­ustu daga. Það var meðal ann­ars sagt frá því, í umfjöllun Mannlífs, að Eggert hefði fengið tveggja ára starfs­loka­samn­ing og að sam­kvæmt honum mætti hann ekki tjá sig við fjöl­miðla. Hvorugt er rétt. Eggert, sem var með 4,9 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra í laun, fékk samn­ings­bund­inn eins árs upp­sagn­ar­frest en ekk­ert var samið um múl­bind­ingu sem skil­yrði fyrir því að hann yrði efndur. Eggert hefur ein­fald­lega valið að tala ekk­ert við fjöl­miðla.

Tveir stjórn­ar­menn í Festi, nýi stjórn­ar­for­mað­ur­inn Guðjón Reyn­is­son, og Margrét Guð­munds­dóttir, sem tók við sem vara­for­maður stjórnar þegar Þórður Már hætti, lögðu fram til­lögu um að Eggerti yrði sagt upp störfum. Aðrir stjórn­ar­menn sam­þykktu hana og Eggerti var í kjöl­farið greint frá þess­ari nið­ur­stöðu.

Samkvæmt því sem við­mæl­endur Kjarnans segja var honum sagt að þetta væri tæki­færi fyrir hann. Eggert væri enn ungur maður og hefði verið for­stjóri í sjö ár. Það væri nægi­legur tími og breyt­inga væri þörf.

Þórður Már Jóhannsson, fyrrverandi stjórnarformaður Festi.
Þórður Már Jóhanns­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festi.

Grunur var þó um að Þórður Már og Hregg­viður hefðu þrýst á upp­sögn­ina og við­mæl­endur Kjarnans segja að auk þess hafi Guðjón viljað fá Jón Björns­son, for­stjóra Origo, til að stýra Festi. Hags­munir hefðu því farið saman. Ekkert leynd­ar­mál er að Festi hafði, fram að Vítalíu-mál­inu, verið stýrt af nokkrum einka­hlut­höfum að uppi­stöðu þótt líf­eyr­is­sjóð­irnir færu sam­eig­in­lega með langstærstan eign­ar­hluta. Þar voru Þórður Már, Hregg­viður og Bjarni Ármans­son fyr­ir­ferða­mestir.

Sagt nær öruggt að hluthafafundur verði haldinn

Það er ekki lítið mál að segja ósatt í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands. Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn byggir á trausti um að allir hlut­hafar séu jafn­settir þegar kemur að upp­lýs­ingum sem geta haft áhrif á verð­mæti bréfa. Ef gefin er út fölsk yfir­lýs­ing um að æðsta stjórn­anda hafi verið sagt upp, þegar hann var í raun rek­inn, þá kallar það á rann­sókn hjá Kaup­höll­inni og eftir atvikum fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands.

Þegar líf­eyr­is­sjóð­irnir sem eiga í Festi, og ýmsir aðrir einka­fjár­festar, fóru að spyrj­ast fyrir um þessa ákvörðun kom einmitt þetta í ljós: til­kynn­ingin var ekki sann­leik­anum sam­kvæm.

Bjarni Ármannsson er á meðal stærstu einkafjárfestanna í Festi. Mynd: Icelandic Seafood International
Bjarni Ármanns­son er á meðal stærstu einka­fjár­fest­anna í Festi. Mynd: Icelandic Seafood International

Hópur hlut­hafa fór í kjöl­farið að kalla eftir því að hlut­hafa­fundur yrði boð­aður til að fara yfir málið, en til þess að það verði þurfa eig­endur tíu pró­sent hluta­fjár að biðja um það. Heim­ildir Kjarnans herma að Bjarni Ármanns­son, sem var utan þjón­ustu­svæðis þegar Eggerti var sagt upp, hafi beitt sér einna mest við að kalla þann fund fram. Þeir Eggert eru búnir að þekkj­ast lengi, en Eggert var fram­kvæmd­ar­stjóri Sjáv­ar­sýnar, fjár­fest­inga­fé­lags Bjarna áður en hann hóf störf hjá Festi.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að það sé nán­ast öruggt, eins og sakir standa nú, að hlut­hafa­fund­ur­inn verði hald­inn. Gerist það er talið lík­leg­ast að núver­andi stjórn segi af sér og ný verði kjörin.

Ný tilkynning – nýjar skýringar

Stjórn Festi brást loks við í gær, með nýrri til­kynn­ingu til Kaup­hallar. Þar við­ur­kenndi stjórnin að hún hefði haft for­göngu um að óska eftir sam­tali við Eggert um starfs­lok hans fimmtu­dag­inn 2. júní.

„Við þær aðstæður óskaði for­stjóri eftir að fá að segja upp störfum í stað þess að honum yrði sagt upp, með hags­muni sjálf síns og félags­ins í huga. Var fall­ist á þá mála­leitan og náð­ust samn­ingar sam­dæg­urs á milli félags­ins og for­stjóra um starfs­lok hans eins og til­kynn­ing til kaup­hallar þann dag ber með sér,“ sagði í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­innar og því bætt við að það væri eitt helsta verk­efni hennar að ráða og reka for­stjóra – og sam­tal við aðra hlut­hafa í slíku ferli væri bein­línis á skjön við reglur Kaup­hall­ar­innar.

„Stjórnin stendur við ákvörðun sína og byggir hana á því mati að félagið standi nú á tíma­mótum eftir mörg ár upp­bygg­ingar og mót­unar. Þessi tíma­mót, á sama tíma og sam­keppni er að aukast á öllum rekstr­ar­sviðum félags­ins og ólík verk­efni blasa við, kalla á nýja nálgun og nýjar hendur til að vinna verkin. Hlut­hafar geta að sjálf­sögðu haft aðra skoðun á þessu máli og komið þeirri skoðun á fram­færi við stjórn eftir við­eig­andi boð­leiðum. Erfitt er hins vegar að taka það sam­tal í smá­at­riðum á hlut­hafa­fundi, þar sem til staðar eru, auk hlut­hafa, fjöl­miðlar og full­trúar sam­keppn­is­að­ila,“ sagði einnig í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­innar.

Enn­fremur sagði að teng­ing máls­ins við mál Þórðar Más og aðdrag­anda afsagnar hans ætti sér enga stoð í raun­veru­leik­anum og var því vísað algjör­lega á bug. „Á sama tíma gerir stjórn sér grein fyrir, eins og sam­keppn­is­yf­ir­völd, að eign­ar­hald skráðra félaga á Íslandi, þar sem líf­eyr­is­sjóðir fara oft sam­eig­in­lega með meiri­hluta hluta­fjár í sam­keppn­is­að­ilum, er vand­með­farið og krefj­andi. Líf­eyr­is­sjóðir verða að tryggja virka sam­keppni sam­keppn­is­að­ila sem þeir eiga hluti í. Þá verður einnig að horfa til þess að Festi hf. er aðili að sátt við sam­keppn­is­yf­ir­völd sem virða ber í hví­vetna.“

Þessi skýr­ing á upp­sögn Eggerts rímar ekki við þær upp­lýs­ingar sem veittar hafa verið meg­in­þorra stærri hlut­hafa, sem eru óánægðir með upp­sögn­ina og þá til­kynn­ingu sem send var til Kaup­hallar vegna hennar.

Þeim var sagt að Eggert hefði ein­fald­lega verið rek­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár