Hvorki umhverfisráðuneytið né Umhverfisstofnun kolefnisjöfnuð

Hið opinbera hvetur til kolefnis­jöfnunar en tekur sjálft takmarkaðan þátt. Stjórnar­formaður Kolviðar er undrandi á aðgerðar­leysinu og vill sjá ríkið ganga á undan með góðu fordæmi.

Samningar um kolefnisjöfnun
Samn­ingar um kolefn­is­jöfnun Lands­virkjun er eitt örfárra rík­is­fyr­ir­tækja sem eru þátt­tak­endur í Kolviði. Reynir Krist­ins­son, stjórn­ar­for­maður Kolviðs, og Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, und­ir­rit­uðu samn­ing þar um árið 2013 og hefur fyr­ir­tækið verið þátt­tak­andi síðan. Mynd: Kolviður

Ekkert ráðuneyti, engin ríkis­stofnun og nálega engin fyrirtæki í eigu hins opinbera eru þátt­takendur í Kolviði, sjóði sem hefur það verkefni að gefa fyrir­tækjum, stofnunum, félaga­samtökum og einstaklingum færi á að gerast kolefnis­hlutlaus. Hvorki umhverfis­ráðuneytið né Umhverfis­stofnun eru þannig þátt­takendur í verk­efninu. Stjórnar­formaður Kolviðar segir það koma sér spánskt fyrir sjónir að hið opinbera ætlist til þess að aðrir kolefnis­jafni sig en taki ekki þátt sjálft.

Kolviður er verkefni sem ýtt var úr vör árið 2006 og hóf starfsemi árið 2007. Í stofnskrá sjóðsins kemur fram að hann sé stofnaður með stuðningi ríkis­stjórnar Íslands en stofn­endur eru Landvernd og Skógræktar­félag Íslands. Markmið Kolviðar er að binda kolefni með plöntun trjá­gróðurs og draga þannig úr styrk koldíoxíðs í andrúms­lofti. Sjóðurinn gerir aðilum kleyft að taka ábyrgð á eigin losun, sínu kolefnis­fótspori, með því að greiða fyrir trjá­plöntun sem aftur kolefnis­jafnar starfsemi fyrir­tækja, stofnana, félaga­samtaka eða heimilshald einstaklinga. Einkum er þar horft til samgangna, hvort sem er á láði, legi eða í lofti.

Efnahagshrunið dró úr þátttöku

Sjóðurinn hóf sem fyrr segir starfsemi árið 2007 og strax fyrsta árið tóku tólf fyrirtæki eða opinberir aðilar þátt. Þar að auki voru öll ráðuneytin þátt­takendur í verk­efninu og kolefnis­jöfnuðu bifreiða­flota sinn. Meðal þeirra sem voru þátt­takendur á þessu fyrsta starfsári sjóðsins voru flug­félögin Icelandair og Iceland Express, bíla­leigan Hertz og Garðabær. Árið eftir, árið 2008, fækkaði þeim sem tóku þátt í verk­efninu talsvert. Þannig var fjármála­ráðuneytið eitt eftir af ráðuneytunum, ekkert flugfélag var þátt­takandi og ekkert sveitar­félag. Árið 2009 hallaði enn undan fæti og aðeins þrír aðilar tóku þátt í verk­efninu. Reynir Kristinsson, stjórnar­formaður Kolviðar, segir að efnahags­hrunið hafi þarna gert útslagið. „Það var heilmikil vakning þarna fyrir hrun, menn töldu jafnvel að fjöl­skyldur myndu taka sig saman og kolefnis­jafna heimilis­bílinn. Ekkert slíkt gerðist hins vegar, efnahags­hrunið hafði slík áhrif að fólk og fyrirtæki höfðu alveg nóg með að borga af skuld­bindingum sínum. Það var svo sem skiljanlegt.“

Landið að rísa

Planta skógiKolviður plantar árlega um 100 þús­und trjá­plöntum til að kolefn­is­jafna starf­semi þeirra fyr­ir­tækja og sam­taka sem hafa gert samn­inga við sjóð­inn.

Eftir því sem frá hruni leið jókst þátttaka í verk­efninu þó hægt og bítandi, en alls ekki í eins miklu mæli og forsvars­menn sjóðsins hefðu viljað sjá. Á síðasta ári voru það ekki nema 30 aðilar sem kolefnis­jöfnuðu starfsemi sína að einhverju eða öllu leyti í gegnum sjóðinn. Reynir segir þó að þar á bæ hafi menn von um bjartari tíma.

„Festa, félag um samfélags­ábyrgð, fór af stað hvað þetta varðar og fékk ríflega 100 fyrirtæki til að skrifa undir loftslags­yfirlýsingu í tengslum við Parísar­samkomu­lagið, í lok árs 2015. Þetta hefur ýtt við fyrir­tækjum, þau hafa látið vinna úttektir á sinni kolefnis­losun og þess vegna höfum við verið að fá þau hægt og bítandi inn í verkefnið hjá okkur. Sum þeirra hafa meira að segja óskað eftir því að kolefnis­jafna sig aftur­virkt, við höfum til dæmis fengið inn fyrirtæki hjá okkur sem óska eftir því að kolefnis­jafna útblástur sinn á árunum 2016 og 2017 á þessu ári. Til þess að vera fyrir­myndar fyrirtæki í samfélags­ábyrgð þurfa þau að tikka í þessi box og því erum við að sjá þau bætast í hópinn.“

Vill að ríkið sýni gott fordæmi

Þrátt fyrir að hægt gangi að fjölga fyrir­tækjum í verk­efninu er staðan þó sú að Kolviður plantar um 100 þúsund trjá­plöntum á ári til að standa við skuld­bindingar sínar um kolefnis­jöfnun þeirra aðila sem taka þátt í samstarfinu. Reynir segir að planta þurfi í ríflega 20 hektara á ári og að í fram­tíðinni muni þurfa einhver hundruð hektara til skóg­ræktar.

Hins vegar séu það vonbrigði að ekki hafi tekist að fá hið opinbera til að taka þátt í verk­efninu. Til hafi staðið að kolefnis­jafna flug­ferðir opinberra starfs­manna en aldrei hafi orðið af því. Þá hafi bílafloti hins opinbera ekki verið kolefnis­jafnaður frá árinu 2007, sem fyrr segir. „Við viljum mjög gjarnan fá ríkið aftur inn í verkefnið, að það kolefnis­jafni starfsemi sína. Bara rekstur bílaflota ríkisins, skipa­floti Landhelgis­gæslunnar og flug opinberra starfs­manna veldur gríðar­legum kolefnis­útblæstri. Ríkið ætlast til þess af fyrir­tækjunum í landinu að þau kolefnis­jafni sig en gengur ekki á undan með góðu fordæmi, alla vega alls ekki í nægilega miklum mæli. Mér finnst hæpið að ætlast til þess að aðrir geri ákveðna hluti en taka svo ekki þátt sjálfur. Það eru tveir aðilar sem við myndum sérstak­lega gjarnan vilja sjá taka þátt. Það eru umhverfis­ráðuneytið og Umhverfis­stofnun. Hvorugur aðilinn hefur hins vegar ljáð því máls.“

Bílaleigur, rútufyrirtæki og flugfélög sitja hjá

Ferða­þjónustu­fyrirtæki hafa í auknum mæli séð hag sinn í því að taka þátt í Kolviði að sögn Reynis. Hins vegar vanti þar inn þá aðila sem mengi langmest, bíla­leigurnar, rútu­fyrirtækin og flug­félögin. „Ég veit ekki með hversu mörgum bíla­leigum við höfum átt fundi en þær hafa þrátt fyrir það ekki hoppað um borð. Það væri mjög æskilegt, og raunar eðlilegt, að þær tækju þátt í þessu verkefni og ég verð að játa að ég er hissa á því að enginn þeirra hafi séð hag sinn í ríða á vaðið, taka þátt í Kolviði og markaðs­setja sig sem grænt fyrirtæki. Við höfum heldur ekki séð rútu­fyrirtækin í verk­efninu og flug­félögin hafa eiginlega verið undan­skilin í allri þessari umræðu, svo undarlegt sem það er.“

Berum öll ábyrgð

Þá eru engin sveitar­félaganna á landinu þátt­takendur í Kolviði og ekki byggða­samlög eða fyrirtæki á þeirra vegum. Þannig kolefnis­jafnar Strætó sig til að mynda ekki í gegnum Kolvið. Útgerðar­fyrirtæki hafa heldur ekki verið þátt­takendur. Reynir segir að þarna sé um aðila að ræða sem í mörgum tilvikum skilji mikið kolefnis­fótspor eftir sig og hvetur þá eindregið til að sýna samfélags­lega ábyrgð og kolefnis­jafna sína starfsemi. „Það skiptir engu máli hversu lítið eða stórt kolefnis­fótsporið er, það geta allir tekið þátt í verk­efninu. Við getum aðstoðað smærri aðila að áætla hversu mikið kolefnis­fótsporið er, við erum með reiknivél á heima­síðunni okkar sem er talsvert notuð. Þegar allt kemur til alls þá berum við öll saman ábyrgð á umhverfi okkar og enginn á að skorast úr leik í þeim efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár