Trump: Fjölmargir kristnir hafa verið teknir af lífi í Miðausturlöndum

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, hefur varið ákvörðun sína um að banna komu fólks til Banda­­ríkj­anna frá sjö ríkjum þar sem múslimar eru í miklum meiri­hluta og hætta móttöku flótta­fólks frá Sýr­landi með röð tísta á Twitter. Þar segir Trump að Banda­ríkin þurfi sterk landamæri og öflugt matsferli á innflytjendum strax. Til að undir­byggja þá skoðun sína biður Trump fólk að horfa á það sem sé að gerast í Evrópu, og raunar í öllum heiminum. Þar sé skelfilegt ástand. Trump bætti síðan við að fjölmargir kristnir einstaklingar hafi verið teknir af lifi í Miðausturlöndum. Það megi ekki leyfa þeim hryllingi að halda áfram. Trump nefnir engin dæmi né tölur máli sínu til stuðnings. Þá tísti Trump einnig um New York Times fjölmiðla­fyrirtækið, og hvatti einhvern sem hefði „getu og sannfæringu“ til þess að kaupa fyrir­tækið, reka það með réttum hætti eða leggja það niður.

Trump undir­ritaði fyrir­skipun um að banna komu fólks til Banda­­ríkj­anna frá sjö ríkjum þar sem múslimar eru í miklum meiri­hluta í gær. Trump hefur einnig fyr­ir­skipað að ekki verið tekið við flótta­fólki frá Sýr­landi.

Íslenskir ráðamenn hafa tjáð sig um aðgerðir Trump í gegnum samfélags­miðla í dag. Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar og heilbrigðis­ráðherra, hvatti alla til að mótmæla aðgerðunum. Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra sagði í stöðu­uppfærslu á Facebook að það væri „for­gangs­mál að berj­ast gegn hryðju­verkum en bar­áttan verður erf­ið­ari og það gerir illt verra ef við mis­munum fólki eftir trú­ar­brögðum eða kyn­þætt­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár