„Það gerir illt verra ef við mismunum fólki eftir trúarbrögðum eða kynþætti“

„Það er for­gangs­mál að berj­ast gegn hryðju­verkum en bar­áttan verður erf­ið­ari og það gerir illt verra ef við mis­munum fólki eftir trú­ar­brögðum eða kyn­þætti.“ Þetta segir Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Á Vísi segir að Guð­laugur Þór hafi stað­fest að til­efni færsl­unnar séu áhyggjur af fyr­ir­skipun Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, um að banna komu fólks til Banda­ríkj­anna frá sjö ríkjum þar sem múslimar eru í miklum meiri­hluta. Trump hefur einnig fyr­ir­skipað að ekki verið tekið við flótta­fólki frá Sýrlandi. Þar segir Guð­laugur einnig að fyr­ir­skipun Trump brjóti í bága við íslensk gildi. „Við munum standa fast á þeim gildum sem við stöndum fyrir og munum halda því áfram."

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og með­limur í utan­rík­is­mála­nefnd, hefur óskað eftir því að fundur verði haldin í nern­fdinni hið fyrsta með utan­rík­is­ráð­herra til að ræða aðgerðir Banda­ríkja­for­seta. Í til­kynn­ingu segir: „Ósk um fund­inn með utan­rík­is­ráð­herra er til að ræða við­brögð ann­arra ríkja og ekki síst hver við­brögð íslenskra stjórn­valda verði; bæði út frá sam­skiptum þjóð­anna og mann­rétt­inda­sjón­ar­miðum sem og hags­munum á borð við flug­sam­göngur.“ Guð­laugur Þór segir sjálf­sagt að funda með nefnd­inni um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár