„Engin laus orka“ í vinnslukerfi Landsvirkjunar

Lands­virkjun getur ekki tjáð sig um orku­vinnslu annarra fyrir­tækja „en ef lausa orku er að finna á raforku­markaðnum þá er hana að finna hjá einhverjum öðrum aðila en Lands­virkjun,“ segir framkvæmda­stjóri hjá Lands­virkjun.

Vatnsárið var gott austanlands og Hálslón Kárahnjúkavirkjunar fylltist í haust. Aðra sögu er að segja af vatnsbúskapnum sunnanlands.
Vatns­árið var gott aust­an­lands og Hálslón Kára­hnjúka­virkj­unar fyllt­ist í haust. Aðra sögu er að segja af vatns­bú­skapnum sunn­an­lands. Mynd: east.is

Það kemur Gunnari Guðna Tómassyni, framkvæmda­stjóra vatnsafls hjá Lands­virkjun, „verulega á óvart“ að í aðsendri grein forstjóra Orkuveitu Reykja­víkur á Vísi í gær skuli fjallað um vatns­búskap og skerðingar Lands­virkjunar og „ýjað að því að til sé næg vinnslu­geta í raforku­kerfi lands­manna til að fullnægja orku­skiptum fram­tíðarinnar“.

Gunnar Guðni skrifar í grein sem birt var á Vísi í morgun, laugardag, að mikilvægt sé að vanda alla umræðu sem snýr að orku­öryggi þjóðarinnar og hvernig sé hægt að tryggja „nauðsynleg orku­skipti fram­tíðarinnar og jafnframt að byggja þá umræðu á stað­reyndum“.

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykja­víkur, skrifaði í grein sinni á Vísi að að stutta svarið við spurningunni um hvort rafmagns­skortur væri á Íslandi, væri já – annars þyrfti ekki að skerða afhendingu á rafmagni til stór­notenda. „Ástæðan er ekki sú að það vanti fleiri og stærri virkj­anir heldur fyrst og fremst skortur á vatni til að keyra þær.“ Ekki væri nóg að byggja nýja vatns­afls­virkjun eða reisa vind­myllur til að koma í veg fyrir skerð­ingu á raf­magni eða að olía sé notuð í fiski­mjöls­verk­smiðj­um. Raf­magns­vinnsla úr vatni eða vindi væri sveiflu­kennd. “Meðan við stýrum ekki veðr­inu verða sveiflur í afköstum vatns­afls­virkj­ana og vind­myllna.“

Að halda því fram að „virkja þurfi ósköpin öll og virkja strax til að við eigum rafmagn á bílana okkar“ hafi verið jafn rangt á meðan þrengingar voru í efnahags­lífinu vegna heims­faraldurs og það væri nú.

Gunnar Guðni bendir á að Lands­virkjun vinni og selji yfir 70 prósent af raforku á Íslandi og reki stærsta vinnslu­kerfi landsins, kerfi sem „forstjóri OR virðist hafa miklar skoðanir á hvernig hægt sé að reka“.

Staðreyndin sé sú að orku­vinnslu­kerfi Lands­virkjunar er full selt um þessar mundir. Viðskipta­vinir hafi hins vegar ákveðinn sveigjanleika, mismikinn eftir samningum, til að fullnýta ekki samningana þegar illa árar hjá þeim. Á móti hefur Lands­virkjun sveigjanleika til skerðinga þegar illa árar í vatns­búskapnum. „Orku, sem er þegar samnings­bundin viðskipta­vinum, er ekki hægt að nýta í orku­skipti fram­tíðarinnar.“

Mikil eftir­spurn er nú eftir raforku í landinu og hefur hún vaxið mjög hratt undan­farnar vikur og mánuði. „Með þessari miklu eftir­spurn eftir raforku er vinnslu­kerfi Lands­virkjunar fullselt og í raun er veruleg umfram­eftirspurn eftir raforku um þessar mundir sem ekki er hægt að mæta,“ skrifar Gunnar. „Þetta á við jafnvel þótt vatns­búskapur væri eins og í meðalári og vinnslu­geta Lands­virkjunar væri óskert.“

Við núverandi aðstæður sé því engin laus orka í vinnslu­kerfi Lands­virkjunar. „Við hjá Lands­virkjun getum ekki tjáð okkur um orku­vinnslu annarra fyrir­tækja á raforku­markaði á Íslandi. En ef lausa orku er að finna á raforku­markaðnum þá er hana að finna hjá einhverjum öðrum aðila en Lands­virkjun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár