Eiginkona forsætisráðherra afskrifar kosningasvindl hjá SUS

„Ég gef ekkert fyrir þetta tal um svindl,“ skrifar Þóra Margrét Baldvins­dóttir, eiginkona Bjarna Benedikts­sonar, á Facebook. Róbert Trausti Árnason, fyrr­verandi sendi­herra, telur deilur unglið­anna endur­spegla dýpri innan­flokksátök í Sjálfstæðis­flokknum milli stuðnings­manna Bjarna og Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar.

Þóra og Bjarni
Þóra og Bjarni Eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra blandar sér reglu­lega í póli­tíska umræðu. Mynd: Pressphotos / Geiri

Þóra Margrét Baldvins­dóttir, eiginkona forsætis­ráðherra og hönnunar­ráðgjafi, tjáir sig um harðvítugar deilur ungliða Sjálfstæðis­flokksins á Facebook og gerir lítið úr ásökunum þess efnis að annað framboðið hafi svindlað í formanns­kjöri á þingi Sambands ungra sjálfstæðis­manna sem fram fór síðustu helgi.

Tilefnið er pistill eftir Róbert Trausta Árnason, frétta­stjóra Hringbrautar og fyrr­verandi sendi­herra og ráðuneytis­stjóra, þar sem meðal annars er fullyrt að deilur unglið­anna opinberi átök og togstreitu milli stuðnings­manna Bjarna Benedikts­sonar og Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar sem kraumi undir niðri í flokknum.

„Gef ekkert fyrir þetta tal um svindl“

„Margt skrýtið við aðdrag­anda þessa þings og mér fannst eiginlega bæði framboð fara fram úr sér. Lögheimilis­flutningar verða ekkert betri við það að báðir beiti slíkri aðferð og léttvægt að tala um að það sé ekki bannað,“ skrifar Þóra Margrét.„Það eitt að meira en 400 manns mættu á Eskifjörð sýnir hvað gekk á. Ég gef ekkert fyrir þetta tal um svindl, sé ekki að það sé innistæða fyrir því.“ 

Róbert, sem sjálfur hefur unnið sem eftirlits­maður við framkvæmd kosninga í vanþróuðum ríkjum, fullyrðir að framið hafi verið kosninga­svindl á sambands­þingi SUS og ábyrgðin liggi meðal annars hjá Áslaugu Örnu Sigurbjörns­dóttur, þingkonu Sjálfstæðis­flokksins og formanni allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis, og Laufeyju Rún Ketils­dóttur, aðstoðar­manni dómsmála­ráðherra. Báðar sátu í stjórn sambandsins þegar þingið var haldið og Laufey gegndi formennsku. Fram­bjóðendur til formanns voru þeir Ingvar Smári Birgisson og Ísak Einar Rúnarsson, en Ingvar bar sigur úr býtum. 

Ásakanir á báða bóga

Ásakanir hafa gengið á milli fram­bjóðendanna í fjöl­miðlum, meðal annars um aðstöðu­brask við skipulagningu sambands­þingsins og óeðlilega lögheimilis­flutninga á milli sveitar­félaga. Eftir að þinginu lauk hafa svo stuðnings­menn Ísaks gagnrýnt kjörbréfa­nefnd harðlega fyrir að hafa beðið tiltekna þing­fulltrúa um að staðfesta lögheimilis­skráningu sína og lýsa húsa­kynnum sínum. Þetta hafi fyrst og fremst beinst gegn stuðnings­mönnum Ísaks og þannig gagnast framboði Ingvars Smára.

Stuðnings­menn þess síðarnefnda hafna þessari gagnrýni. Davíð Þorláksson, forseti sambands­þingsins, fullyrðir á umræðu­þræðinum sem hér er vitnað til að engum ungliða hafi verið neitað um að kjósa á þinginu vegna lögheimilis­flutninga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár