Erfið stemning í þingveislu á Bessastöðum í gær – myndir

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Miðflokksins, lét sig ekki vanta í þing­veislu á Bessa­stöðum í gær. Samflokks­menn hans, þeir Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson mættu ekki en greint hefur verið frá því að forseti þingsins hafi látið þau boð út ganga að nærveru þeirra væri ekki óskað.

Ráðherradans
Ráð­herra­dans Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Sigríður Anderson dóms­mála­ráð­herra létu sig ekki vanta í veisl­una sem fór fram á meðan vindar geisuðu.

Þingmenn fjöl­menntu í þing­veislu á Bessa­stöðum, sem haldin er árlega í tilefni af fullveldis­deginum, í gær. Andrúms­loftið mun hafa verið litað af uppljóstrunum síðustu daga en tveir þingmenn Miðflokksins, þeir Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson, létu ekki sjá sig í veislunni. Vísir og Eyjan hafa greint frá því í morgun að Stein­grímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, hafi komið þeim skila­boðum á framfæri að beiðni Guðna Th. Jóhanns­sonar, forseta, að nærveru þeirra væri ekki óskað 

Forseti hóf veisluhöld á því að ræða fílinn í herberginu, þ.e. mál málanna og hin ógeð­felldu ummæli sem þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins létu falla á Klaustur bar þann 20. nóvember, og Stundin hefur fjallað um með ítarlegum hætti. Þingmenn sem Stundin hefur rætt við segja að þetta hafi hjálpað til við að að gera erfiða samkomu bærilegri, en stemningin var eins og gefur að skilja ekki sú besta.

Sigmundur Davíð Guðmundsson, þingmaður Miðflokksins, og einn þeirra sem lét óviðurkvæmileg orð falla á Klaustri bar, lét sig ekki vanta þó að félagar hans hafi ekki mætt, en hann ku hafa verið „hress og sprækur líkt og hann væri hrókur alls fagnaðar,“ eins og einn viðmælandi komst að orði. „En það var hann ekki,“ segir sá hinn sami. 

Þing­heimur lék á reiði­skjálfi í gær og fundað var á öllum hæðum Alþingis vegna málsins. Hegðun og tungutak þing­mannanna þykir ekki til þess fallið að auka veg og virðingu Alþingis sem hefur átt við tölu­verðan ímyndar­vanda að stríða síðustu ár. Þing­veislan, sem haldin var í skugga uppljóstrananna, fór fram í vindasömu veðri eins og meðfylgjandi myndir sína. 

Simmi sprækurSig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, var hress og sprækur í veisl­unni í gær, en sam­flokks­menn hans, þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason, mættu ekki. Anna Kolbrún Árna­dóttir, sam­flokks­kona hans, kom einnig í boðið.
Fordæmir ummælinLogi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur gagn­rýnt þá þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins sem töl­uðu með niðr­andi hætti um konur.
Forseti kom skila­boðum áleiðisStein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, mun hafa komið þeim skila­boðum áleiðis til þing­mann­anna Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar að nær­veru þeirra væri ekki óskað í veisl­unni.
Storma­samir tímar á þingiVeðrið lék ekki við þing­menn og ráð­herra þegar þeir yfir­gáfu þing­veisl­una, en Sigríður Andersen inn­an­rík­is­ráð­herra mætti líkt og aðrir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar.
Sæmileg stemn­ingHalldóra Mogensen, þing­maður Pírata, yfir­gefur þing­veisl­una á Bessa­stöðum þar sem stemn­ingin var eftir atvikum sæmi­leg.
Allra veðra vonÁsmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra mætti eins og aðrir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar í þing­veisl­una á Bessa­stöðum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár