Borguðu ekkert fyrir þyrlufyrirtæki sem skilar tugmilljóna hagnaði

Eigendur fjár­festingar­félagsins Sunds seldu stærsta þyrlu­fyrirtæki landsins út úr félaginu áður en það varð gjald­þrota. 120 milljóna króna lán frá Sundi er inni í nær gjald­þrota félaginu. Norður­flug hefur hagnast um 160 milljónir á tveimur árum. Skipta­stjóri Sunds hefur fengið viðskiptunum rift.

120 milljónir bárust ekki
120 millj­ónir bár­ust ekki Fyr­ir­tækið BF Holding ehf. keypti nærri 70% hluta­fjár í þyrlu­fyr­ir­tæk­inu Norð­ur­flugi á 120 millj­ónir og var veitt selj­enda­lán til kaupanna. Þessi greiðsla barst hins vegar aldrei inn í þrotabú Sunds en eig­endur Norð­ur­flugs í dag eru fyrr­ver­andi eig­endur Sunds.

Þyrlu­fyrirtæki kaupsýslu­mann­anna sem stóðu að fjárfest­ing­ar­félaginu Sundi á árun­um fyrir hrunið hefur skilað 160 milljóna króna hagnaði á síðustu tveimur árum. Fyrir­tækið heitir Norður­flug og er stærsta og þekktasta þyrlu­leiga landsins. Eigendur Norður­flugs eru meðal annars þeir Páll Þór Magnússon, fyrr­verandi fram­kvæmdastjóri Sunds, Páll Kristjánsson og Birgir Ómar Haralds­son sem allir voru hluthafar og/eða stjórnar­menn í Sundi á sínum tíma fyrir hrunið.  Þetta kemur fram í ársreikningi fyrir­tækisins fyrir árið í fyrra. 

Greiddu ekkert fyrir Norðurflug 

Hluthafar Norður­flugs greiddu hins vegar ekki neitt fyrir 2/3 hluta hlutafjár í fyrir­tækinu þegar þeir keyptu hluta­bréfin út úr Sundi ehf., síðar Icecapital ehf., í desember árið 2008, skömmu eftir hrunið. Sund stefndi þá í gjaldþrot og höfðu þáverandi eigendur félagsins, sem síðar eignuðust Norður­flug, aukið hlutafé Norður­flugs með peningum frá Sundi samkvæmt skipta­stjóra 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár