Boeing hægir á framleiðslu um 20 prósent - Áhrifa mun gæta víða

Flugvéla­fram­leiðandinn Boeing mun hægja á fram­leiðslu véla af 737 gerð, vegna rannsókna og banns við notkun á vélunum, eftir tvö hörmuleg flugslys.

Flugvéla­fram­leiðandinn Boeing hefur ákveðið að draga úr fram­leiðslu á vélum af 737 gerð - þar á meðal Max 8 og Max 9 - vegna rannsókna á flug­slysunum í Eþíópíu og Indónesíu, þar sem 346 samtals létu lífið.

Notkun á 737 Max vélunum hefur verið bönnuð á meðan rannsókn stendur yfir á slysunum. Samkvæmt umfjöllun Seattle Times mun ákvörðun Boeing um að draga úr fram­leiðslu hafa víðtæk áhrif á flug­iðnaðinn, og þá einkum flugfélög sem reiða sig á að fá nýjar vélar flugvéla­fram­leiðandans til notkunar á næstu mánuðum.

Ekki er gert ráð fyrir uppsögnun í risa­vöxnum starfs­stöðvum Boeing í Renton, í útjaðri Seattle, en þar starfa tæplega 80 þúsund manns. Ástæðan er sú að félagið þarf að geta brugðist skjótt við, ef það tekst að koma fram­leiðslunni í full afköst á nýjan leik.

Líklegt er að Boeing muni ekki geta staðið við afhendingar á flugvélum af fyrr­nefndri gerð næstu mánuðina, og því munu flugfélög þurfa að leita annarra leiða til að ná í vélar til að geta þjónustað viðskipta­vini og standa við áætlanir.

Icelandair er eitt þeirra flug­félaga sem hefur tekið vélar af 737 Max gerð úr notkun, en félagið tók þrjár vélar úr umferð í kjölfar flug­slyssins í Eþíópíu, en flugmála­yfirvöld víða um heim brugðust við með banni við notkun á vélunum.

Icelandair hefur sagt að félagið geti til skemmri tíma leyst vandann með leigu á öðrum vélum, og hefur nú þegar brugðið til þess ráðs. Félagið hefur gengið frá leigu á tveim­ur Boeing 767-breið­þotum út sept­em­ber, en það var gert til að tryggja að flugáætl­un fé­lags­ins rask­ist sem minnst vegna kyrr­setn­ing­ar Boeing 737 MAX-véla sem fé­lagið hafði áður fest kaup á.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­inn­ar, í byrjun mánaðarins, kem­ur fyrri vél­in í rekst­ur um miðjan apríl, en sú síðari snemma í maí. Verða þær í rekstri út sept­em­ber. Vél­arn­ar eru 262 sæta flug­vél­ar með tveim­ur far­rým­um. 

Til lengri tíma - ef það dregst á langinn að Boeing geti afhent nýjar vélar til viðskipta­vina - þá gæti Icelandair lent í vandræðum með að fylla flugflota sinn miðað við áætlanir, eins og fleiri flugfélög sem hafa reitt sig á það að fá nýjar vélar afhentar frá Boeing á næstu mánuðum.

Rannsókn bendir til galla

Eins og greint var frá í gær þá fylgdu flug­menn Ethi­opian Air­line, sem stýrðu 737 Max 8 vél félags­ins sem hrap­aði með skelfi­legum afleið­ing­um, nákvæm­lega fyr­ir­mælum frá flug­véla­fram­leið­and­anum Boeing, þegar þeir reyndu að reisa flug­vél­ina við, en allt kom fyrir ekki.

Sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðu rann­sóknar í Eþíópíu þá bendir allt til þess að flug­vélin hafi ekki virkað eins og hún átti að gera - og þá einkum MCAS kerfið sem á að koma í veg fyrir ofris - og því hafi vélin sífellt tog­ast neðar og neð­ar, og að lokum orsakað brot­lend­ingu með þeim afleið­ingum að allir um borð létu­st, 157 tals­ins.

Flug­menn­irnir eru sagðir hafa reynt að aftengja kerfið og gripið til réttra aðgerða, en ekk­ert hafi virk­að.

Nið­ur­staðan er sögð „martrað­ar­út­koma“ (night­marish outcome) fyrir Boeing, en fjallað var um rann­sókn­ina á for­síðu Seattle Times í gær.

Í umfjöllun blaðs­ins, sem Dom­inic Gates, sér­hæfður blaða­maður á sviði flug­mála, skrif­ar, hefur komið fram að mikil fram­leiðslu­pressa hafi verið á Boeing, ekki síst vegna þess hve krefj­andi hafi verið fyrir félagið að standa við afhend­ingar á Max vél­um. Í umfjöllun blaðs­ins hefur komið fram að Boeing sé nú að end­ur­skoða allar leið­bein­ingar til flug­manna og flug­fé­laga, og yfir­fara örygg­is­kerfi.

Tekið er fram að nýlegar upp­færslur á kerfum og hug­bún­aði eigi að koma í veg fyrir að svona upp­á­komur geti end­ur­tekið sig, en ef þessi nið­ur­staða frum­rann­sókna verður stað­fest end­an­lega, hjá flug­mála­yf­ir­völdum í Eþíópíu og einnig í Indónesíu, þar sem 189 lét­ust í 29. októ­ber í fyrra, þá gæti Boeing átt von á miklum og þungum afleið­ing­um, ekki aðeins í formi mál­sókna, notk­un­ar­banna á flug­vélum félags­ins og sekt­ar­greiðslna, heldur gæti þurft að gjör­breyta fram­leiðslu­ferlum, og flug­fé­lög sem reiða sig á vélar félags­ins - ekki síst af fyrr­nefndri Max gerð - gætu þurft að bíða lengi eftir því að geta fengið vélar afhentar til notk­un­ar.

Nýr bandarískur hluthafi

Banda­ríski fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn PAR Capi­tal Mana­gement hefur gert bind­andi sam­komu­lag um að kaupa 11,5 pró­sent hlut í Icelandair Group. Fyr­ir­vari er um sam­þykki hlut­hafa Icelanda­ir. Eftir kaupin verður sjóð­ur­inn annar stærsti hlut­hafi félags­ins á eftir Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna, sem á 12,88 pró­sent í flug­fé­lag­in­u.

Rekstur Icelandair hefur verið erfiður að undan­förnu og tapaði félagið 6,8 milljörðum króna á síðustu þremur mánuðum síðasta árs. Í lok árs var eiginfjár­staða félagsins upp á 55 milljarða króna, og skuldirnar námu 110 milljörðum.

PAR Capi­tal á meðal ann­ars yfir 5 pró­sent hlut í einu stærsta fyr­ir­tæki heims á sviði bók­unar í ferða­þjón­ustu, Expedia, en auk þess á sjóð­ur­inn nokkuð stóra eign­ar­hluti í flug­fé­lög­um, eins og Sout­hwest, Alaska Air­lines, Delta og United Continental. Öll þessi félög hafa nýtt vélar frá Boeing í sinni þjón­ustu, og glíma því með einum eða öðrum hætti við þau vanda­mál sem flug­slysin tvö, og rann­sóknir á ástæðum þeirra, hafa kallað fram.

Boeing er stærsti vinnu­veit­andi Seattle svæð­is­ins en flestir eru þeir á starfs­svæði félags­ins í Rent­on. Félagið er 103 ára gam­alt, en sagan teygir sig þó yfir 123 ár.

Mark­aðsvirði Boeing hefur sveifl­ast nokkuð und­an­farin miss­eri, en það nemur nú 222 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 26 þús­und millj­örðum króna.

Dennis Mui­len­burg, for­stjóri félags­ins, hefur sagt að félagið munið kafa ofan í öll atriði sem rann­saka þarf, vegna flug­slysanna tveggja, og vinna í sam­starfi við flug­mála­yf­ir­völd í hverju landi fyrir sig, eins og þarf. Hann hefur sagt að Boeing sé leið­andi í flugi í heim­in­um, og því fylgi mikil ábyrgð. Öryggið þurfi að vera í far­ar­broddi, og þannig verði það áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár