„Martraðarniðurstaða“ fyrir Boeing

Fyrstu niður­stöður úr rann­sóknum á flug­slysinu í Eþíópíu, þar sem 157 létu lífið, benda til þess að búnaður í Boeing þotunum hafi ekki virkað, og að viðbrögð flugmanna hafi ekki verið röng heldur - það hafi einfald­lega ekki virkað að taka stjórnina.

Flugmenn Ethiopian Airline, sem stýrðu 737 Max 8 vél félagsins sem hrapaði með skelfi­legum afleiðingum, fylgdu nákvæmlega fyrir­mælum frá flugvéla­fram­leiðandanum Boeing, þegar þeir reyndu að reisa flug­vélina við, en allt kom fyrir ekki.

Samkvæmt frum­niðurstöðu rann­sóknar í Eþíópíu þá bendir allt til þess að flugvélin hafi ekki virkað eins og hún átti að gera - og þá einkum MCAS kerfið sem á að koma í veg fyrir ofris - og því hafi vélin sífellt togast neðar og neðar, og að lokum orsakað brot­lendingu með þeim afleiðingum að allir um borð létust, 157 talsins.

Flug­mennirnir eru sagðir hafa reynt að aftengja kerfið og gripið til réttra aðgerða, en ekkert hafi virkað.

Niður­staðan er sögð „martraðar­útkoma“ (nightmarish outcome) fyrir Boeing, en fjallað er um rann­sóknina á forsíðu Seattle Times í dag.

Í umfjöllun blaðsins, sem Dominic Gates, sérhæfður blaða­maður á sviði flugmála, skrifar, hefur komið fram að mikil framleiðslu­pressa hafi verið á Boeing, ekki síst vegna þess hve krefjandi hafi verið fyrir félagið að standa við afhendingar á Max vélum. Í umfjöllun blaðsins hefur komið fram að Boeing sé nú að endur­skoða allar leið­beiningar til flugmanna og flug­félaga, og yfirfara öryggis­kerfi.

Tekið er fram að nýlegar uppfærslur á kerfum og hugbúnaði eigi að koma í veg fyrir að svona uppákomur geti endur­tekið sig, en ef þessi niður­staða frum­rannsókna verður staðfest endanlega, hjá flugmála­yfirvöldum í Eþíópíu og einnig í Indónesíu, þar sem 189 létust í 29. október í fyrra, þá gæti Boeing átt von á miklum og þung afleiðingum, ekki aðeins í formi málsókna, notkunar­banna á flugvélum félagsins og sektar­greiðslna, heldur gæti þurft að gjör­breyta framleiðslu­ferlum, og flugfélög sem reiða sig á vélar félagsins - ekki síst af fyrr­nefndri Max gerð - gætu þurft að bíða lengi eftir því að geta fengið vélar afhentar til notkunar.

Icelandair er eitt þeirra félaga sem þurfti að taka þrjár vélar af Max gerð úr notkun, vegna banns við notkun á vélunum, en það getur leyst vanda­málin til skemmri tíma.

Til lengdar, eftir því sem bann við notkun dregst á langinn, þá gæti orðið erfitt fyrir flugfélög sem hafa gert ráð fyrir Max vélum til notkunar, að leysa vanda­málin með leigu á öðrum vélum.

Bandaríski fjár­festingar­sjóðurinn PAR Capital Management hefur gert bindandi samkomulag um að kaupa 11,5 prósent hlut í Icelandair Group. Fyrirvari er um samþykki hluthafa Icelandair. Eftir kaupin verður sjóðurinn annar stærsti hluthafi félagsins á eftir Lífeyris­sjóði verslunar­manna, sem á 12,88 prósent í flug­félaginu.

PAR Capital á meðal annars yfir 5 prósent hlut í einu stærsta fyrirtæki heims á sviði bókunar í ferða­þjónustu, Expedia, en auk þess á sjóðurinn nokkuð stóra eignar­hluti í flug­félögum, eins og Southwest, Alaska Airlines, Delta og United Continental. Öll þessi félög hafa nýtt vélar frá Boeing í sinni þjónustu, og glíma því með einum eða öðrum hætti við þau vandamál sem flug­slysin tvö, og rann­sóknir á ástæðum þeirra, hafa kallað fram.

Boeing er stærsti vinnu­veitandi Seattle svæðisins, með tæplega 80 þúsund starfs­menn, en flestir eru þeir á starfs­svæði félagsins í Renton. Félagið er 103 ára gamalt, en sagan teygir sig þó yfir 123 ár.

Markaðs­virði Boeing hefur sveiflast nokkuð undan­farin misseri, en það nemur nú 222 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 26 þúsund milljörðum króna.

Dennis Muilenburg, forstjóri félagsins, hefur sagt að félagið munið kafa ofan í öll atriði sem rannsaka þarf, vegna flug­slysanna tveggja, og vinna í samstarfi við flugmála­yfirvöld í hverju landi fyrir sig, eins og þarf. Hann hefur sagt að Boeing sé leiðandi í flugi í heiminum, og því fylgi mikil ábyrgð. Öryggið þurfi að vera í farar­broddi, og þannig verði það áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár