280 þúsund manns dáið úr of stórum skammti á 5 árum

Gífurleg aukning hefur verið á dauðsföllum úr of stórum skammti vímuefna. Tölur um dauðsföll á Íslandi hjá ungum fíklum þykja „ógnvekjandi“.

Ógnvekjandi faraldur er nú í Banda­ríkjunum, þar sem þeim fjölgar sífellt sem deyja úr of stórum skammti vímuefna.

Í fyrra létust um 71 þúsund einstaklingar í Banda­ríkjunum úr of stórum skammti vímuefna, en það er fjölgun um sjö þúsund manns frá árinu 2016, samkvæmt upplýsingum Heilbrigðis­stofnunar Banda­ríkjanna (NIH).

Faraldur

Segja má að algjör faraldur sé nú ríkjandi í Banda­ríkjunum vegna þeirrar gífurlegu fjölgunar dauðsfalla sem rekja má til vímuefna, og aukningin er ekki síst vegna mikillar fjölgunar einstaklinga sem neyta sterkra ópíóíða (morfín og oxycontine).

Á einungis fimm árum, 2013, 2014, 2015, 2016 og 2017, hafa dáið 280 þúsund einstaklingar í Banda­ríkjunum úr of stórum skammti.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur þegar lýst því yfir að vandinn sé meðhöndlaður sem neyðar­vandi, innan stofnanna Bandaríkja­stjórnar sem koma að málum með einum eða öðrum hætti. Borgir Banda­ríkjanna hafa einnig gripið til meira samstarf með heilbrigðis­yfirvöldum, meðal annars til að koma meira til móts við sprautu­fíkla.

Ógnvekjandi aukning á Íslandi

Aukning á dauðsföllum meðal ungra fíkla á Íslandi hefur einnig verið „ógnvekjandi“ að mati Þórarins Tyrfings­sonar, yfir­læknis, en hann fjallaði um stöðu mála á Lækna­dögum.

Samtals létust 32 áfengis- og vímuefna­sjúklingar sem voru undir fertugu á árinu 2017, þar af voru 14 yngri en 30 ára. Á árinu 2016 voru sömu tölur 27 og 9. Þetta eru hræðilegar tölur og miklu hærri en við höfum séð áður. „Þetta má að miklu leyti rekja til aukningar á fjölda ungra sjúklinga sem eru að nota sterka ópíóíða í æð (contalgin og oxycodone),“ segir á vef SÁÁ, þar sem vitnað er til erindis Þórarins. „Hvað dauðsföllin varðar hafa þau verið miklu færri allt frá árinu 2000 meðal þeirra sem eru yngri en 40 ára. Í aldurs­hópnum undir 30 ára skera fjögur ár sig úr; árin 2000, 2001, 2014 og nú 2017 sem er versta árið með 14 dauðsföll hjá þeim sem eru 29 ára og yngri. Fíkn í sterkari ópíóíða (morfin og oxycontine) byrjar að vaxa aftur árið 2013 og nær áður óþekktri stærð með 166 einstaklingum árið 2016. Yfir 80% þessara sjúklinga nota þessi vímuefni í æð,“ segir á vef SÁÁ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár