Tók nokkra klukkutíma að selja 20 prósent hlut í Íslandsbanka sem er 49 milljarða virði

„Hæfir fjár­festar“ hafa þegar skráð sig fyrir þeirri lágmarks­stærð sem var boðin til sölu í Íslands­banka fyrr í dag. Tilkynnt verður um niður­stöðu sölu­ferlis fyrir opnun markað á morgun. Þá kemur í ljós hvað Bjarni Benediktsson ákvað að selja stóran hlut.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur kom fram að hún ætlaði sér að selja eignarhluti í bönkum á kjörtímabilinu.
Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur kom fram að hún ætl­aði sér að selja eign­ar­hluti í bönkum á kjör­tíma­bil­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Íslands­banki birti tilkynningu í Kauphöll Íslands sem er tímasett 19:35 í kvöld þar sem greint er frá því að umsjónar­aðilar sölu­ferlis á að minnsta kosti 20 prósent hlut í bankanum hafi þegar móttekið áskriftir fyrir þeirri lágmarks­stærð. Miðað við dagsloka­gengi þá var virði þess hlutar að minnsta kosti 48,8 milljarðar króna. Tilkynnt var um að sölu­ferlið væri hafið klukkan 16:11 í dag og því tók rúma þrjár klukku­tíma að finna kaupendur að hlutnum.

Almennum fjár­festum stendur ekki til boða að taka þátt í viðskiptunum heldur var ákveðið að sölu­fyr­ir­komu­lagið yrði með til­boðs­ferli til inn­lendra og erlendra hæfra fagfjár­festa. Það þýðir að almenningi býðst ekki að kaupa hlut.

Ákvörðun um útboðs­gengi og end­an­legan hlut sem seldur verður mun á end­anum verða í höndum Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra en tilkynnt verður um hana fyrir opnun markaða í fyrra­málið.

Ætla að selja eftirstandandi hlut fyrir lok næsta árs

Mark­aðsvirði Íslands­banka við lokun mark­aða í dag var 244 millj­arðar króna. Rík­is­sjóður seldi 35 pró­sent hlut fyrir aðeins hærri upp­hæð, 55,3 millj­arða króna, í fyrra­sum­ar. Mark­aðsvirði þess hlutar nú er um 85,4 millj­arðar króna og hann því hækkað um rúm­lega 30 millj­arða króna frá því að rík­is­sjóður seldi.

Rík­is­stjórnin ákvað, eftir að hún fékk endurnýjað umboð í kosningum í fyrra­haust, að selja eftir­standandi 65 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Íslands­banka á næstu tveimur árum. Greint var frá því í fjár­laga­frumvarpi hennar í lok nóvember í fyrra að til stæði að selja um helm­ing útistand­andi hlutar rík­is­ins sum­arið 2022 og að ríkið reikni með að fá um 75 millj­arða króna fyrir hann. Það sem eftir stæði yrði svo selt 2023 ef mark­aðs­að­stæður yrðu ákjós­an­leg­ar.

Hlutur rík­is­sjóðs mun fara niður í að minnsta kosti 45 pró­sent eftir sölu­ferlið sem sett var á stað í dag.

Til­kynnt var um það síð­degis á föstu­dag að Bjarni hefði ákveðið að hefja fram­hald sölu­­með­­­ferðar á hlutum í Íslands­­­banka í sam­ræmi við til­­lögu Banka­­sýslu rík­­is­ins frá 20. jan­úar síð­­ast­liðn­­­um. Ráð­herr­ann sendi Banka­­sýsl­unni bréf um ákvörð­un­ina þann dag.

Mik­ill hagn­aður í fyrra og stefnt á tugmilljarða útgreiðslur

Íslands­­­­­banki hagn­að­ist um 23,7 millj­­­arðar króna á árinu 2021. Arð­­­semi eigin fjár var 14,2 pró­­­sent og sem var vel yfir tíu pró­­­sent mark­miði bank­ans. Kostn­að­­­ar­hlut­­­fall bank­ans lækk­­­aði úr 54,3 pró­­­sent í 46,2 pró­­­sent milli ára.

Eigið fé Íslands­­­­­banka var 203,7 millj­­­arðar króna um síð­­­­­ustu ára­­­mót og eig­in­fjár­­­hlut­­­fall bank­ans 25,3 pró­­­sent. Útlán til við­­­skipta­vina Íslands­­­­­banka juk­ust um 7,9 pró­­­sent á síð­­­asta ári. Þá aukn­ingu má að mestu rekja til auk­inna umsvifa á hús­næð­is­­­mark­aði. Vaxta­munur bank­ans var 2,4 pró­­­sent. Hreinar vaxta­­­tekjur voru 34 millj­­­arðar króna og hækk­­­uðu um tvö pró­­­sent milli ára. Þókn­ana­­­tekjur hækk­­­uðu hins vegar um 22,1 pró­­­sent og voru sam­tals 12,9 millj­­­arðar króna.

Á grund­velli þess­­­arar afkomu var ákveðið að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­­­arða króna í arð. Þar af fóru 65 pró­­­sent til stærsta ein­staka eig­and­ans, íslenska rík­­­is­ins, eða rúm­­­lega 7,7 millj­­­arðar króna. Þeir sem eiga 35 pró­­­sent hlut í bank­­­anum fengu svo sam­an­lagt tæpa 4,2 millj­­­arða króna í arð­greiðslu. Auk þess stefnir stjórn bank­ans að því að greiða út 40 millj­­­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uð­­­um. Sú veg­­­ferð hófst með því að aðal­­fundur bank­ans sam­­þykkti að hefja end­­­ur­­­kaup á bréfum fyrir 15 millj­­­arða króna á næstu mán­uð­­­um.

Almenningur á móti sölu

Skoðana­kannanir hafa ítrekað sýnt að ekki sé meirihluta­vilji hjá almenningi fyrir því að selja eignar­hluti ríkisins í bönkum. Í hvítbók um fjármála­kerfið sem birt var í lok árs 2018 var ein helsta nið­ur­staðan að traust þyrfti til svo fjármála­kerfið myndi virka sem skyldi. Í könnun sem gerð var við gerð Hvít­bók­ar­innar kom fram að 61,2 pró­­sent lands­­manna væri jákvæður gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka. Ein­ungis 13,5 pró­­sent þeirra voru nei­­kvæðir gagn­vart því og 25,2 pró­­sent höfðu ekki sér­­staka skoðun á því.

Í könnun sem Gallup gerði snemma á síðasta ári fyrir ASÍ kom fram að kjós­endur eins flokks, Sjálf­stæð­is­flokks, væru fylgj­andi sölu Íslands­banka. Kjós­endur allra ann­arra flokka voru að meiri­hluta á móti henni. Um 56 pró­sent lands­manna voru á móti henni og 23 pró­sent þeirra fylgj­andi.

Í könnun sem Gallup gerði um traust til helstu stofnana samfélagsins og birt var í byrjun mánaðar kom fram að banka­kerfið nýtur næst minnst trausts af þeim sem spurt var um, en 23 prósent lands­manna sögðust bera traust til þess. Traustið dróst saman milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár