Ríkið selur að minnsta kosti 20 prósent í Íslandsbanka fyrir opnun markaða á morgun

Í dag var tilkynnt um að söluferli á að minnsta kosti 20 prósent hlut í Íslands­banka væri hafið, og að tilkynnt yrði um niður­stöðu þess á morgun fyrir opnun markaða. Íslenska ríkið verður minnihluta­eigandi í bankanum þegar viðskiptin eru frágengin.

Bjarni Benediktsson tekur lokaákvörðun um útboðsgengi og hversu mikið verður selt.
Bjarni Bene­dikts­son tekur loka­á­kvörðun um útboðs­gengi og hversu mikið verður selt. Mynd: Bára Huld Beck

Banka­sýsla ríkisins hefur sett af stað söluferli á að minnsta kosti 20 prósent hlut ríkis­sjóðs í Íslands­banka. Tilkynnt verður um niður­stöður sölu­ferlisins fyrir opnun markaða á morgun og uppgjör viðskiptanna fer fram þann 28. mars. Eftir þann dag, sem er næst­komandi mánudagur, verður ríkis­sjóður orðinn minnihluta­eigandi í Íslands­banka.

Sölu­fyrir­komulagið verður með tilboðs­ferli til „innlendra og erlendra hæfra fjárfesta“ en ákvörðun um útboðs­gengi og endanlegan hlut sem seldur verður mun á endanum verða í höndum Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra. Í tilkynningu sem Banka­sýslan hefur birt á heimasíðu sinni segir að sú ákvörðun verði tekin þegar áætlaðar niður­stöður úr sölu­ferlinu liggja fyrir og að teknu tilliti til meðal annars eftir­farandi þátta, dagsloka­gengis hluta­bréfa Íslands­banka á aðal­markaði Nasdaq Iceland, markaðs­aðstæðna, eftir­spurnar ásamt öðrum þáttum.“

Markaðs­virði Íslands­banka við lokun markaða í dag var 244 milljarðar króna. Miðað við það gengi ætti sala á 20 prósent hlut að skila ríkis­sjóði að minnsta kosti 48,8 milljörðum króna. Ríkis­sjóður seldi 35 prósent hlut fyrir aðeins hærri upphæð, 55,3 milljarða króna, í fyrra­sumar. Markaðs­virði þess hlutar nú er um 85,4 milljarðar króna og hann því hækkað um rúmlega 30 milljarða króna frá því að ríkis­sjóður seldi.

Hlutur ríkis­sjóðs mun fara niður í að minnsta kosti 45 prósent eftir sölu­ferlið sem sett var á stað í dag.

Tilkynnt var um það síðdegis á föstudag að Bjarni hefði ákveðið að hefja fram­hald sölu­með­ferðar á hlutum í Íslands­banka í sam­ræmi við til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins frá 20. jan­úar síð­ast­liðn­um. Ráð­herr­ann sendi Banka­sýsl­unni bréf um ákvörð­un­ina þann dag.

Mik­ill hagn­aður í fyrra og stefnt á tug­millj­arða útgreiðslur

Íslands­­­banki hagn­að­ist um 23,7 millj­­arðar króna á árinu 2021. Arð­­semi eigin fjár var 14,2 pró­­sent og sem var vel yfir tíu pró­­sent mark­miði bank­ans. Kostn­að­­ar­hlut­­fall bank­ans lækk­­aði úr 54,3 pró­­sent í 46,2 pró­­sent milli ára.

Eigið fé Íslands­­­banka var 203,7 millj­­arðar króna um síð­­­ustu ára­­mót og eig­in­fjár­­hlut­­fall bank­ans 25,3 pró­­sent. Útlán til við­­skipta­vina Íslands­­­banka juk­ust um 7,9 pró­­sent á síð­­asta ári. Þá aukn­ingu má að mestu rekja til auk­inna umsvifa á hús­næð­is­­mark­aði. Vaxta­munur bank­ans var 2,4 pró­­sent. Hreinar vaxta­­tekjur voru 34 millj­­arðar króna og hækk­­uðu um tvö pró­­sent milli ára. Þókn­ana­­tekjur hækk­­uðu hins vegar um 22,1 pró­­sent og voru sam­tals 12,9 millj­­arðar króna.

Á grund­velli þess­­arar afkomu var ákveðið að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­­arða króna í arð. Þar af fóru 65 pró­­sent til stærsta ein­staka eig­and­ans, íslenska rík­­is­ins, eða rúm­­lega 7,7 millj­­arðar króna. Þeir sem eiga 35 pró­­sent hlut í bank­­anum fengu svo sam­an­lagt tæpa 4,2 millj­­arða króna í arð­greiðslu. Auk þess stefnir stjórn bank­ans að því að greiða út 40 millj­­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uð­­um. Sú veg­­ferð hófst með því að aðal­fundur bank­ans sam­þykkti í gær að hefja end­­ur­­kaup á bréfum fyrir 15 millj­­arða króna á næstu mán­uð­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár