Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kallað saman

Bandarísk stjórn­völd vilja kalla saman öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna tilrauna Norður-Kóreu með lang­drægar flaugar.

Bandarísk stjórn­völd hafa krafist þess að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna verði kallað saman tafar­laust til að ræða ógnina sem stafar af Norður-Kóreu og tilraunum hers landsins með lang­drægar flaugar sem geta borið kjarna­odda.

Ráðgert er að öryggis­ráðið með 15 fulltrúum fundi strax á morgun, að því er fram kemur á vef breska ríkis­útvarpsins BBC. Rússar og Kínverjar hafa sent frá sér sameiginlega tilkynningu þar sem þess er krafist að kjarnorku­tilraunum Norður-Kóreu verði hætt.

Kim Jong-un, hinn óútreiknanlegi leiðtogi Norður-Kóreu, er sagður hafa fylgst með tilraununum, en það var ríkis­fréttastofa Norður-Kóreu sem færði heima­mönnum fyrstu tíðindin af þeim.

Þá hafa nágranna­ríki Norður-Kóreu, Suður-Kórea og Japan, jafnframt krafist þess að gripið verði til aðgerða til að stöðva tilraunir Norður-Kóreu.

Í umfjöllun BBC segir að sérfræðingar bandarískra stjórn­valda telji það vera rétt, að Norður-Kórea geti nú skotið lang­drægum flaugum með kjarna­oddi, alla leið inn á bandarískt yfirráðasvði. Nákvæm stýring í átt að gefnu skotmarki, sé þó eitthvað sem Norður-Kórea ráði ekki við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár