„Með fullri virðingu, þá ertu að gera mikil mistök“

Leiðtogi Demókrata í Banda­ríkjaþingi varaði Bandaríkja­forseta við því að reka yfirmann FBI.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Leiðtogi demó­krata á Banda­ríkja­þingi, Chuck Schumer, fékk hringingu frá Donald J. Trump, Bandaríkja­forseta, þar sem forsetinn tjóði honum að hann væri að fara reka James Comey sem forstjóra alríkis­lögreglunnar FBI. Ákvörðunin kemur á sama tíma og FBI er með rannsókn í gangi vegna tengsla framboðs Trumps við Rússa, í aðdrag­anda forseta­kosninganna í fyrra. 

Á meðal þeirra sem eru til rann­sóknar eru Michael Flynn, sem var rekinn sem aðal­þjóðar­öryggis­ráðgjafi eftir tæplega 20 daga í starfi, og Jeff Sessions dómsmála­ráðherra. Hann hitti Sergey Kislyak, sendi­herra Rússa í Washington, í tvígang á fundum í aðdrag­anda kosninganna, en eiðsvarinn sagði hann Banda­ríkjaþingi að hann hefði ekki verið í neinum samskiptum við Rússa.

Schumer segist hafa tjáð Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta að það væru mik­il mis­tök að víkja James Comey, for­stjóra al­rík­is­lög­regl­unn­ar FBI, frá störf­um á meðan rann­sókn stæði yfir á meint­um af­skipt­um Rússa í for­seta­kosn­ing­un­um á síðasta ári.

„Fyrr í dag hringdi Trump for­seti í mig og upp­lýsti mig um að hann væri að fara að víkja Comey frá störf­um. Ég sagði við for­set­ann, „með fullri virðingu, þá ertu að gera stór mis­tök,“ sagði Schumer á blaða­manna­fundi.

Þá tók hann und­ir ákall fleiri flokks­manna sinna um að sjálf­stæður og sér­stak­ur sak­sókn­ari eða nefnd rann­saki mögu­leg sam­ráð kosn­inga­fram­boðs Trumps og rúss­neskra emb­ætt­is­manna. Það ákall hefur bæði komið frá Demó­krötum og Repúblikönum. 

Hin opinbera ástæða þess að Comey var rekinn var sú að hann hefði höndlað rann­sóknina á tölvu­póstum Hillary Clinton illa, og tjáð sig um málið með óviðeigandi hætti á meðan málið væri enn í rannsókn. Í bréfi sem aðstoðar­ráðherra dómsmála, Rod Rosenstein, skrifaði, þar sem rök eru færð fram fyrir því að Comey verði rekinn, kemur fram að hann hefði farið út fyrir starfs­svið sitt með ótíma­bærum yfir­lýsingum.

Það var Jeff Sessions dómsmála­ráðherra - sem nú er til rann­sóknar vegna sambands hans við Rússa - sem lagði til við Trump að Comey yrði rekinn strax, og nýr yfirmaður FBI ráðinn eins fljótt og kostur væri. Ekki liggur fyrir enn hver það verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár