Hægt verði að refsa heilbrigðisstofnunum sem heild vegna alvarlegra atvika

Heilbrigðis­ráðuneytið áformar að bæta ákvæði inn í lög um heilbrigðis­þjónustu sem opnar á að heilbrigðis­stofnanir verði látnar sæta refsiábyrgð, sem stofnanir, á alvarlegum atvikum sem upp koma, án þess að einstaka starfs­mönnum verði kennt um.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Heilbrigðis­ráðuneytið áformar að setja inn í lög um heilbrigðis­þjónustu ákvæði um „cumulativa“ og hlutlæga refsiábyrgð heilbrigðis­stofnana, þar sem ljóst þykir að ákvæði almennra hegningar­laga um refsiábyrgð lögaðila eigi ekki nægilega vel við þegar til athugunar eru alvarleg atvik í heilbrigðis­þjónustu.

Sjúkra­stofnanir á Íslandi gætu þannig verið látnar sæta refsiábyrgð, sem stofnanir, í tilfellum þar sem ljóst þykir að kerfis­legur vandi, margir samverk­andi þættir eða röð atvika hafi verið orsök alvarlegs atviks, án þess að einstaka starfs­mönnum verði um kennt.

Ekki er hægt að koma fram refsiábyrgð gagnvart heilbrigðis­stofnunum á Íslandi í dag nema á grund­velli almennra hegningar­laga og þá einungis í þeim tilvikum þar sem hægt er að sanna sök tiltekins einstaklings, en til stendur í að breyta því.

Áform heilbrigðis­ráðuneytisins um laga­setninguna eru kynnt í skjali sem birtist á samráðs­gátt stjórn­valda í gær.

Rannsóknir verði fyrst og fremst á borði landlæknisembættisins

Þar segir einnig um laga­breytingarnar að til athugunar sé hvort rétt sé að breyta lögum á þann veg að rannsókn óvæntra atvika í heilbrigðis­þjónustu fari „fyrst og fremst fram hjá embætti land­læknis en ekki samtímis hjá lögreglu“, en þó myndi embætti land­læknis geta kært mál til lögreglu þegar grunur væri um stórkostlegt gáleysi eða ásetning.

Lögregla gæti svo eftir sem áður, þegar tilefni er til, tryggt rannsóknar­hagsmuni í upphafi máls, til dæmis með hald­lagningu gagna eða skýrslu­tökum.

Starfs­hópur hefur verið stofnaður til að vinna frumvarp um þessar breytingar, en fyrir­hugað er að starfs­hópurinn ræði sérstak­lega við fulltrúa félaga­samtaka sem hafa sérstakra hagsmuna að gæta og sömuleiðis að hann fái fram sjónarmið sjúklinga sem orðið hafa fyrir alvarlegum atvikum í heilbrigðis­þjónustu eða aðstand­enda þeirra.

Í skjalinu á samráðs­gáttinni segir að þess megi vænta að ef frum­varpið verði að lögum megi gera ráð fyrir því að fjölga þurfi um hálft til eitt stöðu­gildi hjá embætti lands­læknis til að sinna rann­sóknum, sem kosti um 7-13 milljónir króna á ársgrundvelli.

Að sama skapi megi ætla að verkefnum lögreglu­embætta fækki, að minnsta kosti sem nemur sama fjölda stöðu­gilda og bætast við hjá embætti land­læknis, „ef ekki meira vegna fækkunar mála þar og samlegðar­áhrifa af sameiningu rannsókna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár