Sigmundur hló að spurningu fréttamanns: „Láttu ekki svona“

Forsætis­ráðherra vill hvorki svara spurningum fjölmiðla né þingmanna um málefni aflands­fé­lagsins sem átti kröfu í þrotabú föllnu bankanna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra vill ekki ræða um málefni aflandsfélagsins Wintris á Alþingi. Þá hefur hann ekki viljað svara fyrir­spurnum fjölmiðla um málið. Líkt og fram kom í vikunni átti félagið, sem er í eigu Önnu Sigur­laugar Páls­dóttur eiginkonu Sigmundar, hundruð milljóna kröfur í þrotabú föllnu bankanna. Sem kunnugt er lék Sigmundur lykil­hlutverk í aðgerðum ríkis­stjórnarinnar er sneru að þrota­búunum og kröfu­höfum þeirra.

Í hádegis­fréttum Ríkis­útvarpsins í morgun var spiluð upptaka af tilraun frétta­manns til að ræða við Sigmund um málið eftir þingfund í gærkvöldi. „Sigmundur, viltu ræða við okkur um þetta félag?“ spurði frétta­maðurinn Tryggvi Aðalbjörnsson. Sigmundur brást við hlæjandi og sagði: „Láttu ekki svona.“ Aðspurður hvers vegna hann vildi ekki svara spurningum um málið sagði Sigmundur: „Eins og ég er búinn að segja ykkur þá er ég ekki að svara fyrir fjármál eiginkonu minnar frekar en aðrir þingmenn um fjármál þeirra maka.“ Í kjölfarið mátti heyra Sigmund loka dyrum á eftir sér.

Forsætis­ráðherra birti pistil um eiginkonu sína á vefsíðu sinni í gær. Þar kom meðal annars fram að í aðdrag­anda þing­kosninganna 2013 hefði Sigmundur íhugað að upplýsa um kröfu Önnu Sigur­laugar í þrotabúin, en hætt við. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýringu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjónanna Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar og Önnu Sigur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar ályktanir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eftir­farandi: Þann 13. maí 2016 skrifaði umboðs­maður hjónanna bréf til ríkis­skattstjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­framtöl...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár