Gylfi hefði aftur kosið meiri vaxtahækkun en Ásgeir lagði til

Rétt eins og við vaxta­ákvörðunina í júní­mánuði hefði hagfræði­prófessorinn Gylfi Zoega viljað sjá vexti Seðla­bankans hækka meira undir lok ágúst­mánaðar en Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri lagði til og samþykkt var í peninga­stefnu­nefnd.

Gylfi Zoega er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og situr í peningastefnunefnd Seðlabankans.
Gylfi Zoega er pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og situr í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans. Mynd: Skjáskot/RÚV

Gylfi Zoëga, hagfræði­prófessor og utan­aðkomandi nefndar­maður í peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans, hefði „fremur kosið að hækka vexti bankans um 1 prósentu“ við síðustu vaxta­ákvörðun, en studdi þó eins og aðrir nefndar­menn í peninga­stefnu­nefnd tillögu Ásgeirs Jónssonar seðla­bankastjóra um að vextirnir yrðu hækkaðir um 0,75 prósentu­stig.

Þetta má lesa í fundar­gerð peninga­stefnu­nefndar, sem birt var á vef Seðla­bankans síðdegis í gær, en fundar­gerðirnar eru jafnan birtar tveimur vikum frá því að vaxta­ákvörðun er kynnt.

Aðra vaxta­ákvörðunina í röð vildi Gylfi þannig sjá hækkun vaxta sem var umfram tillögu seðla­bankastjóra og niður­stöðu nefndarinnar, en í júní hefði Gylfi kosið 1,25 prósentu­stiga vaxta­hækkun, á meðan að vextir voru hækkaðir um 1 prósentu.

Í fundar­gerðinni frá því í ágúst segir að nefndar­menn hafi allir verið þeirrar skoðunar að halda þyrfti áfram að hækka vexti Seðla­bankans og að rætt hefði verið um hækkun á bilinu 0,5 til 1 prósentu­stig á fundinum.

Í þessu mati nefndar­manna vó þungt að innlend eftir­spurn hefði reynst sterkari en nefndin hafði búist við, einka­neysla hefði aukist mun meira en nefndar­menn höfðu gert ráð fyrir og svo virtist sem heimili hefðu dregið hraðar úr sparnaði en áætlað var.

„Að mati nefndar­manna endur­speglaðist þetta m.a. í að spenna hefði aukist verulega á vinnu­markaði á alla mæli­kvarða. Verðbólgu­horfur hefðu því áfram versnað. Að mati nefndarinnar væri einnig áhyggju­efni að verðbólgu­væntingar hefðu hækkað enn frekar enda gæti það aukið hættuna á að fyrirtæki, í krafti mikillar eftir­spurnar og vegna undan­genginna hækkana launa og aðfanga­kostnaðar, veltu auknum kostnaði í meira mæli út í verðlag,“ segir í fundar­gerðinni.

Talað um að áhrif á húsnæðismarkað væru ekki komin að fullu fram

Í fundar­gerð peninga­stefnu­nefndar segir að helstu rökin fyrir því að „taka minna skref en ella“ við síðustu vaxta­hækkun, hafi verið sú að hröð vaxta­hækkun bankans undan­farið væri farin að hafa áhrif, meðal annars á húsnæðis­markaðinn, en jafnframt það að áhrifin á þann markað væru ekki að fullu komin fram.

Að auki horfði nefndin til þess að miklar hækkanir á framfærslu­kostnaði og horfur um minni kaupmátt gætu leitt til viðsnúnings á efnahags­horfu og til þess að alþjóðlegar efnahags­horfur höfðu áfram versnað milli funda sem gæti haft áhrif á horfur um útflutning hér á landi.

Þá hefðu heimili og fyrirtæki víða aldrei verið jafn svartsýn um horfur í efnahags­málum og enn fremur hefði alþjóðlegt olíu- og hrávöru­verð lækkað undan­farið sem drægi úr verðbólgu­þrýstingi.

Skýr merki um að hagkerfið væri að ofhitna

Rökin sem komu hins vegar fram fyrir því að taka stærra skref en raunin varð voru þau að nauðsynlegt væri að gefa því meira vægi hversu hratt spenna á vinnu­markaði hefði aukist og að þar væru skýr merki um að hagkerfið væri að ofhitna. Bent var á að ef taum­haldið yrði ekki hert nægjanlega hratt væru meiri líkur á að mikil verðbólga festist í sessi og erfiðara yrði að ná verðbólgu niður í markmið.

Gylfi Zoega skrifaði grein um vaxta­hækkanir Seðla­bankans í nýjasta tölublaði Vísbendingar og kom þar meðal annars fram að þegar verðbólga færi vaxandi væri mikilvægt að kippa sem fyrst í taumana í stað þess að horfa upp á hana stig­magnast.

„Það er auð­veld­ara að ná verð­bólgu niður fyrr en seinna en slíkt krefst þess að fyrstu skrefin í vaxta­hækk­un­ar­ferli séu stærri en þau sem á eftir koma. Sú aukn­ing verð­bólgu sem varð í vor vegna styrj­aldar í Úkra­ínu og sótt­varn­ar­að­gerðir í Kína var ekki fyr­ir­séð en reynslan frá átt­unda ára­tug síð­ustu aldar kennir okkur að tíma­bundin fram­boðs­á­föll geta valdið langvar­andi verð­bólgu ef spenna er mikil á inn­lendum vinnu­mark­að­i,“ skrifaði Gylfi meðal annars í greininni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár