Hliðverðirnir sýna klærnar

Vafasöm frétt í New York Post um Biden-feðgana Joe og Hunter og viðbrögð Facebook og Twitter við henni hafa vakið upp umræðu um ægivald félags­miðlanna yfir þeim upplýsingum sem almenningur hefur fyrir augum á internetinu.

Félagsmiðlarnir Facebook og Twitter lágu undir ámæli í vikunni sem leið fyrir að hefta dreifingu fréttar frá New York Post.
Félags­miðl­arnir Facebook og Twitter lágu undir ámæli í vik­unni sem leið fyrir að hefta dreif­ingu fréttar frá New York Post. Mynd: Pexels

Samfélagsmiðlarisarnir Facebook og Twitter lágu undir ámæli um gerræðis­lega ritskoðunar­tilburði í síðustu viku, en á miðvikudags­morgun birtist frétt í bandaríska götu­blaðinu New York Post sem miðlarnir reyndu báðir að hemja dreifingu á. Málið hefur enn á ný vakið upp umræðu vestanhafs og víðar um ægivald félags­miðlanna yfir þeim upplýsingum sem almenningur hefur fyrir augum.

Fréttin sjálf fjallaði um Hunter Biden, son forseta­fram­bjóðandans Joe Biden og tölvu­pósta hans, sem New York Post sagði að sýndu fram á að Hunter hafi kynnt Joe föður sinn fyrir yfirmanni hjá úkraínska orku­fyrirtækinu Burisma, þar sem Hunter sjálfur var stjórnar­maður. Þessir tölvu­póstar munu hafa fundist á hörðum diski gamallar fartölvu sem Hunter er sagður hafa sett á verkstæði í fyrra og aldrei sótt.

Sannleiks­gildi fréttarinnar er vafa undirorpið. Heimildar­mennirnir voru þeir Steve Bannon fyrr­verandi ráðgjafi forsetans og Rudy Guiliani, lögmaður forsetans, sem er sagður hafa látið blaðið hafa eintak af harða drifinu þann 11. þessa mánaðar.

Í frétt New York Times á sunnudag var sagt frá því að efasemdir hefðu verið um það inni á ritstjórn Post hvort fréttin væri nægilega traust og að tveir blaðamenn hefðu af þeim sökum neitað að merkja sér hana með nafni.

Fréttin var merkt tveimur blaða­konum, einni sem kom til starfa á Post frá Fox News fyrr á þessu ári og hafði aldrei verið með merkta frétt í blaðinu áður og annarri sem hafði ekki mikið með frétta­skrifin að gera og vissi ekki af því sjálf fyrr en eftir á að nafn hennar yrði við umfjöllunina, samkvæmt frétt Times.

Ritstjórn Post segist þó standa við fréttina, sem vakti mikla athygli, ef til vill ekki síst vegna þess að Facebook og Twitter reyndu að koma í veg fyrir að hún dreifðist víða.

Það varð vatn á myllu stjórn­málamanna í Repúblikana­flokknum sem hafa lengi haldið því fram að stóru félags­miðlarnir hafi pólitíska slagsíðu og ritskoði og fjarlægi upplýsingar sem séu þeim ekki þóknanlegar, en í þetta skipti var aðgerðunum beint að fjölmiðli sem telst til megin­straumsins í bandarísku fjölmiðla­flórunni. Það er óvanalegt.

Af hverju gripu Facebook og Twitter til aðgerða?

Ástæðurnar sem fyrir­tækin báru fyrir sig voru mismun­andi. Facebook sagðist vera að gera það sem fyrir­tækið geri oft, að minnka dreifingu efnis á síðum miðilsins á meðan að þriðji aðili skoðaði sannleiks­gildi þess, í samræmi við stefnu fyrir­tækis um „upplýsinga­óreiðu“. Þrátt fyrir að Facebook hafi gripið til þessa ráðs fór fréttin um þá Biden-feðga víðar en nokkur önnur frétt á Facebook í Banda­ríkjunum í síðustu viku, samkvæmt samantekt sem birtist í New York Times.

Viðbrögð Twitter voru með öðrum hætti. Á miðvikudags­morgun varð einfald­lega ómögulegt að deila fréttinni frá New York Post á Twitter, án skýrra meldinga til notenda um af hverju það stafaði. Jack Dorsey forstjóri fyrir­tækisins viðurkenndi að vinnu­brögðin hefðu verið óásættanleg að því leyti.

Í tístum frá Twitter var útskýrt að efni í grein New York Post hefði brotið gegn reglum miðilsins á tvennan máta, annars vegar hefðu persónu­upplýsingum verið dreift án heimildar og hins vegar hefði frétta­flutningurinn byggst á gögnum sem álitin voru stolin - „hökkuð“. Þetta er regla sem Twitter hefur haft frá árinu 2018.

Fréttir eru þó stundum byggðar á stolnum gögnum, hvað sem fólki eða Twitter og Facebook finnst um það. Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks telur að það sé umhugsunar­vert hvernig Facebook og Twitter hafi gengið fram í málinu.

„Það er býsna uggvænlegt þegar þessi risa­fyrirtæki sem eru í fóðrunar­stöðu upplýsinga almennings í dag, taka fram slag­brandinn í hliðvarðar­hlutverkinu sem þau hafa tekið sér,“ skrifaði Kristinn á Facebook á dögunum og hann er ekki einn um að vera hugsi.

Adi Robertsson, blaða­maður á tækni­miðlinum Verge, sagði málið varpa ljósi á augljós vandamál varðandi samspil pólitískrar umræðu, samfélags­miðlanna og upplýsinga­flæðisins á netinu. Máttur samfélags­miðlanna er vandamál, skrifar Robertsson, af því að þeir fáu stóru halda utan um mikið af tjáningu mannanna.

Fordæmið er að hans mati hættulegt, ekki síst af því að raunin er sú að góðir frétta­menn geta líka gefið frá sér ósannar fréttir fyrir mistök.

„Venjulega eru mistök í frétta­flutningi eða slæm heimildar­vinna afhjúpuð af öðrum blaða­mönnum, sérfræðingum í efninu eða heimildar­mönnum með beina vitneskju um málið. Samfélags­miðla­fyrirtæki hafa ekkert af þessu og ritskoðun þeirra býður ekki upp á neinar upplýsingar sem hjálpa lesendum að komast að niður­stöðu, heldur kæfir bara uppruna­legu fréttina,“ skrifar Robertson.

Tækniforstjórar koma fyrir þingnefnd í aðdraganda kosninga

Búast má við að Mark Zuckerberg og Jack Dorsey, forstjórar félags­miðlarisanna tveggja, þurfi að svara sérstak­lega fyrir þetta mál á miðvikudaginn í næstu viku næstu viku Þá koma þeir rafrænt fyrir viðskipta­nefnd öldunga­deildar Banda­ríkjaþings ásamt Sundar Pichai forstjóra Google.

Umræðu­efnið á fundinum verður meðal annars laga­bálkur númer 230 í bandarískum lögum um fjar­skiptamál, sem tryggir að samfélags­miðlar eru ekki lagalega ábyrgir fyrir því sem notendur þeirra segja. Trump-stjórnin hefur hótað að fjarlægja ákvæðið, en það væri reyndar tvíeggjað sverð, þar sem sú aðgerð myndi án efa leiða til þess að ritskoðun félags­miðlanna á því efni sem notendur setja inn og deila myndi stóraukast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár