Trump: „Allar siðaðar þjóðir“ taki höndum saman

Bandaríkja­forseti segir þjóðir heimsins verði að binda endi á blóðbaðið í Sýrlandi.

Mynd af Bashar Al Assad, forseti Sýrlands, á vegg í hinu stríðshrjáða Sýrlandi.
Mynd af Bashar Al Assad, for­seti Sýrlands, á vegg í hinu stríðs­hrjáða Sýrlandi. Mynd: EPA

„Allar siðaðar þjóðir þurfa að taka höndum saman um að binda endi á blóðbaðið í Sýrlandi.“ Þetta sagði Donald Trump, þegar hann svaraði fyrir aðgerðir Bandaríkja­hers gegn stjórnarher Sýrlands, en 59 flug­skeytum var skotið af herskipum Banda­ríkjanna á valin skotmörk, meðal annars á Shayrat flug­vellinum við borgina Homs, en talið er að efna­vopnum, sem drápu hið minnsta 80 óbreytta borgara í síðustu viku og þar á meðal meira en 20 börn, hafi verið skotið þaðan.

Trump sagði á blaðamanna­fundi, þar sem hann var með alla helstu ráðgjafa sína sér við hlið, að fyrri tilraunir til að draga úr blóð­baðinu í Sýrlandi hefðu ekki gengið nægilega vel, en nú væri nóg komið. Nú þyrftu Banda­ríkin og bandalags­þjóðir þeirra að taka saman höndum. Borgara­styrjöldin í landinu hefði magnað upp flóttamanna­vandann og það þyrfti að binda enda á blóðbaðið.

Áður en til flugskeyta­árásanna kom lét Trump Rússa vita af því sem stæði til, að því er fram kemur í fréttum

New York Times

. Rússar hafa stutt stjórnarher Sýrlands undir stjórn Assads forseta.

Aðgerðir Banda­ríkjanna fóru fram á sama tíma og opinber heimsókn Xi Jinping, forseta Kína, stendur yfir í Banda­ríkjunum.

Vladímir Pútín forseti Rússlands segir í yfir­lýsingu, sem vitnað er til á vef Wall Street Journal, að hann þessar aðgerðir Banda­ríkjanna væru til þess fallnar að skaða samband Rússlands og Banda­ríkjanna, og að þessar aðgerðir væru auk þess ekki í takt við alþjóðlegar skuld­bindingar. Þarna væri ein þjóð að gera árás á aðra, í órétti, og þetta myndi hafa afleiðingar fyrir trúverðug­leika samstarfs ríkja þegar það kæmi að varnar­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár