Stofnandi Wikileaks handtekinn í London

Julian Assange hefur verið hand­tekinn í London en hann hefur búið í sendiráði Ekvadór undan­farin ár. Honum var tilkynnt með skömmum fyrirvara að stjórn­völd í Ekvadór hefðu tekið til baka diplómatíska vernd.

Julian Assange
Julian Assange Mynd: EPA

Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefur verið hand­tekinn í London en hann hefur búið í sendiráði Ekvadór undan­farin ár. Frá þessu er greint í frétt RÚV. Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, segir í samtali við RÚV að Assange hafi verið tilkynnt á síðustu mínútum að stjórn­völd í Ekvadór hefðu tekið til baka diplómatíska vernd og að hann yrði að yfirgefa sendi­ráðið.

Kristinn segir jafnframt að Assange hafi verið hand­tekinn innan veggja sendi­ráðsins og að hann hafi verið hand­tekinn vegna þess að bresk stjórn­völd telji hann hafa rofið tryggingu þegar hann sótti um pólitískt hæli í Ekvadór. „Þetta er yfirleitt minni­háttar brot og er yfirleitt lokið með dómssátt,“ segir hann.

Assange sótti um hæli í Ekvadór vegna rann­sóknar sænskra stjórn­valda á ásökunum um kynferðis­brot en fram kemur í frétt BBC að málið hafi verið fellt niður. Assange verður leiddur fyrir dómara við dómstólinn í Westminster eins fljótt og auðið er.

Kristinn segist eiga von á því að nú taki við önnur barátta, að fram­salskrafa komi frá Banda­ríkjunum sem tengist ákæru sem hafi verið gefin út með leynd en hafi fengist staðfest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár