Undirbúa ákæru á hendur stofnanda Wikileaks

Banda­rískir sak­sókn­arar hafa und­ir­búið ákæru gegn Julian Assange, stofn­anda Wikileaks. Upp­lýs­ingar um ákæruna birt­ust óvart í ótengdum dóms­skjölum en leynd er yfir ákærunni svo Banda­ríkin geti reynt að fá hann fram­seldan frá London.

Julian Paul Assange
Julian Paul Assange Mynd: EPA.

Banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið vinnur að ákæru gegn Julian Assange, stofn­anda WikiLeaks. Mögulegt er að hann hafi þegar verið ákærður en leynd hvílir yfir ákærunni ef og þar til hann verður hand­tek­inn, svo Banda­ríkin geti reynt að fá hann fram­seldan frá London. New York Times greinir frá þessu í dag. 

Nafn Assange birt­ist í ótengdum dóm­skjölum frá því í ágúst, sem upp­götv­uð­ust í gær, þar sem sak­sókn­ari var að reyna að fá dóm­ara til að inn­sigla dóms­skjöl í máli ann­ars manns. Sak­sókn­ar­inn í mál­inu er sá sami og hefur verið með Assange til rann­sóknar. Joshua Stueve tals­maður alrík­is­sak­sókn­ara í Virgínu, sem hefur verið að rann­saka Assange segir að um mis­tök hafi verið að ræða og að nafn Assange hefði ekki átt að birt­ast í skjöl­unum.

Seamus Hughes, hryðju­verka­sér­fræð­ingur, sem fylgist vel með dóm­skjölum, fann nafn Assange í skjöl­unum og birti á Twitter-síðu sinni.

Þyrfti að vera framseldur

Julian Paul Assange hefur verið þyrnir í augum banda­rískra sak­sókn­ara í áraraðir en hann er eft­ir­lýstur þar í landi fyrir margs konar brot. Hann er ástr­alskur for­rit­ari og blaða­maður sem er frægastur fyrir að stofna leka­síð­una Wikileaks. Hann til dæmis aðstoð­aði Chelsea Mannig, fyrr­ver­andi banda­rískan her­mann, að leka leyni­legum gögnum um stríðið í Íran og Afganistan á síð­unni Wikileaks. Chelsea Mannig var dæmd í júlí 2013 fyrir meðal ann­ars að brjóta njósn­a­lögin og situr nú 35 ára dóm­inn af sér.

Í dóm­skjöl­unum kom fram að vegna aðstæðna Assange og hver hann væri þyrftu skjölin að vera inn­sigluð þar til Assange verður hand­tek­inn í tengslum við ákær­urnar og hann gæti þar af leið­andi ekki lengur forð­ast hand­töku og fram­sal. Assange hefur búið í sendi­ráði Ekvador í London í rúm sex ár en og hann flúði þangað vegna ákæru um nauðgun í Svíþjóð. Það mál hefur verið fellt niður en hann á þó enn hand­töku yfir höfði sér í Bret­landi fyrir að hafa ekki mætt fyrir dóm­ara. Assange þyrfti því að vera hand­tek­inn í London og fram­seldur úr landi ef hann verður kærður fyrir alrík­is­dóms­stóli banda­ríkj­anna.

Jeff Sessions, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sagði í fyrra að Banda­ríkin ætl­uðu sér að hand­sama Assange og þar að auki hefur Robert Mueller verið að rann­saka Assange vegna Rússa­rann­sókn­ar­innar svoköll­uðu. [adspot]

Rússarannsóknin

Samkvæmt New York Times hefur dóms­mála­ráðu­neytið í Banda­ríkj­unum lengi reynt að finna hvernig og hvort þeir geti dregið Assange fyrir dóm frá því að fyrstu skjölin voru birt á Wikileaks síð­unni. En jafn­vel í for­seta­tíð Barack Obama þegar mesti fjöldi upp­ljóstr­ara var ákærðir í Banda­ríkjum þá var Assange ekki kærður.

[links]Það sem hefur staðið í vegi fyrir sak­sóknur­unum er spurn­ingin um hvort að það sé laga­legur munur á því sem Wikileaks gerði og það sem aðrir fjöl­miðlar gerðu með því að fjalla um upp­lýs­ing­arnar sem komu fram á Wikileaks-síð­unni. Samkvæmt New York Times hefur Assange ekki verið kærður hingað til vegna ótta um að slík kæra myndi senda þau skila­boð að ólög­legt sé að birta upp­lýs­ingar er varða þjóðar­ör­yggi og það gæti leitt til kuln­unar í rann­sókn­ar­blaða­mennsku.

Það við­horf breytt­ist síðan eftir að Wikileaks birti þús­undir tölvu­pósta frá demókrötum sem stolnir voru frá rúss­neskum tölvu­hökk­urum árið 2016 en talið er að sá gagna­leki hafi skaðað fram­boð Hillary Clinton í for­seta­kosn­ing­unum. FBI stað­festi að óyggj­andi sann­anir voru fyrir því að tölvu­árásir í aðdrag­ana for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum árið 2016 hafi verið tengdar Rússum. Mike Pompeo, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sagði að með þessum aðgerðum væri Assange að standa með ein­ræð­is­herrum. Samkvæmt New York Times þykir grund­vall­ar­munur á tölvu­pósta­lek­anum og fyrri lekum Assange vegna þess fyrr­nefndir tölvu­póstar demókrata voru ekki rík­is­skjöl eða þjóðar­ör­ygg­is­leynd­ar­mál.

Í umfjöllun New York Times kemur fram að ákæran er afger­andi yfir­lýs­ing af hálfu banda­rískra stjórn­valda, þar sem ákæra af þessu tagi getur skapað laga­legt for­dæmi með djúp­stæðum afleið­ingum fyrir frelsi fjöl­miðla.

Íslendingur nú ritstjóri Wikileaks

Krist­inn Hrafns­son var skip­aður rit­stjóri WikiLeaks í sept­em­ber á þessu ári. Julian Assange steig þá til hliðar sem rit­stjóri en hélt áfram sem útgef­andi vegna. Kristinn er marg­reyndur blaða­maður sem starf­aði meðal ann­ars hjá Stöð 2, við frétta­skýr­inga­þátt­inn Kompás og hjá RÚV. Árið 2010 tók hann þátt í vinnslu frétta sem byggðu á gögnum frá WikiLeaks sem köll­uð­ust „Collateral Murder“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppljóstrun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár