Svíþjóð og Ekvador reyna að semja um Julian Assange

Svíþjóð og Ekvador munu hefja við­ræður vegna Julians Assange, for­sprakka Wikileaks, á næst­unni. Við­ræð­urnar hefj­ast á mánu­dag.

Svíar höfn­uðu því upp­haf­lega að ríkin tvö myndu kom­ast að sam­komu­lagi áður en sænskir sak­sókn­arar fengju að yfir­heyra Assange í sendi­ráði Ekvadors í London, þar sem hann hefur dvalið und­an­farin ár. Svíar sögð­ust ekki standa í slíkum tví­hliða samn­ingum.

En Guardian greinir frá því í dag að sam­komu­lag hafi náðst milli ríkj­anna um að hefja við­ræður vegna patt­stöð­unnar í máli hans. Tvær konur kærðu hann fyrir kyn­ferð­is­brot í Stokk­hólmi fyrir fimm árum síðan. Í kjöl­farið leit­aði Assange skjóls í sendi­ráð­inu í London og seg­ist ekki hafa átt ann­arra kosta völ, vegna þess að stjórn­völd í Svíþjóð hafi ekki getað lofað að hann yrði ekki fram­seldur til Banda­ríkj­anna, þar sem hann á yfir höfði sér ákæru fyrir njósnir.

„Við höfum sam­þykkt það sem Ekvador­arnir fóru fram á,“ sagði tals­kona sænska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um málið við Guardian. Það hafi verið póli­tísk ákvörðun að hefja þessar við­ræður. „Venju­lega geta ráð­herrar ekki blandað sér í ein­stök mál, það er hluti af okkar kerfi, og er ströng regla. Á sama tíma er það stjórn­valda að gera sam­komu­lög við önnur ríki. Ákvörðun var tekin um að færa þetta mál upp á stig rík­is­stjórn­ar­innar.“

Sænsk stjórn­völd segja að vegna þess hversu sér­stakt málið er og vegna þess að það sé vilji til þess að klára málið, hafi verið ákveðið að ganga til við­ræðna.

Hluti ásak­ana gegn Assange eru nú fyrndar. Nauðg­un­ar­kæra gegn honum fyrn­ist hins vegar ekki fyrr en árið 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár