FBI staðfesti mat CIA á því að Rússar hafi haft áhrif á kosningarnar

Rúss­neskir tölvu­hakk­arar eru sagðir hafa haft bein áhrif á gang mála í aðdrag­anda kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum 8. nóv­em­ber. Mark­miðið hafi verið að styrkja stöðu Donalds Trump.

Alrík­is­lög­reglan í Banda­ríkj­unum, FBI, hefur stað­fest mat leyni­þjón­ustu Banda­ríkj­anna, CIA, á því að rúss­neskir tölvu­hakk­arar hafi haft áhrif á gang kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum með tölvu­árás­unum og leka á gögnum sem þeir komust yfir.

Þetta sta­festi FBI í dag, en CIA birti yfir­lýs­ingu um málið í síð­ustu viku þar sem óyggj­andi sann­anir voru sagðar vera til fyrir því að tölvu­árásir, meðal ann­ars í aðdrag­anda árs­funds Repúblik­ana og einnig á tölvu­póst John Pedista, sem stýrði fram­boði Hillary Clinton. Gögnum frá honum var lekið til Wikileaks sem birti tölu­vpósta sem sköð­uðu fram­boð Hillary.

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, lét hafa eftir sér í við­tali við NPR í gær, að Banda­ríkin muni rann­saka málin í þaula og bregð­ast við. Tíma­setn­ing verði ákveðin af Banda­ríkj­unum og líka til hvaða ráð­staf­ana verði gripið.

Donald J. Trump, nýkjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna, hefur sagt hann telji upp­lýs­ing­arnar sem CIA vísar til, vera „dellu“ og að hann trúi þeim ekki. Hann hefur slegið þær útaf borð­inu og sagt að ekk­ert hafi gerst sem hafi skipti máli fyrir kosn­ing­arnar.

Samkvæmt frétt Washington Post í dag, kemur fram John Brennan, sem stýrir CIA, hafi hitt Jim Comey, for­stjóra FBI, og að þeir hafi verið sam­mála um að upp­lýs­ing­arnar um að Rússar hafi verið með putt­ann í tölvu­árásum í aðdrag­anda kosn­ing­anna, væru bæði réttar og alvar­legar. Hafa upp­lýs­ing­arnar enn­fremur bent til þess að Vladímir Pútín, for­seti Rúss­lands, og nán­ustu banda­menn hans, hafi búið yfir vit­neskju um árás­irnar og heim­ilað þær sér­stak­lega.

Mark­miðið með árás­unum hafi verið að styrkja stöðu Trumps gagn­vart Hillary, og ýta undir mögu­leika hans á sigri.

Brennan sagði að teymi starfs­manna stofn­anna Banda­ríkj­anna myndi nú halda áfram rann­sóknum sínum, til að draga fram enn betur hvað hefði raun­veru­lega gengið á. Í kjöl­farið yrði síðan skýrsla sent til æðstu ráða­manna, sem tækju ákvarð­anir um við­brögð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár