Obama: Bandaríkin munu bregðast við tölvuárásum Rússa

CIA telur óyggj­andi gögn vera til um það að rúss­neskir tölvu­hakk­arar hafi reynt að hafa áhrif á gang mála í aðdrag­anda kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum.

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, segir að banda­rísk stjórn­völd þurfi að bregð­ast við tölvu­árásum Rússa, og það muni þau gera. „Við munum velja réttan tíma til þess,“ sagði Obama í útvarps­við­tali við National Public Radio (NPR).

Leyni­þjón­usta Banda­ríkj­anna CIA telur að óyggj­andi sann­anir liggi fyrir um það, að rúss­neskir tölvu­hakk­arar hafi staðið fyrir tölvu­árásum í Banda­ríkj­unum í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna sem fóru fram 8. Nóvember. Sem kunn­ugt er sigr­aði Donald J. Trump, fram­bjóð­andi Repúblik­ana, í kosn­ing­unum. „Ég held að eng­inn velk­ist í vafa um það, að þegar ein­hver erlend stjórn­völd reyni að hafa áhrif á kosn­ingar hér í landi, þá þurfum við að gera eitt­hvað í mál­inu og við munum gera það,“ sagði Obama.

Grunur leikur á því, sam­kvæmt CIA, að rúss­neskir tölvu­hakk­arar hafi meðal ann­ars gert tölvu­árásir í aðdrag­anda for­vals Repúblik­ana á lands­fundi flokks­ins, þar sem Trump var útnefndur, og einnig hafi þeir kom­ist yfir trún­að­ar­gögn frá John Podesta, sem stýrði kosn­inga­her­ferð Hillary Clinton. Gögnum var síðan lekið til Wikileaks sem birti þau að hluta. 

Podesta hefur sjálfur sagt að eitt­hvað sé að innan alrík­is­lög­regl­unnar FBI sem hafi búið yfir gögnum um tölvu­árás­irnar en samt ekk­ert gert í mál­unum, annað en að skaða fram­boð Hillary Clinton með inni­stæðu­lausum ásök­unum. Frá þessu greindi hann meðal ann­ars í greiní grein í Washington Post í gær.

Obama sagði í við­tal­inu við NPR að lík­lega hafi aðeins völdum gögnum verið lekið, með það fyrir augum að hafa áhrif á gang mála í aðdrag­anda kosn­ing­anna, en mikið magn gagna sé nú í fórum þeirra sem stóðu fyrir árás­unum.

Donald Trump hefur gert lítið úr árás­unum og meðal ann­ars gagn­rýnt CIA fyrir að tjá sig um þær, án þess að þó að vita hvaða gögn það eru sem stofn­unin býr yfir. Obama hefur ítrekað að málin verði rann­sökuð og við þeim brugð­ist með við­eig­andi hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár