Segir ekkert benda til þess að Norður-Kórea sé að afvopnast

Kjarnorku­vopna­áætlun Norður-Kóreu hefur ekki verið stöðvuð enn, og ekki er vitað hvort hún muni gera það.

James Mattis, varnarmála­ráðherra Banda­ríkjanna, segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar um það að Norður-Kórea ætli sér að afvopnast kjarnorku­vopnum og þá bendir ekkert til þess að kjarnorku­vopna­áætlun landsins hafi verið stöðvuð.

Þetta kom fram á blaðamanna­fundi sem Mattis hélt í varnarmála­ráðuneyti Banda­ríkjanna, Pentagon, í gær.

Þrátt fyrir digurbarkalegar yfir­lýsingar Donalds Trump Bandaríkja­forseta þá liggur ekki fyrir enn hvernig verður unnið úr fundinum sögulega í Singapúr, milli Trump og Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu.

Ítarlegar viðræður eiga að fara í gang á næstunni og verða Mike Pompeo, utan­ríkis­ráðherra, og John Bolton, þjóðar­öryggis­ráðgjafi Trumps, í leiðandi hlutverki í þeim fyrir hönd Banda­ríkjanna.

Mattis sagði í samtölum við blaðamenn að ætti eftir að koma í ljós, hver staðan væri í reynd, eftir þennan fund.

Kim Jong Un hefur þegar farið í opinbera heimsókn til Kína, og fékk það höfðinglegar móttökur. Hann kom til fundarins í Singapúr með flugvél frá Air China, ríkis­flug­félaginu í Kína, og flaug með henni til baka aftur. Kínverskir fjöl­miðlar hafa skrifað um það að fundurinn hafi verið árangurs­ríkur fyrir Norður-Kóreu og sterkt vina­samband Norður-Kóreu og Kína hafi verið undirsstrikað.

Trump hefur sagt að Kim Jong Un hafi grátbeðið um fundinn með honum. Afar­kostir Bandaríkja­manna hafi verið þeir, að Norður-Kórea þyrfti að afvopnast kjarnorku­vopnum fyrir 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár