Kalifornía setur skyldu á skráð félög að vera með konu í stjórn

Kaliforníu­ríki hefur ákveðið að skylda öll skráð félög, sem eru með höfuð­stöðvar í ríkinu, til að vera með minnsta eina konu í stjórn. Konur verða svo að verða 40 prósent stjórnar­manna

Kalifornía, fjölmennasta ríkið Banda­ríkjanna með 40 milljónir íbúa og sem er jafnframt sjöunda stærsta hagkerfi heimsins, hefur ákveðið að skylda öll skráð félög í ríkinu til að vera með konu í stjórn frá og með 31. desember 2019 og þarf hlutfall kvenna að vera komið í 40 prósent fyrir árslok 2021 eða á næstu rúmu þremur árum.

Kalifornía er með þessu fyrsta ríki Banda­ríkjanna til að skylda skráð félög til að vera með konur í stjórn. Í umfjöllun frétta­vefs Harvard Law School segir að Kalifornía hafi til þessa verið eftir­bátur annarra ríkja en meðtal kvenna sem sitja í stjórnum skráðra félaga í Banda­ríkjunum 1,75 og er þar miðað við alla stjórnar­menn en algengt er í Banda­ríkjunum að stjórnar­menn skráðra félaga séu 11 talsins.

Þetta var ákveðið 30. ágúst síðastliðinn og lét einn af tals­mönnum þessa máls meðal þingmanna ríkisins, Hannah Beth Jackson, hafa eftir sér að málið væri afar mikilvægt. „Þetta er ekki aðeins hið rétta að gera, heldur er þetta líka gott fyrir fyrir­tækin,“ sagði Jackson eftir að málið hafði verið samþykkt. Jerry Brown, ríkis­stjóri Kaliforníu, segir að fjár­sektum verði beitt gagnvart þeim félögum sem ekki munu fara eftir reglunum.

Í umfjöllun The Economist segir að fyrir­tækin í ríkinu séu ekki svo sannfærð um að þetta sé rétt stefna, og eru fyrirtæki sum hver sögð vera að íhuga mótmæli og aðgerðir gegn þessari stefnu ríkisins. Þau eru sögð mótfallin þessu, þar sem þau vilja ekki að hið opinbera setji reglur um þessi mál.

Á Íslandi er laga­skylda á félögum að konur séu í það minnsta 40 prósent stjórnar­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár