Sigmundur Davíð stærri en Viðreisn, Björt framtíð og Framsókn

Fyrir­hugaður stjórn­málaflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar mælist með stuðning 7,3% kjósenda og mælist þar með stærri en Viðreisn, Björt framtíð og Framsóknar­flokkurinn.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Pressphotos

Fyrir­hugaður stjórn­málaflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar mælist með stuðning 7,3 prósenta kjósenda og mælist þar með stærri en Viðreisn, Björt framtíð og Framsóknar­flokkurinn. Þetta kemur fram í nýrri skoðana­könnun MMR. 

Í dag var greint frá því að Björn Ingi Hrafnsson, fyrr­verandi útgefandi og borgar­fulltrúi, hefði gengið til liðs við nýtt framboð Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar. 

Vinstri græn mælast enn með mest fylgi íslenskra stjórn­málaflokka, eða 24,7 prósent, samkvæmt könnuninni. Fylgi Sjálfstæðis­flokksins hefur lækkað um tæp tvö prósentu­stig frá síðustu könnun MMR sem lauk 4. september 2017 og mældist nú 23,5 prósent fylgi. Fylgi Samfylkingarinnar hækkaði á milli mælinga og er nú 10,4 prósent og fylgi Pírata lækkaði milli mælinga.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár