Ekki talið borga sig að reyna að lappa upp á Laugardalsvöll

Breskt ráðgjafa­fyrirtæki mælir með því að byggður verði nýr 15 þúsund sæta knattspyrnu­leikvangur, ýmist með opnanlegu þaki eða án. Ríkis­stjórnin hefur samþykkt að stefna að byggingu nýs vallar og ætlar í viðræður við Reykja­víkurborg um næstu skref.

Laugardalsvöllur var reistur fyrir 63 árum. Nú er stefnt að því að byggja nýjan völl.
Laug­ar­dals­völlur var reistur fyrir 63 árum. Nú er stefnt að því að byggja nýjan völl. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Breskt ráðgjafar­fyrirtæki hefur komist að þeirri niður­stöðu að hagkvæmasti kosturinn varðandi byggingu nýs þjóðar­leikvangs í knatt­spyrnu sé að byggja nýjan fótbolta­völl með sætum fyrir 15 þúsund áhorf­endur og að ekki sé fýsilegt til langs tíma að ráðast í endur­bætur á Laugar­dalsvelli.



Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn­völdum, en ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að hefja viðræður við Reykja­víkurborg um næstu skref vegna byggingu nýs þjóðar­leikvangs, að tillögu mennta- og menningar­mála­ráðherra og fjármála- og efnahags­ráðherra.

„Með slíkum viðræðum er mikilvægt skref stigið í þeirri vegferð að byggja keppnis­aðstöðu sem stenst alþjóðlegar kröfur, en undan­farin ár hefur Laugar­dalsvöllur þurft undanþágur og sérstakan viðbúnað vegna keppnis­leikja í alþjóð­legum mótum,“ segir í tilkynningunni.

Fjórir valkostir metnir og einungis nýr völlur talinn fýsilegur

Viðræðurnar við borgina munu byggja á valkosta­greiningu breska ráðgjafa­fyrir­tækisins AFL, sem varð hlut­skarpast í útboði sem efnt var til á evrópska efnahags­svæðinu snemma árs. Í greiningunni er kostnaðar- og tekjumat eftir­talinna valkosta, auk viðskipta­áætlunar og mats á efnahags­legum þáttum:

  1. Að núverandi völlur verði að mestu leyti óbreyttur, en ráðist verði í lágmarks­endurbætur og -lagfæringar.
  2. Að Laugar­dalsvöllur verði endur­bættur svo hann uppfylli kröfur og staðla Knattspyrnu­sambands Evrópu (UEFA) og Alþjóða knattspyrnu­sambandsins (FIFA).
  3. Að byggður verði nýr 15.000 manna leik­vangur, með opnanlegu þaki eða án þaks.
  4. Að byggður verði fjölnota­leikvangur með 17.500 sætum, með opnanlegu þaki eða án þaks.

Samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu stjórn­valda taldi AFL að 15 þúsund manna leik­vangur án þaks væri hagkvæmasti kosturinn, ef eingöngu væri horft til beinna fjárhagslegra þátta, en að hins vegar myndi slíkur leik­vangur með opnanlegu þaki skila bestu heildar­niður­stöðunni með tilliti til vinnslu­virðis, efnahagslegra áhrifa, nýtingar og fleiri þátta.

AFL telur, sem áður segir, að ekki sé fýsileg langtíma­lausn að fara þá leið að lappa upp á Laugar­dalsvöll, en eldri stúka vallarins var endurnýjuð og stækkuð á fyrsta áratug aldarinnar og fór sú framkvæmd töluvert umfram áætlun, eða um meira en 600 milljónir króna.

Valkosta­greiningin var unnin að undirlagi Þjóðar­leikvangs ehf., félags sem KSÍ, Reykja­víkurborg og ríkið stofnuðu til að halda utan um verkefnið.

Lilja vongóð um að nýr völlur rísi á næstu 5 árum

„Laugar­dalsvöllur var reistur af stórhug fyrir 63 árum og hefur reynst vel – fært þjóðinni ógleymanleg augnablik og skilað íslensku knattspyrnu­fólki á stærstu úrslita­keppnir í heimi. Hann er hins vegar barn síns tíma og langt frá því að uppfylla viðmið, m.a. um öryggi og aðstöðu vallar­gesta, aðgengi fatlaðs fólk, aðstöðu leikmanna, dómara og fjölmiðla, hitakerfi o.s.frv. Það er því löngu tímabært að ráðast í byggingu nýs þjóðar­leikvangs og ég er vongóð um að hann muni rísa á næstu 5 árum,“ er haft eftir Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menningar­mála­ráðherra í tilkynningu stjórn­valda.

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra segist fagna því að málið sé komið á hreyfingu.

„Nú þarf að meta hvernig haga skuli útboði á helstu verk­þáttum, t.d. verkefnis­stjórn, hönnun og bygginga­verktöku, en jafnframt þurfa máls­aðilar að semja um mikilvæga þætti eins og eignar­hald, fjár­mögnum. Ég er er fullur bjartsýni um að lending náist í því og að nýr þjóðar­leikvangur rísi sem allra fyrst,“ er haft eftir Bjarna, í tilkynningu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár