Þakklátur velgjörðarmönnum sínum

Hjalti Sigurjón Hauksson segist ekki vita til þess að Benedikt Sveinsson hafi hlutast til um að honum yrði haldið í vinnu hjá Kynnis­ferðum, en það megi vel vera.

Hjalti Sigurjón Hauksson segist aldrei hafa getað endurgoldið til fulls þá hjálp sem hann hefur fengið frá Benedikt Sveins­syni og fleiri athafna­mönnum. Hann viti ekki til þess að Benedikt hafi þrýst á að honum yrði haldið í vinnu hjá Kynnis­ferðum, en það megi þó vel vera.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Stundin greindi frá því í lok ágúst að Hjalti, sem dæmdur var árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúpdóttur sinni nær daglega á tólf ára tímabili, hefði fengið uppreist æru. 

Þegar í ljós kom að Benedikt Sveinsson, faðir forsætis­ráðherra, hafði veitt Hjalta meðmæli vegna umsóknar hans um uppreist æru gaf Benedikt út yfir­lýsingu þar sem hann lýsti kynnum þeirra með eftir­farandi hætti:

Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma tengdur kunningja­fólki okkar hjóna frá skólaárum. Hann hefur í nokkur skipti leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst vegna fjárhags­mála eða í tengslum við atvinnu­leit. Engin önnur tengsl hafa verið á milli okkar.

Að sögn Hjalta hafa þeir Benedikt þekkst í meira en 20 ár og er honum hlýtt til hans. „Ef Bjarni hefur 10 prósent af mann­kostum Benedikts, þá hlýtur hann að vera besti forsætis­ráðherra sem Ísland hefur átt,“ segir Hjalti.

Hjalti segist í raun aldrei hafa getað endurgoldið þá greiða sem Benedikt hefur gert sér, nema með viðleitni sinni til að verða betri og heil­steyptari maður. Hann hafi oft kosið í próf­kjörum hjá Sjálfstæðis­flokknum og stutt Bjarna Benediktsson í pólitík. Það hafi hann þó gert af sannfæringu frekar en af sérstakri greiðasemi. 

Fékk lögmannsþjónustu hjá  LEX

Starfaði á LEXBjarni Bene­dikts­son starf­aði við lög­mennsku á þessum tíma og var með­eig­andi að lög­manns­stof­unni Lex.

Árið 2002 var Hjalti kærður til lögreglu og svo ákærður, gefið að sök að hafa misnotað stjúpdóttur sína nær daglega á 12 ára tímabili frá því hún var um fimm ára gömul. Það var þá sem hann fór á fund Bjarna Benedikts­sonar sem þá starfaði við lögmennsku og var einn af meðeigendum lögmanns­stofunnar Lex. Hjalti segir að Bjarni hafi stappað í sig stálinu og útvegað sér góðan lögmann á stofunni, Ragnheiði Margréti Ólafs­dóttur. Hún varði Hjalta í héraði en Helgi Jóhannesson, einn af eigendum Lex, var verjandi hans fyrir Hæstarétti. Segist Hjalti enn ekki hafa greitt til fulls fyrir þá þjónustu sem Lex veitti honum. 

Nokkru eftir að Hjalti hafði afplánað fangelsis­dóminn fékk hann vinnu hjá Kynnis­ferðum. Sveinn Eyjólfur Matthíasson, fyrr­verandi verkefnis­stjóri hjá Kynnis­ferðum, hefur lýst því í viðtali við Stundina hvernig hann og fleiri innan fyrir­tækisins voru beittir þrýstingi til að halda Hjalta í vinnu. Þegar Stundin ræddi við brotaþola Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar í byrjun september sagði hún að það hefði valdið henni óþægindum að Hjalti ynni hjá Kynnis­ferðum, enda hafi hún sjálf á þessum tíma verið í vinnu sem krafðist þess að hún fengi reglulega far með rútum fyrir­tækisins. Hún hafi gætt þess að þurfa ekki að sitja í rútu sem Hjalti væri að keyra.

Hjalta var sagt upp eftir að umræða vaknaði innan fyrir­tækisins um kynferðis­brota­dóminn og starfs­menn fóru að núa honum málinu um nasir. Í kjölfarið bárust skilaboð að ofan, úr eigenda­hópi Kynnis­ferða, um að aftur­kalla bæri uppsögnina tafar­laust. Á þeim tíma voru Benedikt Sveinsson og fjöl­skylda hans yfir­gnæfandi í eigenda­hópi Alfa hf. sem átti allt hlutafé í Kynnis­ferðum. Fyrir­tækið er enn í dag að stórum hluta í eigu foreldra, föður­bróður, systkina og frændsystkina Bjarna Benedikts­sonar.

„Við vissum af þessum vina­tengslum Hjalta og Benedikts [Sveins­sonar]. Hjalti talaði um það við okkur mjög oft, að þeir væru bestu vinir og svo framvegis,“ segir Sveinn Eyjólfur í samtali við Stundina og bendir á að þrýstingurinn um að halda Hjalta í vinnu hjá Kynnis­ferðum hafi borist að ofan, í gegnum æðstu stjórn­endur fyrir­tækisins. „Hann fór samt alltaf þessa leið. Hann fór í gegnum stjórnar­formanninn, sem hluti af stjórninni, niður til framkvæmda­stjóra og frá framkvæmda­stjóra til mín og rekstrar­stjóra.“ 

Aðspurður um málið viðurkennir Hjalti að það geti hugsast að hann hafi notið góðs af vinskap sínum við Benedikt Sveinsson hjá Kynnis­ferðum. Þá segist hann vera málkunnugur áhrifa­mönnum í Sjálfstæðis­flokknum og það hafi stundum komið sér vel fyrir hann, þegar vantað hefur verkefni eða störf. Þetta hafi ekki síst átt við í gamla daga þegar hann rak skurðgröfu­þjónustu. Að sama skapi hafi honum verið refsað af fulltrúum annarra flokka, til að mynda í borginni. „Svo segja sumir að Sjálfstæðis­flokkurinn sé spilltur. Ætli það séu ekki miklu frekar hinir. Ef eitthvað er, þá ættum við sjálfstæðis­menn að vera grimmari,“ segir Hjalti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár