Áformað að taka við 35-70 manns frá Afganistan

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að taka við allt að 70 flótta­mönnum frá Afganistan. Sérstak­lega á að beina sjónum að því að taka á móti einstæðum konum og börnum þeirra, samkvæmt tilkynningu frá stjórn­völdum.

Frá samstöðufundi með Afgönum á Austurvelli síðsumars.
Frá sam­stöðu­fundi með Afgönum á Aust­ur­velli síð­sum­ars. Mynd: Bára Huld Beck

Ríkis­stjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að tekið yrði á móti 35-70 manns frá Afganistan, til viðbótar við þann hóp flótta­manna sem hefur þegar komið þaðan á undan­förnum mánuðum, vegna ástandsins sem ríkir í landinu eftir valdatöku talíbana.

„Lífs­skilyrði þar hafa farið ört versnandi undan­farna mánuði og telur ríkis­stjórnin brýnt að bregðast frekar við því. Flóttamanna­nefnd hefur verið falið að útfæra tillögu ríkis­stjórnarinnar en horft verður sérstak­lega til einstæðra kvenna í viðkvæmri stöðu sem hafa náin tengsl við Ísland og barna þeirra. Erfitt er að meta nákvæman fjölda sem tekið verður á móti þar sem hann fer eftir fjölskyldu­samsetningu,“ segir í sameiginlegri tilkynningu fjögurra ráðuneyta um þetta í dag.

Í tilkynningunni segir að 78 manns hafi komið til landsins frá Afganistan síðasta haust, en ríkis­stjórnin boðaði skömmu eftir valdatöku talíbana að tekið yrði á móti tilgreindum hópi Afgana sem hefði tengsl við Ísland, alls um 90-120 manns. Um fjörutíu manns til viðbótar sem fengu boð um skjól á Íslandi þáðu boð um skjól í öðru ríki.

Að tillögu flóttamanna­nefndar var í haust lögð áhersla á að bjóða velkomna einstaklinga sem unnu með eða fyrir Atlantshafs­bandalagið, fyrr­verandi nemendur við Alþjóð­lega jafnréttis­skólann á Íslandi (GRÓ-GEST) og einstaklinga sem áttu rétt á fjölskyldu­sameiningu eða voru þegar komnir með samþykkta umsókn um dvalar­leyfi.

Síðasti hópur flótta­manna frá Afganistan kom hingað til lands skömmu fyrir jól. Ekki liggur fyrir hvenær þess megi vænta að tekið verði á móti þeim hópi sem stjórn­völd hafa nú tilkynnt að tekið verði á móti.

Milljónir líða hungur

Staða mála í Afganistan er orðin mjög þung, frá valdatöku talíbana, en með henni fjaraði stuðningur vestrænna ríkja við ríkis­stjórn landsins út, með hörmulegum afleiðingum fyrir efnahag landsins og grunn­þjónustu afganska ríkisins.

Hungurs­neyð er í landinu, en mat stofnana Sameinuðu þjóðanna er að um helmingur íbúa landsins líði alvarlegt hungur. Þar af er talið að um ein milljón barna standi frammi fyrir alvarlegri vannæringu. Sameinuðu þjóðirnar sendu á dögunum út neyðarboð um hjálp til handa íbúum landsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár