Google: „Hæ kæri notandi, við viljum fara að græða á þér“

Google mun frá og með 1. júní á næsta ári ekki lengur bjóða upp á ótak­markað ókeypis geymslu­pláss fyrir ljós­myndir og mynd­bönd. Yfir millj­arður manna notar Google Photos til þess að geyma sitt efni í ský­inu og nú vill fyr­ir­tækið láta fólk fara að borga.

Google Photos verður ekki lengur með ókeypis ótakmarkað geymslupláss fyrir ljósmyndir og myndskeið frá og með 1. júní 2021.
Google Photos verður ekki lengur með ókeypis ótak­markað geymslu­pláss fyrir ljós­myndir og mynd­skeið frá og með 1. júní 2021. Mynd: EPA

Þann 1. júní 2021 mun tækni­fyr­ir­tækið Google hætta að bjóða upp á ótak­markað ókeypis pláss fyrir ljós­myndir í háum gæðum í skýja­lausn­inni Google Photos, sem stór hluti jarð­ar­búa hefur á und­an­förnum árum byrjað að nýta til þess að geyma ljós­myndir og mynd­skeið sem ekki er lengur pláss fyrir í snjall­símum.

Helsta aðdrátt­ar­aflið við þessa lausn hefur einmitt verið hið ótak­mark­aða ókeypis geymslu­pláss, á meðan að mörg önnur fyr­ir­tæki hafa lengi rukkað fyrir sína skýja­þjón­ustu.

Google aug­lýsti „ókeypis og ótak­markað“ af miklum krafti árum saman og yfir millj­arður not­enda um heim allan notar þessa lausn nú til þess að taka afrit af ljós­myndum og færa í staf­ræna geymslu. 28 millj­örðum mynda er hlaðið upp í Photos-skýið í hverri viku, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Google.

En brátt verður geymslu­plássið ekki lengur ókeypis. Þess í stað verður hægt að geyma 15 gíga­bæt af myndum og mynd­skeiðum og öðru efni hjá Google án end­ur­gjalds, en fyrir umfram­geymslu­pláss mun þurfa að greiða sér­stak­lega. Eigendur Pixel-snjall­síma frá Google munu reyndar áfram geta geymt sínar myndir í háum gæðum ókeypis.

Myndir og mynd­skeið sem búið verður að hlaða upp í skýið fyrir 1. júní á næsta ári munu ekki telja með í þessum 15 gíga­bætum, svo fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því að eldri myndir fylli kvót­ann um leið. Á sama tíma mun Google kynna til leiks nýja tækni­lausn til þess að finna og flokka frá dökkar eða hreyfðar ljós­myndir og eyða þeim og spara þannig geymslu­pláss.

„Þessi ákvörðun er tekin að ígrund­uðu ráði og við gerum okkur grein fyrir að þetta er mikil breyt­ing. Þess vegna vildum við láta þig vita með góðum fyr­ir­vara og sýna þér hvað þú getur gert,“ sagði Google í til­kynn­ingu til íslensku­mæl­andi not­enda sinna í gær­kvöldi.

Þar sagði einnig að Google áætli að flestir muni ekki þurfa að grípa til aðgerða næstu árin, en fyr­ir­tækið er búið að búa til sér­sniðna áætlun sem spáir fyrir um hvenær hver og einn not­andi verði búinn að fylla þau 15 gíga­bæt af ókeypis geymslu­rými sem hann nýtir í dag.

Í til­felli blaða­manns Kjarnans verður það eftir um það bil eitt ár, að mati Google.

En af hverju er Google að þessu? Einfalda svarið virð­ist vera það að Google vilji fara að hafa tekjur af þeim gríð­ar­lega fjölda not­enda sem það hefur lokkað inn í for­ritið með því að bjóða upp á gjald­frjálsa þjón­ustu í sam­keppni við aðra aðila eins og Apple, sem rukkar mán­að­ar­legt gjald fyrir iCloud-þjón­ustu sína.

Í umfjöllun banda­ríska tækni­mið­ils­ins Verge um þessar breyt­ingar segir að það sé álit­leg ágiskun að Google vilji að fleiri ger­ist áskrif­endur að gagna­geymslu­lausn­inni Google One, sem býður upp á að fólk ger­ist mán­að­ar­legir áskrif­endur að staf­rænu geymslu­plássi.

Í dag kosta 100 gíga­bæt af plássi tæpa tvo banda­ríkja­dali á mán­uði í Google One og svo er hægt að ger­ast áskrif­andi að stærri pökkum fyrir meiri pen­ing, alla leið upp í að greiða tæpa 150 dali á mán­uði fyrir 30 tera­bæta áskrift, en 30 tera­bæti eru 30.000 gíga­bæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár