Lögmaður Samherja ekki lengur kjörræðismaður Kýpur á Íslandi

Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu barst til­kynn­ing um það 2. júní að Arna B. McClure, lög­maður Samherja til margra ára, hefði látið af störfum sem kjör­ræð­is­maður Kýpur á Íslandi.

Utanríkisráðuneytinu barst tilkynning um brotthvarf Örnu frá kýpverskum stjórnvöldum þann 2. júní.
Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu barst til­kynn­ing um brott­hvarf Örnu frá kýp­verskum stjórn­völdum þann 2. júní. Mynd: Bára Huld Beck

Arna Bryndís Baldvins McClure, sem hefur verið lög­maður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja und­an­farin ár, hefur látið af störfum sem kjör­ræð­is­maður Kýpur á Íslandi. Nafn hennar er ekki að finna lengur, hvorki á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins né á vef Félags kjör­ræð­is­manna.

Utan­rík­is­ráðu­neytið seg­ist, í svari til Kjarnans, ekki hafa upp­lýs­ingar um brott­hvarf Örnu úr þess­ari stöðu, aðrar en þær að ráðu­neyt­inu barst til­kynn­ing 2. júní frá stjórn­völdum á Kýpur að kjör­ræð­is­maður þeirra á Íslandi hefði látið af störfum.

Arna Bryndís er einn þeirra starfs­manna og laun­aðra ráð­gjafa fyr­ir­tæk­is­ins sem köll­uðu sig „skæru­liða­deild“ Samherja í sam­skiptum sín á milli, en fjallað var um sam­skipta­gögn innan úr Samherja í röð frétta­skýr­inga sem birt­ust í Kjarn­anum undir lok maí­mán­aðar.

Hún er einnig á meðal þeirra sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna Samherja sem fengu rétt­ar­stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur hjá sér­stökum sak­sókn­ara í fyrra vegna Namib­íu­máls­ins svo­kall­aða.

Í mál­inu er grunur um að mútu­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­ars til erlendra opin­berra starfs­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðg­un­ar­brot.

Staða Örnu sem kjör­ræð­is­manns Kýpur á Íslandi hefur vakið nokkra athygli, í raun alveg frá því að Namib­íu­málið kom upp á yfir­borðið í nóv­em­ber 2019.

Það hefur sagt frá því að hún gegni þess­ari stöðu, ekki síst í sam­hengi við mikil umsvif Samherja á Kýpur og við það að meintar mútu­greiðslur til namibískra áhrifa­manna fóru frá dótt­ur­fé­lagi Samherja til heim­ilis á Kýpur og inn á reikn­ing í Dúbaí í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár