Katrín: Engin sátt um sveltistefnu í heilbrigðis- og menntamálum

Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, segir fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar ganga í berhögg við ákall kjósenda um uppbyggingu innviða og aukna velferð.

Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, segir fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar einkennast af svelti­stefnu og ganga í berhögg við ákall kjósenda í síðustu kosningum um að blásið yrði til sóknar í heil­brigðis- og mennta­málum og uppbyggingu innviða. 

„Þarna er lagt til að svelti­stefnan sem boðuð var í fjármála­áætlun verði lögfest. Stóra myndin er sú að samneyslan dregst saman sem hlutfall af vergri lands­framleiðslu. Hún hefur dregist saman frá árinu 2013 um tæp 4 prósentu­stig. Þótt þetta skýrist auðvitað að hluta til af þáttum á borð við minnkandi atvinnu­leysi, þá er það svo að ákall kjósenda fyrir um ári var að blásið yrði til sóknar í heilbrigðis­málum, skóla­málum og kjörum aldraðra og öryrkja,“ segir Katrín í samtali við Stundina.

„Vaxta- og barna­bætur eru á niðurleið og þetta bitnar á ungu barna­fólki. Svo er ekki komið til móts við það sem háskólarnir og framhalds­skólarnir hafa kallað eftir og sagt þurfa til að geta staðið undir nafni.“

Ekki komið til móts við vilja fjárlaganefndar

Katrín bendir á að í nefndar­áliti meirihluta fjár­laganefndar um fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar í vor hafi verið kallað eftir því að aðhalds­krafan á framhalds­skóla yrði endur­skoðuð og að viðbótarféð sem háskóla­stiginu var úthlutað á fjárlaga­árinu 2017 héldist áfram í fjárlögum fyrir árið 2018.

„Mér sýnist ekki vera komið til móts við þessar ábendingar,“ segir Katrín. Að því er fram kemur í greinar­gerð fjár­laga­frum­varpsins mun aðeins helmingur af hinu 1,078 milljarða framlagi á yfir­standandi fjárlagaári haldast í fjárlögum næsta árs.

Tveggja prósenta aðhalds­kröfu ríkis­stjórnarinnar gagnvart framhalds­skóla­stiginu verður fylgt eftir og felur í sér að framlögin eru 576,8 milljónum lægri en þau væru ella. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir niður­fellingum á tíma­bundnum framlögum til mála­flokksins. 

Hefur áhyggjur af vaxandi þunga
einkareksturs í heilbrigðisþjónustu

Katrín segist fagna því að umhverfis­skattar hækki og að auðvitað sé ánægjulegt að staðið sé við áform um byggingu nýs spítala. Hins vegar sé óásættanlegt að rekstri sjúkra­húsanna sé sniðinn jafn þröngur stakkur og raun ber vitni.

Eins og Stundin greindi frá í dag er aðeins gert ráð fyrir 597 milljóna aukningu til reksturs og þjónustu Land­spítalans og 75 milljóna aukningu til Sjúkra­hússins á Akureyri. „Ég trúi ekki að það sé sátt um þetta. Þetta er ekki það sem kallað var eftir í aðdrag­anda síðustu kosninga,“ segir Katrín.

Í fjár­laga­frumvarpinu er lagt til að veitt verði heimild til aukins samstarfs sjúkra­húsa og Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins við einka­fyrirtæki í heilbrigðis­geiranum. „Við höfum auðvitað lýst áhyggjum af vaxandi þunga einka­reksturs í heilbrigðis­málum og viljum auðvitað vita hvað nákvæmlega á að felast í þessari heimild,“ segir Katrín. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár