Endurskoða friðlýsingu Hverfjalls

Í tillögu að endur­skoðun frið­lýsingar Hver­fjalls er hið friðaða svæði minnkað um tæplega 0,4 ferkílómetra. Er breytingin gerð að beiðni land­eigenda. Friðunin nær nú yfir rúmlega 3 ferkílómetra svæði en samkvæmt tillög­unni yrði það 2,76 ferkíló­metrar.

Kort sem fylgir tillögu að endurskoðaðri friðlýsingu Hverfjalls.
Kort sem fylgir til­lögu að end­ur­skoð­aðri frið­lýs­ingu Hverfjalls. Mynd: Umhverfisstofnun

Umhverfis­stofnun hefur lagt fram tillögu að endur­skoðun frið­lýsingar náttúruvættisins Hver­fjalls í Skútu­staðahreppi. Tillagan er unnin af samstarfs­hópi sem í eiga sæti fulltrúar land­eigenda Voga, Umhverfis­stofnunar, Skútu­staðahrepps og umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins.

Eldri frið­lýsingar­skilmálar eru frá árinu 2011 og samkvæmt þeim átti að endurmeta hana að tíu árum liðnum. Að þeim tíma­punkti er nú komið.

„Helsta breytingin sem verður ef tillagan verður samþykkt er að mörk svæðisins breytast, það er að svæðið minnkar örlítið. Þetta er gert a beiðni land­eigenda,” segir Arna Hjörleifs­dóttir, sérfræðingur hjá Umhverfis­stofnun, í svari við fyrir­spurn Kjarnans um endur­skoðun frið­lýsingarinnar.

Í eldri frið­lýsingar­skilmálum, sem enn eru í gildi, var hið friðaða svæði 3,127 ferkílómetrar að stærð. Verði hin nýja tillaga samþykkt minnkar friðaða svæðið um tæplega 0,4 ferkílómetra.

Arna segir að í ljósi þess að verið var að endur­skoða mörk svæðisins var auglýsing um frið­lýsingu uppfærð, röð greina breytt og bætt inn áherslum um að svæðið væri ferðamanna­staður. Þá voru einnig sett inn ákvæði um heimild til að gera umsjónar­samning. Ekki er lagt til að gerðar verði aðrar efnislegar breytingar.

Hverfjall er stór, hringlaga öskugígur, um 1000 metrar í þvermál, sem rís 90-150 metra yfir flat­lendið umhverfis. Gígurinn myndaðist fyrir um 2500 árum í þeytigosi í grunnu stöðu­vatni og er sérstakur að því leyti að gígskálin er álíka djúp og gígurinn er hár. Hlíðar gígsins eru brattar og þétt settar af vatns­rásum. Hann er í röð fegurstu og reglu­bundnustu ösku­gígamyndana sem gefur að líta á Íslandi og talinn í röð þeirra stærstu sinnar tegundar á jörðinni. Hverfjall er syðsti hluti a.m.k. 1800 metra langrar gossprungu. Norðan þess eru því minni gígar úr sama gosi, auk túff­stabba sem myndaðist við gjósku­flóð frá Hver­fjalli. Í túff­stöbbunum er að finna stein­gerðar jurta­leifar.

Markmiðið með frið­lýsingu Hver­fjalls (Hverfells) er að vernda sérstæðar jarð­myndanir svæðisins og að tryggja að svæðið nýtist til útivistar og fræðslu, enda útivistar- og fræðslu­gildi hátt. Með frið­lýsingunni er verndar­gildi svæðisins tryggt og jafnframt tryggt að svæðið nýtist til útivistar og ferða­þjónustu til framtíðar og sé í stakk búið til að taka á móti þeim fjölda gesta sem heimsækja svæðið, segir í frétt á vef Umhverfis­stofnunar um tillögu að endur­skoðaðri frið­lýsingu.

Frestur til að skila athuga­semdum við tillöguna er til og með 25. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár