Áhrif evru á fasteignalán Íslendinga

Ef vextir á húsnæðis­lánum lækka má gera ráð fyrir að húsnæðis­verð hækki fyrst um sinn. Þegar frá líður mun húsnæðis­verð líklega fyrst og fremst endur­spegla byggingar­kostnað og verð á lóðum, skrifar Sigurður Jóhannesson, sérfræðingur við Hagfræði­stof­unun HÍ.

Á Evrópuvef Háskóla Íslands og Alþingis leitar Sigurður Jóhannesson, sérfræðingur við Hagfræðistofunun HÍ, svara við því hvernig vextir á húsnæðis­lánum gætu breyst ef Ísland tækju upp evru. Þar segir að vextir á húsnæðis­lánum á evru­svæðinu gefi hugmynd um þau vaxtakjör sem gætu verið í boði hér á landi ef Íslendingar tækju upp evru.

Myndin hér fyrir neðan sýnir kjör á lánum til húsnæðis­kaupa í þeim löndum sem tóku þátt í evru­samstarfinu frá upphafi, eða um það bil.  

Vextir hærri á ÍslandiNafn­vextir óverð­tryggðra hús­næð­is­lána á Íslandi (ferl­arnir fjórir ofar­lega á mynd­inni) og á evru­svæð­inu í pró­sentum árin 2001-2025.

Vextir á lánum til húsnæðis­kaupa í Grikk­landi eru sýndir með þykkri blárri línu á myndinni. Til saman­burðar sýnir myndin vexti á óverðtryggðum húsnæðis­lánum íslenskra banka og lífeyris­sjóða.

„Þau hafa verið í boði frá 2010. Hafa verður fyrirvara á saman­burðinum, því að upplýsingarnar eru úr tveim áttum og einhverju getur munað í meðferð talnanna. Þá verður að hafa í huga að horft er á nafnvexti en ekki raunvexti. Verðbólga samkvæmt samræmdri vísitölu var að jafnaði um hálfu prósenti meiri á Íslandi en á evru­svæðinu á árunum 2010-2020, en tæpu einu prósenti hærri að jafnaði 2020-2025. Hér hefur húsnæðis­kostnaður lítið vægi, en hann hefur hækkað mikið á Íslandi undan­farin ár,“ skrifar Sigurður. 

Þá bendir hann á að ef vextir á húsnæðis­lánum hér á landi lækka með nýjum gjald­miðli megi gera ráð fyrir að húsnæðis­verð hækki, að minnsta kosti fyrst um sinn. Þegar frá líður muni húsnæðis­verð líklega fyrst og fremst endur­spegla byggingar­kostnað og verð á lóðum. 

„Frá því að íslenskar lána­stofnanir fóru að bjóða óverðtryggð húsnæðislán hafa vextir alltaf verið hærri hér en á evru­svæðinu, en munurinn er mismikill. Litlu munaði á vöxtum hér á landi og á evru­svæðinu árið 2011 og fram á 2012 og aftur frá seinni hluta árs 2020 fram á 2022. Seinustu árin hefur munurinn aukist aftur. Í febrúar 2026 voru vextir á óverðtryggðum lánum til húsnæðis­kaupa á evru­svæðinu að jafnaði 2,8 til 3,8% í hverju landi sem skoðað er á myndinni en á Íslandi voru vextir á óverðtryggðum húsnæðis­lánum þá 8,6 til 9,8%. Munurinn er meiri en oft áður. Það stafar sennilega af því að nú er búist við meiri verðbólgu á Íslandi en á evru­svæðinu.“

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Samkvæmt markaðslögmálunum þá er það nú fyrst og fremst framboð og eftirspurn sem ræður húsnæðisverðinu en ekki byggingakostnaðurinn. Við höfum séð það hvernig verð á fasteignum hefur hækkað eftir að eftirspurnin jókst með tilkomu ferðamannanna og hvernig byggingavertakar hafa grætt á tá og fingri vegna þess.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár