Mueller hefur skilað Rússa-skýrslunni til dómsmálaráðherra

Ekki liggur fyrir hversu stór hluti af skýrslunni verður gerður opinber.

Robert Mueller, sem stýrt hefur rannsókn á því hvort Rússar hafi blandað sér í bandarísk stjórnmál í aðdrag­anda forseta­kosninganna 2016, hefur skilað skýrslu sinni til Bill Barr, dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna.

Það er í höndum hans að ákveða hversu stór hluti af skýrslunni verður gerður opinber, en hann hefur látið hafa eftir sér að hann vilji að eins stór hluti af skýrslunni verði gerður opinber, eins og hægt er samkvæmt lögum.

Samkvæmt Washington Post er líklegt að Barr muni taka sér nokkra daga í að draga saman helstu atriði úr skýrslunni, og kynna síðan fyrir Banda­ríkjaþingi.

Rannsókn Mueller hefur nú þegar leitt til ákæru á hendur 34 einstaklingum, þar á meðal 6 fyrr­verandi ráðgjöfum Donalds Trumps, Bandaríkja­forseta, að því er segir í umfjöllun Washington Post.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár