Trump og Kim Jong Un ætla að funda

Það telst til mikilla tíðinda að Donalt Trump hafi ákveðið að taka boði leiðtoga Norður-Kóreu um að funda með honum um tilraunir með lang­drægar flaugar og kjarnorku­áætlun Norður-Kóreu.

Donald Trump Bandaríkja­forseti mun funda með Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, á næstu viku. Um þetta tilkynnti Hvíta húsið í gær, en Kim Jong Un hafði frumkvæði að því að bjóða Trump til viðræðna.

Umræðu­efnið á fundinum verður kjarnorku­áætlun Norður-Kóreu og tilraunir með lang­drægar flaugar, sem hafa verið harðlega gagn­rýndar af alþjóða­samfélaginu og er landið nú beitt hörðum efnahags­þvingunum vegna þeirra.

Meðal þess sem efnahags­þvinganirnar ná til eru víðtækar aðgerðir til að sporna við innflutningi á olíu. Þessar aðgerðir hafa haft lamandi áhrif á efnahags­lífið í Norður-Kóreu. Þó það teljist ekki þróað, á vestrænan mæli­kvarða, þá er landið háð olíu eins og önnur lönd, þegar kemur að fram­leiðslu og almennu gangverki í efnahags­lífi.

Íbúar í Norður-Kóreu eru 25,3 milljónir.

Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa sagt aðgerðirnar, sem Sameinuðu þjóðirnar styðja, vera ígildi stríðs­yfir­lýsingar.

Tónninn í opinberum yfir­lýsingum frá Norður-Kóreu hefur þó breyst mikið á skömmum tíma, og spila Ólympíu­leikarnir í Suður-Kóreu þar mikla rullu. Eftir þá komust á viðræður á milli Norður- og Suður-Kóreu. Spennan í samskiptum þessara granna hefur minnkað mikið, og hafa þjóðirnar samþykkt að halda áfram viðræðum og samskiptum með það að markmiði að skapa betri samstarfs­grundvöll og tryggja frið.

Fundur Trumps og Kim Jong Uns mun marka tímamót, en yfirvöld í Suður-Kóreu hafa miðlað málum og áttu ríkan þátt í því að koma fundinum á, samkvæmt frásögn New York Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár