Víðerni Vonarskarðs myndu skerðast um helming með akstursleið

„Íslendingar eru vörslu­menn tæpra 43 prósenta af villtustu víðernum Evrópu og það er á ábyrgð okkar allra að vernda þau,“ segir Steve Carver, forstöðu­maður Wildland Research Institute, sem vinnur að kort­lagningu óbyggðra víðerna hálendisins.

Myndin sýnir víðernagreiningu Vonarskarðs í dag borið saman við víðernagreiningu ef akstur yrði leyfður í gegnum svæðið. Græn þekja táknar ósnortnasta kjarna víðernanna, það landsvæði sem hefur mesta verndargildið og er lengst frá mannvirkjum og vegum.
Myndin sýnir víð­erna­grein­ingu Von­ar­skarðs í dag borið saman við víð­erna­grein­ingu ef akstur yrði leyfður í gegnum svæðið. Græn þekja táknar ósnortn­asta kjarna víð­ern­anna, það land­svæði sem hefur mesta vernd­ar­gildið og er lengst frá mann­virkjum og vegum. Mynd: Óbyggð

Óbyggð víðerni Vonar­skarðs myndu skerðast um 54 prósent yrðu vélknúin ökutæki leyfð þar að mati Wildland Research Institute, sjálf­stæðrar rannsóknar­stofnunar við háskólann í Leeds á Englandi. Í nýútgefinni skýrslu stofnunarinnar, sem unnin var að frumkvæði margra íslenskra náttúru­verndar­samtaka, er að finna fyrstu kort­lagningu óbyggðra víðerna á miðhálendi Íslands með alþjóðlegri aðferða­fræði. Í upphafi árs setti Alþingi laga­ákvæði um skyldu til að kort­leggja óbyggð víðerni á landinu. Kort­lagningu víðerna á samkvæmt náttúru­verndar­lögum að vera lokið fyrir júní 2023.

Aðferðum WRi var fyrst beitt hér á landi árið 2019 er kortlögð voru áhrif Hval­árvirkjunar á víðerni hefði hún verið byggð. Þegar er hafin samsvar­andi kort­lagning miðhálendisins alls.

Vonar­skarð í Vatna­jökuls­þjóðgarði liggur milli Vatna­jökuls og Tungna­fellsjökuls. Þar er að finna háhita­svæði í um 950–1100 metra hæð yfir sjávar­máli með óvenju­lega fjöl­breyttum gróðri, litskrúðugu hvera­svæði og sjaldgæfum háhita­lífverum með hátt verndar­gildi. Þar finnst einnig ein hæsta mýri landsins í yfir 900 m hæð yfir sjó. „Landslag er óvenjulegt, stór­brotið og fjöl­breytt; jöklar og há fjöll, sands­léttur og áraurar, jökulár, berg­vatnsár og volgar lindir og litfagrir hverir,“ segir m.a. í umfjöllun um það á vef Vatna­jökuls­þjóðgarðs.

Frá árinu 2011 hefur það verið lokað fyrir bíla­umferð „nema á frosinni og snæviþakinni jörð í samræmi við almenna skilmála um vetrar­akstur“ og er því samkvæmt stjórnunar- og verndar­áætlun garðsins vettvangur göngu­fólks. Lokunin hefur hins vegar verið umdeild og mikil umræða skapast um hana síðustu misseri.

Í skýrslu Wildland Research Institute eru áhrif þess að opna Vonar­skarð fyrir jeppa­umferð metin með sérstakri áherslu á víðernin sem þar er að finna. Niður­staðan er sú að ef umferð jeppa yrði leyfð um skarðið á slóðunum sem þar lágu áður milli Svart­höfða í suðri og Gjóstu­klifs í norðri myndu 6.515 hektarar óbyggðra víðerna svæðisins, eða um 54 prósent, glatast. Við greininguna voru áhrif aksturs að sumar- og haustlagi sérstak­lega metin, en ekki akstur á frosinni jörð að vetri.

Greiningin var gerð með kort­lagningu ákveðinna þátta í Vonar­skarði, s.s. náttúru­legu landslagi og fjarlægð frá ökufærum leiðum og öðrum mannanna verkum. WRi hefur þróað nákvæmar stafrænar aðferðir til að kort­leggja og skilgreina óbyggð víðerni (e. wilderness) sem byggist á greiningu á stafrænum, þrívíðum land­upplýsinga­gögnum, land­notkun, fjarlægð frá mann­virkjum og aðgangs­stöðum vélknúinna farar­tækja. Gögnin eru m.a. notuð til að greina með mikilli nákvæmni sýnileika mann­virkja sem geta haft áhrif á víðerna­upplifun. WRi hefur þróað forrit til þessarar greiningar sem byggir á svipuðum aðferðum og forrit tölvu­leikja.

Nokkur náttúru­verndar­samtök tóku höndum saman fyrr á þessu ári undir heitinu Óbyggð og fengu WRi til að beita þessum aðferðum til kort­lagningar víðerna miðhálendisins. Ráðnir voru þrír sumar­starfsmenn, allt íslenskir háskóla­nemar, til að halda utanum verkefnið á Íslandi, en þrír sérfræðingar WRi hafa unnið að verk­efninu undan­farna mánuði.

„Það er löngu tímabært og mjög mikilvægt að beita alþjóð­lega viðurkenndum aðferðum við kort­lagningu víðerna hér á landi,“ er haft eftir Árna Finnssyni, formanni Náttúru­verndar­samtaka Íslands og Hörpu Barkar­dóttur, formanni Samtaka um náttúru­vernd á Norður­landi, í frétta­tilkynningu sem Óbyggð sendi frá sér í tilefni af útkomu skýrslu WRi. „Faglegur undir­búningur ákvarðana er ávallt til bóta og samtök okkar fagna þessu skrefi.“

Í tilkynningunni er einnig haft eftir Steve Carver, forstöðu­manni WRi, að það að standa vörð um óbyggð víðerni séu nú efst á blaði markmiða Ramma­samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræði­lega fjöl­breytni. „Íslendingar eru vörslu­menn tæpra 43 prósenta af villtustu víðernum Evrópu og það er á ábyrgð okkar allra að vernda þau.“

WRi hefur unnið að þróun ítarlegrar kort­lagningar á víðernum í samráði við skosk stjórn­völd, meðal annars í þjóð­görðum og óbyggðum víðernum. Að auki er WRi meðhöfundur viða­mikillar víðerna­kort­lagningar Evrópu­sambandsins og aðstoðar Alþjóða náttúru­verndar­sambandið (IUCN) við kort­lagningu víðerna­gæða í Frakk­landi. WRi hefur einnig unnið með þjóðgarða­stofnun Banda­ríkjanna og unnið að mati á víðerna­gæðum í Kína.

Hér er hægt að nálgast skýrslu WRi um Vonar­skarð í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár