Utanvegaakstur í Vonarskarði – „Ég er bara miður mín“

„Þetta er mjög leið­in­legt. Ég er bara miður mín,“ segir Fanney Ásgeirs­dóttir, þjóð­garðs­vörður í Vatna­jök­uls­þjóð­garði, um nátt­úru­spjöll vegna utan­vega­akst­urs í Von­ar­skarði. Málið hefur verið kært til lög­reglu.

Miklar skemmdir urðu á gróðri vegna aksturs bíla um Vonarskarð síðari hluta ágúst.
Miklar skemmdir urðu á gróðri vegna akst­urs bíla um Von­ar­skarð síð­ari hluta ágúst. Mynd: Vatnajökulsþjóðgarður

„Þetta svæði er ein­stakt. Þetta er gull­moli. Spari­stofan,“ segir Fanney Ásgeirs­dóttir, þjóð­garðs­vörður í Vatna­jök­uls­þjóð­garði, um við­brögð sín við nýupp­götv­uðum nátt­úru­spjöllum vegna utan­vega­akst­urs í Von­ar­skarði. Spjöllin voru unnin síð­ari hluta ágúst og að minnsta kosti þrír bílar voru þar á ferð. Ekið var yfir gróð­ur­vinjar svo djúp för urðu í mosa og öðrum við­kvæmum gróðri. Að auki hafa bíl­stjór­arnir spólað í brekku svo hún „lík­ist helst sand­gryfju,“ eins og Fanney lýsir því. Hún seg­ist miður sín yfir athæf­inu sem kært hefur verið til lög­reglu. Ferða­fólkið sem olli spjöll­unum hlóð svo einnig 24 litlar vörður til að merkja leið sem það komst að lokum upp úr skarð­inu.

[adspot]

Von­ar­skarð í Vatna­jök­uls­þjóð­garði liggur milli Vatna­jök­uls og Tungna­fells­jök­uls. Frá árinu 2011 hefur það verið lokað fyrir bíla­um­ferð „nema á fros­inni og snævi­þak­inni jörð í sam­ræmi við almenna skil­mála um vetr­ar­akstur“ og er því sam­kvæmt stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun garðs­ins vett­vangur göngu­fólks. Lokunin hefur hins vegar verið umdeild og mikil umræða skap­ast um hana síð­ustu miss­eri.

Spurð hvort hún telji teng­ingu vera á milli umræð­unnar og utan­vega­akst­urs­ins nú segir Fanney ómögu­legt að svara því. „Það sorg­lega við þetta er að þessar merk­ingar á leið­inni með vörð­unum segja manni að ein­hverjir ætli sér ekki að virða lok­an­irnar.“

Um Von­ar­skarð lá áður bíl­slóði sem sést nú aðeins á fáum stöðum og ef vel er að gáð. Að hluta lá hann sam­hliða merktri göngu­leið um svæðið og þar sem hann sést ekki hafa öku­menn bíl­anna ein­fald­lega ekið göngu­leið­ina. Hjólför þessu til stað­fest­ingar eru greini­leg.

„Það sem er svo verst er að undan Gjóskuklif­inu lenda þeir í ein­hverjum vand­ræðum með að kom­ast upp aftur, upp bratta brekku,“ segir Fanney um ummerkin. „Þá keyra þeir stóran hring neð­an­undir klif­inu, yfir lækj­ar­sytrur og um mjúka mela.“ Á þessum hring, sem er um kíló­metra langur, hætti þeir að aka í förum hvers ann­ars og greini­lega sjá­ist því að í það minnsta þrír bílar hafi þarna verið á ferð. „Svo hafa þeir reynt að kom­ast upp og lent í vand­ræðum og spólað í brekkunni. Það eru för út um allt – eins og í sand­gryfju.“

Bíl­stjór­arnir fundu sér að lokum leið upp og merktu þá leið með vörð­unum.

Spurð um rökin fyrir lok­unum í Von­ar­skarð­inu bendir Fanney á að nátt­úru­legar hindr­anir beggja vegna loki því í raun. „Ofan í Von­ar­skarð­inu eru svo algjörir gull­molar, meðal ann­ars þessir mjúku melar sem þeir keyrðu í gegnum. Þarna eru svæði sem við viljum vernda. Með því að halda lok­unum sitt hvorum megin, líkt og reynt hefur verið að gera frá árinu 2011, eru bílar ekki að vill­ast ofan í skarðið inn á þessi við­kvæmu svæði með þessum afleið­ingum.“

Von­ar­skarð sé staður þar sem fólk geti verið eitt með sjálfu sér. Það sé m.a. mark­miðið með vernd­inni. „Þetta er svæði þar sem þú ert eins og Palli var einn í heim­inum. Þetta er spari­stofan.“

Í hennar huga und­ir­striki því spjöllin sem unnin voru í ágúst nauð­syn á lokun veg­slóð­anna.

Spurð hversu bjart­sýn hún sé á að það tak­ist að hafa uppi á söku­dólg­unum seg­ist hún vona það besta. „Sem betur fer eru lang­flestir – lang­lang­flestir – sem stunda jeppa­ferða­mennsku á Íslandi nátt­úru­elsk­andi fólk. Ég hef ekki trú á því að þetta athæfi verði vel séð í þeirra hópi.“

Með afskekktustu svæðum Íslands

„Von­ar­skarð og Tungna­árör­æfi eru með afskekkt­ustu og tor­fær­ustu svæðum Íslands og fáir sem leggja þangað leið sína,“ segir í upp­hafi umfjöll­unar um Von­ar­skarð á vef Vatna­jök­uls­þjóð­garðs.

Í Von­ar­skarði er háhita­svæði í um 950 – 1100 metra hæð yfir sjáv­ar­máli með óvenju­lega fjöl­breyttum gróðri, lit­skrúð­ugu hvera­svæði og sjald­gæfum háhita­líf­verum með hátt vernd­ar­gildi. Þar finnst einnig ein hæsta mýri lands­ins í yfir 900 m hæð yfir sjó. „Landslag er óvenju­legt, stór­brotið og fjöl­breytt; jöklar og há fjöll, sand­s­léttur og áraurar, jök­ulár, bergvatnsár og volgar lindir og lit­fagrir hverir. Í Von­ar­skarði eru vatna­skil Skjálf­anda­fljóts og Köldu­kvíslar sem rennur í Tungnaá. Um send­inn öskju­botn­inn renna lækir að því er virð­ist hlið við hlið sem síðar eiga eftir að falla til sjávar ýmist á Suður- eða Norð­ur­landi. Einstök nátt­úra Von­ar­skarðs, víð­erni og kyrrð lætur engan ósnort­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatnajökulsþjóðgarður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár