„Það kemur ekki til greina að ráðherra ræði hér einstök mál“

Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra neitaði að svara því hvenær kynferðis­brota­maðurinn Robert Downey sótti um uppreist æru og vildi heldur ekki svara því hvort ráðuneyti hennar hefði sett veitingu uppreist æru „í frost“ vegna yfir­vofandi laga­breytinga.

„Það kemur ekki til greina að ráðherra ræði hér einstök mál,“ sagði Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra þegar Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, spurði hana hvenær kynferðis­brota­maðurinn Robert Downey hefði sótt um uppreist æru. 

Hún neitaði einnig að svara spurningu Andrésar Inga Jónssonar, þingmanns Vinstri grænna, um hvort ráðuneytið hygðist setja veitingu uppreist æru almennt „í frost“ meðan unnið er að breytingum á þeim lögum sem gilda um mála­flokkinn. 

Eftir að Sigríður hafði neitað að svara spurningu Andrésar, sem hann tók fram að sneri með almennum hætti að verklagi í ráðuneytinu, tilkynnti Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar, að fundurinn væri opinn og því yrði að gæta að meðferð trúnaðar­upplýsinga. 

Síðar á fundinum spurði Þórhildur Sunna aftur út í mál Roberts Downey og sagði Sigríður þingmenn þá verða að „bera þroska“ til þess að sætta sig við að einstök mál sem koma inn í ráðuneytið verði ekki rædd á þessum vettvangi. 

Eins og Stundin greindi frá í gær beindi Áslaug Arna því til þingmanna nefndarinnar í síðustu viku að ekki mætti ræða efnislega um uppreist æru barna­níðingsins Robert Downey á opnum fundi nefndarinnar. Hún féll hins vegar frá þeirri kröfu eftir að nefnda­svið Alþingis komst að þeirri niður­stöðu að nefndar­menn hefðu rétt til þess að fara fram á og ræða upplýsingar um uppreist æru einstakra aðila.

Bergur Þór Ingólfsson, faðir stúlku sem Robert braut gegn þegar hún var á unglings­aldri, hefur haldið því fram að Downey hafi fengið sérmeðferð þegar hann sótti um og fékk uppreist æru.

Í hegningar­lögum er kveðið á um að fimm ár séu liðin frá því að refsingu lauk áður en hægt sé að veita mönnum sem hafa framið alvarleg brot uppreist æru. Róbert sótti um uppreist æru árið 2014 en seinni dómurinn yfir honum, þar sem hann var dæmdur fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni, féll árið 2010. Færsla Bergs á Facebook, þar sem hann gagnrýndi máls­meðferðin í máli Roberts Downey, vakti mikla athygli en þar skrifaði hann:

 „Mál Roberts fær ekki neitun 2014 þótt ekki séu liðin fimm ár frá því að dómur er úttekinn eins og lög kveða á um og virðist vera reglan um aðra umsækjendur. Hann fær heldur ekki neitun árið 2015 þrátt fyrir að tíminn sé ekki liðinn en hann lauk fangelsis­vist árið 2011 og fimm ár þurfa að líða frá því að dómur sé að fullu út tekinn. Umsókn hans er látin liggja inni í ráðuneytinu til ársins 2016 og forseti skrifar undir uppreist æru hans 16. september það ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár