Meirihlutinn í Hafnarfirði fallinn og Samfylkingin tvöfaldar fjölda bæjarfulltrúa

Mikil spenna er í sveitar­stjórnar­málum í Hafnar­firði. Sitjandi meirihluti bætir við sig einu prósentu­stigi af fylgi en fellur samt. Samfylkingin bætir miklu við sig frá 2018 og flestir bæjarbúar vilja sjá oddvita hennar sem bæjar­stjóra.

Guðmundur Árni Stefánsson.
Guð­mundur Árni Stef­áns­son. Mynd: Facebook-síða Guðmundar Árna Stefánssonar.

Meirihluti Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks í Hafnar­firði, þriðja stærsta sveitar­félagi landsins, er fallinn samkvæmt könnun sem Prósent gerði og birt er í Frétta­blaðinu í dag.

Þar kemur fram að Samfylkingin mælist nú með 31 prósent fylgi, en hún fékk 20,1 prósent atkvæða í sveitar­stjórnar­kosningunum 2018. Þessi fylgis­aukning skilar flokknum að óbreyttu fjórum bæjar­fulltrúum í stað þeirra tveggja sem hann hefur í dag.

Sem stendur mynda Sjálfstæðis­flokkur og Framsóknar­flokkur meirihluta í Hafnar­firði. Sjálfstæðis­flokkurinn mælist með sama fylgi og hann fékk upp úr kössunum fyrir fjórum árum, eða 34 prósent, og yrði áfram stærsti flokkurinn í Hafnar­firði. Hann myndi hins vegar tapa einum bæjar­fulltrúa og fá fjóra þar sem meira magn atkvæða fellur niður dautt í komandi kosningum, samkvæmt könnun Prósents. Við það fellur meirihluti Sjálfstæðis­manna og Fram­sóknar, en Framsókn mælist nú með níu prósent fylgi eftir að hafa fengið átta prósent árið 2018, og er áfram með einn bæjar­fulltrúa.

Aðrir sem ná manni inn í ellefu manna bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar samkvæmt könnuninni eru Viðreisn og Píratar, sem bæði mælast með sjö prósent fylgi, og fá fyrir vikið sitt hvorn bæjar­fulltrúann.

Þrjú framboð mælast ekki með mann inni: Vinstri græn, Bæjar­listinn og Miðflokkurinn. Samanlagt fylgi þeirra mælist um 13 prósent, sem eru þá atkvæði sem að óbreyttu falla niður dauð. Tvö síðastnefndu eru með einn bæjar­fulltrúa hvort í dag.

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarð­ar, ákvað að snúa aftur í stjórnmál fyrr á þessu ári til að leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafnar­firði í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um. Í stöð­u­­upp­­­færslu á Facebook þar sem hann tilkynnti um endurkomu sína sagðist hann stefna „óhikað að því að Sam­­fylk­ing vinni góðan sigur í bæj­­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingum í maí og tvö­­faldi bæj­­­ar­­full­­trú­a­­tölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosn­­ingum geti Sam­­fylk­ingin í góðu sam­­starfi við aðra flokka tekið við for­ystu um stjórn bæj­­­ar­ins.

Samkvæmt könnun Prósents vilja flestir Hafnfirðingar, alls 34 prósent, sjá Guðmund Árna sem næsta bæjar­stjóra. Skammt undan kemur Rósa Guðbjarts­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins og núverandi bæjar­stjóri, með 32 prósent.

Könnunin var framkvæmd 3. til 10. maí, úrtakið var 680 manns og svar­hlutfallið 50,5 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár