Flokkur fólksins vill frítt í strætó, Sundabraut í forgang og meira landbrot

Flokkur fólksins vill sjá borgina stórauka lóða­framboð, til dæmis í suður­hlíðum Úlfars­fells og austur af núverandi byggð í Úlfars­árdal. Flokkurinn segist vilja eyða biðlistum í borginni og efla stuðning við öryrkja og aldraða.

Kolbrún Baldursdóttir er oddviti Flokks fólksins.
Kolbrún Bald­urs­dóttir er odd­viti Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Flokkur fólksins býður fram í borgar­stjórnar­kosningunum í Reykja­víkurborg undir slag­orðinu „Fólkið fyrst – í Reykjavík“.

Kolbrún Baldurs­dóttir er eini borgar­fulltrúi flokksins, sem fékk 4,3 prósenta fylgi í kosningunum árið 2018. Samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðins­sonar fengi flokkurinn 4,9 prósent atkvæða, sem myndi skila Kolbrúnu inn í borgar­stjórn á ný.

Flokkurinn hefur kynnt forgangsmál á vef sínum fyrir komandi borgar­stjórnar­kosningar. Kjarninn leit yfir þau og tók saman það helsta.

Reykjavík eigi nóg land undir lóðir

Í húsnæðis­málum segir Flokkur fólksins að eitt helsta hagsmunamál borgarbúa sé að „efnt verði til stórátaks í framboði á lóðum og ódýrum íbúðum“. Flokkurinn segir „sjálfsagt“ að þétta byggð en segir sína forgangröðun vera þá að brjóta strax land undir „ódýrar lóðir í suður­hlíðum Úlfars­fells og svæðinu austur af Úlfars­árdal“.

„Ártúns­höfðinn er langt kominn í skipulags­ferli, í Keldna­landi er hægt að byggja meira og Kjalarnes kemst í alfara­leið með Sunda­braut. Reykjavík á nóg land undir lóðir. Nýtum það strax og höfum allar lóðir að kostnaðar­verði!“ segir um húsnæðis­málin í málefna­skrá Flokks fólksins.

Flokkurinnn segist einnig ætla að „tryggja öllum aðgengi að félags­legu húsnæði sem þarfnast þess“ og „skipuleggja svæði undir uppbyggingu húsnæðis fyrir aldraða í umhverfi sem hentar þeirra þörfum“.

Sundabraut í forgang og ekki þrengja að bílum

Í samgöngu­málum segist Flokkur fólksins vilja „mæta mismun­andi samgöngu­þörfum borgarbúa, í stað þess að þvinga þá til að nota lausnir sem henta þeim ekki“. Flokkurinn segir að Sunda­braut sé „algjört forgangsmál“ og framkvæmdir verði að hefjast sem fyrst og að skipulag borgarinnar megi ekki „þrengja meira að bíla­umferð en þegar er orðið“ og taka verði á „óþolandi töfum í umferðinni“.

Flokkurinn vill að það verði frítt í strætó fyrir alla og að tryggja þurfi „aðgengi allra borgara, þ.á.m. bílastæða­aðgengi öryrkja og aldraðra um alla borg“. Flokkurinn segir að miðbær Reykja­víkur megi ekki verða „einkaeign hinna útvöldu“.

Vilja eyða biðlistum og borga foreldrum fyrir að vera heima með börn

Flokkur fólksins segir að 1.900 börn bíði þess að fá faglega aðstoð frá skóla­þjónustu Reykja­víkurborgar. „Við munum útrýma slíkum biðlistum,“ segir flokkurinn, en nefnir ekki eina einustu aðgerð sem hægt væri að grípa til í því skyni.

Flokkurinn segist ætla að tryggja aðgengi allra barna að tómstunda­starfi, óháð fjárhags­stöðu foreldra og vill einnig koma á gjaldfrálsum máltíðum í skólum „fyrir þau börn sem þarfnast þeirra“.

Flokkur fólksins segist vilja greiða foreldrum sem ákveða að hafa börn sín heima á aldrinum 1 til 2 ára mánaðar­legan styrk sem jafngildi niður­greiðslum Reykja­víkurborgar fyrir hvert barn í leikskóla. „Þannig eiga foreldrar þess kost að vera heima með börnunum sínum og þar með minnkar álagið á leik­skólana,“ segir um þetta í stefnu flokksins.

Flokkurinn segist vilja efla stuðning við viðkvæma hópa eins og öryrkja og aldraða, meðal annars með fjár­styrkjum frá borginni til hagsmuna­samtaka þeirra. Flokkur fólksins segir einnig að tryggja þurfi öryrkjum og öldruðum „betra aðgengi að þjónustu­stofnunum borgarinna, rækta samskipti við þá og koma uppýsingum til þeirra sem nota ekki netlausnir“.

Flokkurinn segir einnig að það þurfi að tryggja „viðeigandi heima­þjónustu“ til að eldri borgarar geti búið eins lengi heima og þeir vilji og flokkurinn segist einnig ætla að „berjast með kjafti og klóm„ fyrir því að útrýma biðlistum vegna skorts á hjúkrunar­rýmum í Reykjavík.

„Það er með öllu ótækt að fólk með færni og heilsumat þurfi að dveljast mánuðum saman á Land­spítala vegna skorts á hjúkrunar­rýmum,“ segir í stefnu flokksins um þetta atriði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár