Vilja gjaldfrjálsa leikskóla, borgarlandverði, „Reykjavíkurbústaði“ og meira íbúalýðræði

Vinstri græn í Reykjavík vilja að borgin stofni sitt eigið leigu­félag fyrir almennan leigu­markað, flýta Borgar­línu og nýta íbúa­kosningar í auknum mæli. Þá vill flokkurinn samstarf við ríkið, háskóla og einka­aðila um svokallaða „Vísinda­veröld“.

Efstu þrír frambjóðendur Vinstri grænna í Reykjavík. Líf Magneudóttir, fyrir miðju, leiðir listann.
Efstu þrír fram­bjóð­endur Vinstri grænna í Reykja­vík. Líf Magneu­dóttir, fyrir miðju, leiðir list­ann. Mynd: Vinstri græn í Reykjavík

Vinstri græn setja fram kosninga­áherslur sínar fyrir komandi borgar­stjórnar­kosningar í undir slag­orðinu „Göngum lengra í Reykjavík“.

Flokkurinn fékk 4,6 prósent atkvæða í borginni árið 2017 og einn borgar­fulltrúa kjörinn, Líf Magneu­dóttur, sem áfram leiðir listann nú. Samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðins­sonar verða Vinstri græn áfram með einn borgar­fulltrúa, en þó nærri því að ná inn öðrum manni, með 6,7 prósenta fylgi.

Vinstri græn setja fram kosninga­áherslur á vef sínum sameiginlega fyrir öll sveitar­félög þar sem flokkurinn býður fram, en eru svo einnig með sérstakar kosninga­áherslur í Reykjavík. Kjarninn skoðaði áherslumál flokksins í borginni og tók saman það helsta.

Borgin standi að byggingu almennra leiguíbúða

Í húsnæðis­málum segist flokkurinn ætla sér að byggja árlega á bilinu 500-1.000 „Reykja­víkur­bústaði“, sem yrðu almennar leigu­íbúðir í eigu borgarinnar. Þetta segir flokkurinn að eigi að verða hrein viðbót við aðra uppbyggingu íbúða sem er fyrir­huguð samkvæmt húsnæðis­áætlun borgarinnar.

Vinstri græn vilja einnig fjölga leigu­íbúðum Félags­bústaða um og íbúðum fyrir fatlað fólk um samtals 700 á kjör­tímabilinu. Þá segist flokkurinn ætla að „tryggja heimilis­lausu fólki húsnæði á þeirra forsendum“ og „byggja upp kröftug og lifandi hverfi um alla borg með því að þétta byggð og full­byggja skipulögð hverfi“.

Vinstri græn segjast vilja ráðast í breytingar á aðal­skipulagi Reykja­vikur, „þannig að í öllu skipulagi sé meira pláss lagt undir mannlíf, gróður og vistvænar samgöngur og að minni­hluti pláss fari undir bíla og bílastæði,“ og einnig vill flokkurinn „grænni götur“ og „vinda ofan af malbiki með borgar­hönnunar­stefnu.“

Flokkurinn segist vilja endur­heimta almanna­rýmið frá bílum og að bílastæði eigi „betur heima í bíla­kjallara eða bílastæða­húsi en ofanjarðar“. Þá segir í kosninga­áherslunum að mislæg gatnamót ættu að „verða víkjandi í skipulagi borgarinnar“ þar sem það sé „betra fyrir lífsgæðin að nýta borgar­landið undir húsnæði og græn útivistar­svæði“.

Gjaldfrjáls leikskóli og skólamatur

Vinstri græn hafa það á stefnu­skrá sinni að menntun barna verði gjald­frjáls bæði í leik- og grunn­skólum og að máltíðir í skólunum verði einnig endurgjalds­lausar.

Hvað skólamál varðar segist flokkurinn einnig vilja búa betur að kennurum, nýta tækni meira í skóla­starfi og auka stuðning við börn með annað móðurmál en íslensku.

Vinstri græn vilja einnig svokallaða „Vísinda­veröld“ í borgina, en það yrði safn eða miðstöð þar sem hægt yrði að fræðast um heiminn og náttúruna. Stefán Pálsson, sem situr í 2. sæti á lista flokksins, útskýrði þetta stefnumál betur í blaða­grein og sagði verkefnið þurfa að vinnast í samstarfi borgar, ríkis og háskólanna. Hann sagði VG horfa sérstak­lega til þess að Vísinda­veröld yrði fundinn staður í Keldna­holts­landinu.

Í kosninga­áherslum Vinstri grænna er einnig lagt til að sumar­frístunda­kort verði tekin upp, svo öll börn geti notið frístunda­starfs allt árið um kring. Flokkurinn segist líka vilja færa menningar­starf, listnám og tónlistar­iðkun „nær börnum“, fjölga plássum í skóla­hljómsveitum Reykja­víkur og bæta aðstöðu þeirra.

Vilja flýta Borgarlínu og endurvekja næturstrætó

Vinstri græn segjast ætla að flýta Borgar­línu framkvæmdum við hjóla­stíga og tryggja að vistvænir ferða­mátar verði „sjálf­sagður valkostur borgarbúa“.

Flokkurinn segir Strætó vera grunn­þjónustu og að lykil­leiðir eigi að „ganga lengi og vera tíðar“, auk þess sem endur­vekja skuli nætur­strætó, en nætur­strætó hætti að ganga eftir að næturlíf miðborgarinnar lognaðist af í kórónu­veiru­faraldrinum og hefur ekki verið endur­vakinn.

Vinstri græn segjast einnig ætla sér að „endur­skoða fyrir­komulag vetrar- og vorþjónustu svo við fáum ekki óyfirstíganlega skafla og sandfok“.

Fleiri ákvarðanir með íbúakosningum

Vinstri græn segjast ætla að tryggja aðkomu íbúa að skipulags­málum frá fyrstu stigum verkefna, og segist flokkurinn vilja að íbúar taki fleiri ákvarðanir, „m.a. með íbúa­kosningum um tiltekin mál og íbúa­þingum.“

Þá vill flokkurinn að borgin nýti sér „fjöl­breytt lýðræðis­tæki eins og skoðana­kannanir og rökræðu­kannanir við uppbyggingu í hverfunum“ og sjá slembi­valda fulltrúa setjast í íbúaráð borgarinnar, til að „tryggja fjöl­breyttari raddir íbúa við stefnu­mótun og ákvarðana­töku“.

Vinstri græn segjast einnig ætla að vanda betur alla áætlana­gerð í borginni og rýna áætlanir með „mæli­kvörðum velsældar og kynja­sjónarmiða og umhverfis­áhrifa“. Þá vill flokkurinn að loftslags­áhrif fjár­festinga verði metin og þær kolefnis­jafnaðar, ef tilefni sé til.

Flokkurinn segist ætla að sýna ráðdeild í rekstri og forgangraða fjármunum til verkefna sem auki lífsgæði fólks. Þar verði umhverfisvæn og félagsleg uppbygging og fjár­festingar í innviðum í forgrunni. Vinstri græn segjast líka vilja vinna með ríkinu og Sambandi íslenskra sveitar­félaga „að útfærslu á styrkari tekju­stofnum til höfuð­borgarinnar“.

Borgarlandverðir og meira fyrir hestamenn

Það kennir ýmissa grasa í stefnu­skrá Vinstri grænna í borginni. Flokkurinn segist vilja ráða borgar­landverði, sem eiga að hafa það hlutverk að sinna fræðslu og eftirliti með borgar­landinu. Þá vill flokkurinn stórauka fræðslu til Reyk­víkinga um umhverfismál, lofts­lagsmál og hringrásar­hagkerfið, auk þess að standa vörð um strand­lengjuna og endur­heimta röskuð svæði.

Mörg stefnu­mála VG eru fremur almenn, en sum afar sértæk. Eitt af þeim sértækari er að flokkurinn segist styðja hugmyndir hestamanna­félagsins Fáks um að stækka félags­svæðið og „gera hesta­íþróttina aðgengilegri fyrir okkur öll.“

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um fram­lagðar stefnu­skrár flokka í Reykjavík á næstu dögum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár