Engin sátt í sjónmáli um gjaldtöku í sjávarútvegi

Þver­pólitísk nefnd um gjaldtöku í sjávar­útvegi á að skila af sér tillögum í vetur. Viðreisn vill byggja á samningum milli ríkisins og útgerð­ar­innar á einkaréttar­legum grunni og taka mið af frumvarps­drögum Sigurðar Inga Jóhanns­sonar frá síðasta kjör­tímabili og vinnu starfs­hóps Guðbjarts Hannessonar. 

Gjaldtaka í sjávarútvegi til skoðunar
Gjald­taka í sjáv­ar­út­vegi til skoð­unar Þverpóli­tísk nefnd um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi á að skila frum­varps­drögum fyrir jól. Mynd: Pressphotos

Hanna Katrín Friðriksson, þing­flokks­formaður Viðreisnar og fulltrúi flokksins í nefnd um gjaldtöku í sjávar­útvegi, vonar að nefndin geti komið sér saman um fyrir­komulag þar sem gerðir verði langtíma­samningar milli útgerðarinnar og ríkisins á einkaréttar­legum grunni en jafnframt tryggt að gjaldtaka fyrir nýtingu hinnar sameiginlegu auðlindar endur­spegli arðsemi greinarinnar á hverjum tíma. 

 

Vill mála­miðlunHanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, hefur lagt fram til­lögu að umræðu­grund­velli sem byggir á vinnu fyrri rík­is­stjórnar og mark­aðs­sjón­ar­miðum Við­reisnar.

„Ég hef lagt fram á fundi nefndarinnar minnis­blað með hugmynd að umræðu­grundvelli,“ segir Hanna Katrín í samtali við Stundina og bætir því við að hugmyndin byggi að hluta til á sjónar­miðum sem Viðreisn hefur haldið á lofti en taki jafnframt mið af vinnu starfs­hóps Guðbjarts Hannessonar úr tíð vinstri­stjórnarinnar og frumvarps­drögum Sigurðar Inga Jóhanns­sonar frá síðasta kjör­tímabili. „Hugmyndin er á þessu stigi ekki nákvæmlega útfærð, en einfald­lega hugsuð sem framlag til mála­miðlunar, meðal annars með hliðsjón af því sem unnið hefur verið að í tíð tveggja síðustu ríkis­stjórna,“ segir Hanna Katrín. 

Frumvarps­drög Sigurðar Inga um fisk­veiði­stjórnun vöktu hörð viðbrögð árin 2014 og 2015, en þar var lagt til að gerðir yrðu nýtingar­samningar til 23 ára við núverandi handhafa afla­heimilda. Niður­staða starfs­hóps Guðbjarts Hannessonar, sem einnig fól í sér samninga­leið í sjávar­útvegi, var einnig umdeild. Raunar vék vinstri­stjórnin í veiga­miklum atriðum frá niður­stöðum þeirrar nefndar þegar Stein­grímur J. Sigfússon, þáverandi atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðherra, lagði fram frumvarp til laga um stjórn fiskveiða árið 2012. Þar var byggt á úthlutun nýtingar­leyfa fremur en að gerðir yrðu einkaréttar­legir samningar milli ríkisins og útgerðarinnar. Þótti ráðstöfun nýtingar­leyfa til afmarkaðs tíma betur til þess fallin en samningar að tryggja eignar­hald þjóðarinnar á fiskveiði­auðlindinni.

Augljóst að auðlindin sé þjóðareign

Svandís Svavars­dóttir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna og fulltrúi flokksins í nefndinni um gjaldtöku í sjávar­útvegi, skrifaði nýlega pistil í Kjarnann þar sem hún gagnrýndi að í tillögu Viðreisnar innan nefndarinnar væri ekki fjallað um þjóð­ar­eign á auð­lind­inni heldur byggt á þeirri nálgun að gerðir yrðu samn­ingar milli útgerð­ar­innar og rík­is­ins á einka­rétt­ar­legum grunni. 

Hanna Katrín segist ekki hafa lagt fram formlega tillögu heldur minnis­blað. „Að sjálfsögðu er gengið út frá því að fiskveiði­auðlindin sé sameign þjóðarinnar! Það er svo augljóst að það þarf ekki að tiltaka það sérstak­lega í vinnu­skjali sem þessu,“ segir hún í svari við fyrir­spurn Stundarinnar.

„Þær tillögur sem hugmyndin byggir á eiga það sameiginlegt að endur­gjald komi fyrir tíma­bundin veiði­réttindi. Tilgangurinn með afmörkun veiði­réttinda til ákveðins tíma er fyrst og fremst að ná efnislegri, og í verki, viðurkenningu á þjóðar­eigninni. Ég áttaði mig hreinlega ekki á því að einhverjir nefndar­manna gætu misskilið þetta.“

Þá tekur hún fram að í minnis­blaði sínu sé orðrétt fjallað um „sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar“. 

Betra að byggja á leyfum en samningum

Svandís Svavars­dóttir segir í samtali við Stundina að sér finnist lykil­atriði að nefndin nái samstöðu um að innleiða auðlinda­ákvæði í stjórnar­skrá og festa þannig varanlega í sessi eignar­hald þjóðarinnar yfir auðlindinni. Þetta sé í raun frum­forsenda þess að hægt sé að ná sátt um skyn­samlega útfærslu á gjaldtöku í sjávar­útvegi til frambúðar. 

 

Þjóð­ar­eign­ar­á­kvæði grund­vall­ar­at­riðiSvandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, segir mik­il­vægt að festa var­an­lega í sessi eign­ar­hald þjóð­ar­innar yfir fisk­veiði­auð­lind­inni.

Hún bendir líka á að í tíð vinstri­stjórnarinnar hafi á endanum verið lagt upp með að koma á fyrir­komulagi einhliða „leyfa“ eða úthlutunar til afmarkaðs tíma með afmörkuðum skilyrðum, frekar en tvíhliða „samningum“. Sterk rök hefðu hnigið að því að þetta væri betri aðferð til að tryggja eignar­rétt þjóðarinnar á fiskveiði­auðlindinni heldur en samningar á einkaréttar­legum grunni.

Starfsmaður nefndarinnar segir veiðigjöld aldrei verða meiriháttar tekjustofn

Daði Már Krist­ófersson, hagfræðingur og ráðgjafi nefndarinnar um gjaldtöku í sjávar­útvegi, sagði nýlega í viðtali við Fiskifréttir að veiði­gjöld yrðu „aldrei neinn meiriháttar tekju­stofn fyrir ríkið“ og að fólk hefði gert sér grillur um umfang rentunnar í íslenskum sjávar­útvegi. Daði var einn af stjórnar­mönnum Viðreisnar við stofnun flokksins í fyrra og er nú varamaður í stjórninni. Fyrir síðustu þing­kosningar kynnti Viðreisn kosninga­loforð um stór­fellda aukningu innviða­fjár­festinga sem fjár­mögnuð yrði með því að afla ríkis­sjóði árlega 15 til 20 milljarða tekna úr sjávar­útvegi með uppboði afla­heimilda. 

Þegar ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar tók til starfa í byrjun árs 2017 varð ljóst að ekki yrði látið reyna á uppboðs­leiðina. Hins vegar skipaði Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra, þingmanna­nefnd sem falið var að leita leiða til sann­gjarnrar gjald­­töku fyrir afnot af fisk­veið­i­­auð­lind­inni. Formaður nefndarinnar er Þorsteinn Pálsson, en

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár