Virði skráðra félaga í Kauphöll Íslands jókst um 115 milljarða króna í júlí

Alls hefur virði hluta­bréfa í 15 skráðum félögum hækkað það sem af er ári en lækkað hjá 14 félögum. Eftir mikla dýfu á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur markaðurinn tekið við sér og úrvals­vísitalan hækkaði um 7,9 prósent í júlí.

Þrjú félög voru skráð á markað í sumar. Þeirra stærst er Alvotech, sem var skráð á First North markaðinn í júní. Hér sést Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður félagsins, hringja inn fyrstu viðskipti með bréfin.
Þrjú félög voru skráð á markað í sumar. Þeirra stærst er Alvotech, sem var skráð á First North mark­að­inn í júní. Hér sést Róbert Wessman, stofn­andi og stjórn­ar­for­maður félags­ins, hringja inn fyrstu við­skipti með bréfin. Mynd: Alvotech

Í lok júlí var virði þeirra 29 félaga sem skráð eru á Aðal­markað Kaup­hallar Íslands og First North markaðinn 2.620 milljarðar króna. Virði félaganna jókst um 115 milljarða króna frá lokum júní mánaðar.

Þetta kemur fram í viðskipta­yfirliti Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina, sem birt var í gær.

Úrvals­vísitalan hækkaði um 7,9 prósent í síðasta mánuði. Viðskipti með skráð hlutabréf drógust saman um 16 prósent frá því sem þau voru í júlí í fyrra.

Heildar­markaðs­virði hluta­bréfa skráðra félaga í Kauphöll Íslands lækkaði umtals­vert á fyrstu fimm mánuðum ársins. Frá áramótum og út maímánuð lækkaði virði þeirra um 358 milljarða króna, niður í 2.198 milljarða króna. Í maímánuði einum saman lækkaði það um 243 milljarða króna, eða um tíu prósent. Sú lækkun sem varð á úrvals­vísitölunni, sem mælir gengi þeirra tíu skráðu félaga sem eru með mesta seljanleika hverju sinni, í þeim mánuði, var mesta lækkun sem orðið hefur innan mánaðar á vísi­tölunni síðan í maí 2010, eða í tólf ár.

Í júní voru þrjú félög skráð í Kaup­höllina. Ölgerðin og Nova voru skráð á Aðal­markað og Alvotech á First North markaðinn samhliða skráningu í Banda­ríkjunum.

Markaðs­virði Ölgerðarinnar var 28,6 milljarðar króna við upphaf viðskipta í ágúst­mánuði og virði Nova 16,5 milljarðar króna. Alvotech var metið á 265,6 milljarða króna sem gerir það að einu verð­mætasta félaginu í Kaup­höllinni. Samanlagt markaðs­virði þessara þriggja félaga um liðin mánaðamót var því 310,7 milljarðar króna.

Ef sú tala er dregin frá heildar­virði skráðra félaga má sjá að virði hinna 26 sem skráð voru á markað í byrjun júní 2.309,3 milljarðar króna. Virði þeirra hefur því aukist um 111,3 milljarða króna í júní og júlí.

Fleiri hækkað en lækkað á árinu

Sú mikla dýfa sem íslenskur hlutabréfa­markaður gekk í gegnum á fyrstu mánuðum þessa árs kom í kjölfar mikils uppgangs á árunum 2020 og 2021.

Á árinu 2020 hækk­aði úrvals­vísi­talan um 20,5 pró­sent og heild­ar­vísi­tala hluta­bréfa um 24,3 pró­sent. Mark­aðsvirði þeirra 23 félaga sem skráð voru á mark­að­ina tvo á því ári hækk­aði um 312 millj­arða króna á því ári, eða um 24 pró­sent. Í fyrra gekk enn bet­ur. Bréf í öllum félögum á aðal­mark­aði, og öllu nema einu á First North, hækk­uðu. Alls hækk­aði úrvals­vísi­talan um 33 pró­sent og heild­ar­vísi­tala hluta­bréfa um 40,2 pró­sent. Þau tvö félög sem hækk­uðu mest í virði, Arion banki og Eim­skip, tvö­föld­uðu mark­aðsvirði sitt.

Á árinu 2021 voru hluta­bréf fjög­urra félaga tekin til við­skipta í Kaup­höll. Síld­ar­vinnslan og Íslands­banki voru skráð á aðal­markað og PLAY og Solid Clouds á First North. Skrán­ing þeirra spil­aði rullu, ásamt miklum hækk­unum á virði ann­arra félaga, í því að mark­aðsvirði skráðra bréfa hækk­aði um næstum þús­und millj­arða króna í fyrra og var 2.556 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

Alls hafa 15 skráð félög hafa hækkað í virði það sem af er ári en 14 lækkað. Mest hafa Eik (29,5 prósent) og Icelandair Group (29 prósent) hækkað en

lækkunin hefur að stærstu leyti verið drifin áfram af því að Marel, lang­stærsta félagið í Kauphöll Íslands, hefur lækkað um rúmlega 30 prósent frá áramótum. Um síðustu áramót var markaðs­virði Marel 663,5 millj­arðar króna. Það er nú komið niður í 465,7 millj­arða króna, sem þýðir að 197,8 millj­arðar króna hafa horfið af mark­aðsvirði Marel á sjö mán­uð­um.

Nýju félögunum sem skráð voru á markað í júní hefur vegnað mismun­andi á fyrstu metrum sinnar skráðu tilveru. Ölgerðin hefur hækkað um 14,6 prósent á meðan að Nova hefur lækkað um átta prósent. Alvotech, hefur síðan lækkað um 18,17 prósent og er nú, líkt og áður sagði, verðmetið á 265,6 milljarða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár