Léleg arðsemi Landsbankans tilkomin vegna þess að bankinn á stóran hlut í Marel

Stóru bank­arnir þrír birtu nýverið upp­gjör sín vegna fyrri hluta árs­ins 2022. Hagnaður Íslands­banka og Arion banka jókst milli ára og arð­semi þeirra var yfir mark­miðum. Hagnaður og arð­semi Lands­bank­ans dróst hins vegar veru­lega saman.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Hagnaður Lands­bank­ans, eina stóra við­skipta­bank­ans sem er að nær öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins og sá eini sem er ekki skráður á hluta­bréfa­markað, dróst umtals­vert saman á fyrri hluta árs­ins 2022 í sam­an­burði við sama tíma­bil í fyrra.

Á fyrstu sex mán­uðum þessa árs hagn­að­ist bank­inn um 5,6 millj­arða króna en á sama tíma­bili á árinu 2021 nam hagn­aður bank­ans 14,1 millj­arði króna. Hann dróst því saman um 8,5 millj­arða króna milli ára.

Á sama tíma jókst hagn­aður Íslands­banka um rúm­lega tvo millj­arða króna og hagn­aður Arion banka um 1,6 millj­arð króna, þótt taka verði fram að salan á Valitor vigtaði umtals­vert í upp­gjöri þess banka.

Allir bank­arnir setja sé arð­sem­is­mark­mið. Helsti mæli­kvarð­inn á árangur þeirra er hversu vel þeim tekst að ávaxta eigið fé sitt. Þannig náði Arion banki 16,9 pró­sent arð­semi á sitt eigið fé á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og Íslands­banki náði 10,9 pró­sent arð­semi. Báðir bank­arnir græddu umfram mark­mið sín. Það gerði Lands­bank­inn hins vegar ekki. Bankinn hefur sett sér það mark­mið að ná tíu pró­sent arð­semi á eigin fé sitt á ári. Á fyrri hluta yfir­stand­andi árs var sú arð­semi 4,1 pró­sent, og því langt frá settu mark­miði.

Viðsnúningur upp á 7,9 milljarða króna

Af hverju er rík­is­bank­inn að hagn­ast svona miklu minna en hinir stóru bank­arnir? Þjón­ustu­tekjur hans juk­ust gríð­ar­lega milli ára, alls um 24 pró­sent. Og vaxta­tekjur hans sömu­leiðis, alls um 13 pró­sent, sam­hliða mik­illi stækkun á útlána­safni bank­ans og hærra vaxta­stigs í ljósi þess að stýri­vextir hafa hækkað úr 0,75 í 4,75 pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra.

Ástæða þess að hagn­aður Lands­bank­ans var mun minni en hinna er vegna þess „gang­virði hluta­bréfa­eignar bank­ans“. Á manna­máli þýðir það að Lands­bank­inn á mjög mikið af hluta­bréfum, miklu meira en hinir bank­arnir tveir. Þegar þau hluta­bréf hækka í virði þá hefur það mikil áhrif á gengi Lands­bank­ans en þegar þau lækka þá verða áhrifin hratt nei­kvæð.

Á fyrri hluta árs­ins 2022 lækk­aði virði hluta­bréfa í eigu bank­ans um 5,3 millj­arða króna, en þau hækk­uðu um 2,6 millj­arða króna á sama tíma­bili í fyrra. Þarna er því um við­snún­ing upp á 7,9 millj­arða króna að ræða.

Hluturinn í Marel lækkað mikið

Langstærsta hluta­bréfa­eign bank­ans er 3,5 pró­sent óbeinn hlutur í Marel, lang­verð­mætasta skráða félagið á íslenska hluta­bréfa­mark­að­inum, í gegnum 14,1 pró­sent eign­ar­hlut í Eyri Invest, stærsta eig­anda Marel. Sá hlutur var um 23,6 millj­arða króna virði í lok jún í fyrra, eftir mikla hækk­un­ar­hr­inu sem átti sér stað sam­hliða því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Alls hækk­uðu hluta­bréf í Marel um 93,2 pró­sent frá því í mars 2020 og til ágúst­loka 2021. Þau næstum tvö­föld­uð­ust. Og virði þeirra bréfa sem Lands­bank­inn heldur á í félag­inu jókst um sama hlut­fall.

Hlutur Lands­bank­ans í Marel í lok júní síð­ast­lið­ins var met­inn á 16,3 millj­arða króna. Hann hafði lækkað um 7,3 millj­arða króna á einu ári. Þar er því komin stærsta ástæðan fyrir því að hagn­aður Lands­bank­ans var jafn mikið úr takti við hagnað hinna stóru bank­anna tveggja á fyrri hluta árs­ins.

Seldu hlut í Eyri Invest til Eyris Invest

Eign Lands­bank­ans í Eyri Invest á sér langa sögu. Bankinn eign­að­ist hlut­inn eftir að hann var end­ur­reistur á grunni hins fallna Lands­banka Íslands eftir banka­hrunið. Eign­ar­hald Lands­bank­ans í Eyri Invest tald­ist lengi fela í sér tíma­bundna starf­semi í skiln­ingi laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki, enda Marel í alls óskyldum rekstri. Fjár­mála­eft­ir­litið þrýsti lengi á bank­ann að minnka hlut sinn í fjár­fest­inga­fé­lag­inu og vorið 2016 bauð Lands­bank­inn eign­ar­hlut­inn allan til sölu. Fimm til­boð bár­ust en þeim var öllum hafnað þar sem þau þóttu ekki nógu há.

Í sept­em­ber 2018 hóf Fjár­mála­eft­ir­litið að leggja dag­sektir á Lands­bank­ann vegna þess að hann hafði ekki brugð­ist við þeim þrýst­ingi. 

Í nóv­em­ber 2018 seldi bank­inn hluta þeirra bréfa sem hann átti í Eyri Invest, nán­ast að öllu leyti til Eyris Invest. Eftir það á bank­inn 14,1 pró­sent hlut í fjár­fest­inga­fé­lag­inu. Virði óbeins eign­ar­hluta hans í Marel í gegnum þann eign­ar­hlut var 9,9 millj­arðar króna í lok árs 2018 og því var hann enn 6,4 millj­örðum krónum verð­meiri um mitt þetta ár en þá þrátt fyrir mikla lækkun árið á undan.

Áttu 130 milljarða króna í eigin fé

Eyrir Invest er eitt stærsta fjár­fest­inga­fé­lag lands­ins. Stærstu eig­endur þess eru feðgarnir Þórður Magn­ús­son og Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel, með sam­an­lagðan 38,5 pró­sent eign­ar­hlut. Stærsta eign þess er, líkt og áður sagði, tæp­lega fjórð­ungs­hlutur í Marel. Eigið fé Eyris Invest var um 130 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og hagn­aður þess á síð­asta ári einu saman nam um 23 millj­örðum króna. Sá hagn­aður var að lang­mestu leyti til­kom­inn vegna mats­breyt­inga á bréfum félags­ins í Marel.

Þórður Magnússon er stærsti einstaki hluthafinn í Eyri Invest og er stjórnarformaður félagsins.
Þórður Magn­ús­son er stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Eyri Invest og er stjórn­ar­for­maður félags­ins.

Marel birti árs­hluta­upp­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í síð­ustu viku. Í aðdrag­anda þess sendi félagið frá sér afkomu­við­vörun þar sem rekstr­ar­nið­ur­staða ann­ars árs­fjórð­ungs var undir vænt­ingum, að uppi­stöðu vegna „áfram­hald­andi áskor­ana tengdum aðfanga­keðju og hárrar verð­bólgu sem leiddi til hæg­ari tekju­vaxtar en vænt var.“ Daginn eftir að afkomu­við­vör­unin var send út lækk­aði hluta­bréf í Marel um tæp ell­efu pró­sent.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar kom fram að Marel myndi grípa til aðgerða til að bæta rekstr­ar­af­komu sína þegar í stað. „Til að lækka kostnað hefur sú erf­iða ákvörðun verið tekin að fækka starfs­mönnum félags­ins um fimm pró­sent á heims­vísu.“

Árni Oddur Þórðarson, næst stærsti einstaki hluthafinn í Eyri Invest, stýrir stærstu eign félagsins, Marel.
Árni Oddur Þórð­ar­son, næst stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Eyri Invest, stýrir stærstu eign félags­ins, Marel.

Þegar Marel birti loks upp­gjör sitt 27. júlí síð­ast­lið­inn var haft eftir Árna Oddi, for­stjóra félags­ins, í til­kynn­ingu að fram­legðin á árs­fjórð­ungnum hefði verið óvið­un­andi þrátt fyrir að nýtt met hefði verið sett í pönt­unum. Gert væri ráð fyrir bættri rekstr­ar­af­komu á síð­ari helm­ingi árs­ins.

Marel er áfram sem áður langstærsta félagið í Kauphöll Íslands. Mark­aðsvirði þess við lokun mark­aða á föstu­dag var 465,7 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár